Leita í fréttum mbl.is

Lent og beint uppá Barnaspítala

jamm við þurftum bara að  bíða í fjórtán tíma útá Kastrup eftir flugi heim þvílík og önnur eins þjónusta hjá Icelandair, já þeir létu okkur hanga þar til fjögur í nótt þegar við fengum loksins flug heim en við áttum að fljúga heim kl tvö í gær dag.  Þeir lugu að sjálfsögðu að okkur farþegunum að það væru ÖLL hótel uppbókuð í Koben sem er að sjálfsögðu bara lygi þannig við þurftum bara að hanga en sumir slógu þessu bara uppí kæruleysi og djömmuðu feitt eheh en samt ekki við thíhí!!  Við vorum bara að spila og Skari reyndi að leggja sig á flugvellinum sem gekk svona lala en mín reyndi þá bara að hlusta á ipodin en ég get samt ekki sagt að það hafi bara verið leiðinlegt að hanga þarna þar sem við kynntumst skemtilegu fólki og á tíma hélt ég að ég væri komin í myndina "með allt á hreinu" þvílíkir snillingar þar á ferð.  Oh mæ god!! 

Allavega lentum við hálf sex í morgun en áttum að lenda um þrjú í gærdag sem var kanski aðeins of mikið hangs þegar ég tala fyrir sjálfan mig og þreytan er líka endalaus mikil enda svaf mín ekkert þarna þar sem ég þorði ekki leggjast og reyna gleyma mér þar sem það voru "fyllibittur" hér og þar og mín var ekki að fíla það þegar þær komu og voru eitthvað að klæmast.  En við vorum komin heim loksins um sjö og stuttu eftir það var mín mætt uppá Barnaspítala með hann Theodór minn og ég var einsog einhver vofa, veit ekki hvað þeir hafa haldið þar?  En hann Theodór minn heldur engu niðri síðustu þrjá daga, ef hann fær smá sopa af einhverju þá ferð það bara strax útur bæði götin.  Það er ömurlegt ástand á drengnum.  Við þurftum að vera þar fram að hádegi því þeir voru að reyna hella einhverjum vökva í drenginn sem gekk EKKERT en hann gubbaði samt ekkert né útur hitt gatið þannig læknarnir sögðu okkur að fara heim en kanski myndi Þetta ganga betur þar sem að það hefur sjálfsögðu ekkert gert en um leið og við stigum innum dyrnar kom þvílík buna útur litla karlinum mínum og hann ekkert ennþá fengið dropa uppí sig en hann verður alveg snar ef ég reyni því hann má heldur ekki drekka hvað sem er. 

Ég mun sjá til frammá kvöld eða morgun því ef hann heldur svona áfram mun hann þurfa fá næringu í æð en mig langar ekki að leggjast með hann inn þess vegna reyni ég að berjast og berjast við drenginn verst að það gengur ekkert.  Svo er hann líka með einhverja sveppasýkingu í munninum sínum þannig það er smá ástand á drengnum mínum sem fannst yndislegast að endurheimta mömmu sína í morgun sem hann hefur ekki sleppt eheh!!  Núna sefur litli krulluhaus enda engir kraftar til að gera neitt, æjhi greyjið!!

Stelpurnar voru að sjálfsögðu hoppandi kátar þegar mútta og pápi tóku á móti þeim í morgun en þær voru samt mest ánægðastar með litlu prinsessurnar sem þær fengu frá okkur eheh!!  ÞArf ekki mikið til að gleðja þessar stelpur.

Ætli ég fari nú ekki að gera eitthvað af viti hér heima þetta er einsog einhver ruslahaugur, dóóhh!! Eigið yndislega helgi og gangið hægt um gleðinnar dyr.
Slauga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

spurning hvort megi gefa honum orkudrykk?

Gangi ykkur vel og vonandi sofið þið eins og hrútar í nótt :)

hm (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 17:08

2 identicon

Æ Æ litli smáðinn. Þegar mínir krakkar voru lítil(á síðustu öld eða þannig) og voru með ælupest þá dugði fínt að sjóða vatn og láta það kólna þangað til það var orðið volgt og setja sykur í . Kanski virkar þetta ráð fyrir snáðann. Gangi ykkur vel.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 17:47

3 Smámynd: Þórunn Eva

hæ babe og velkominn heim :) ertu búin að prófa að setja eitthvað í sprauta og sprauta bara re´tt aðeins upp ú hann á korters hálftíma fresti það þarf ekki mikið bara rétt til að fá líkamann til að samþykkja smá vökva svo kemur það :)

 það hefur stundum dugað á JS en ekki alltaf því miður :(

báráttukveðjur Þórunn og JS lasarus

Þórunn Eva , 20.4.2007 kl. 20:10

4 identicon

Það virkaði vel að gefa Óliver orkudrykk þegar hann fékk svona pest um daginn. Vonandi hressist hann fljótt.

Knús

Anna Lilja 

Anna Lilja (IP-tala skráð) 21.4.2007 kl. 00:05

5 Smámynd: Þórunn Eva

hæ hæ hvernig hefur prinsinn það ????

Þórunn Eva , 21.4.2007 kl. 12:06

6 identicon

Æi er hann með æluna skæðu greyið. Það er nú meira hversu þungt hún leggst á fólk þetta árið. Ég hef engin ráð nema bara þau að láta setja næringu í skinnið litla ef ekki vill betur til. Það er svo erfitt að koma einhverju ofan í þau þegar ógleðin er svona slæm. Ekki tekst mér það þegar mín börn eru með gubbuna. Vonandi hristir hann þetta þó af sér. ps)flottar myndir frá Köben :o)

Ylfa (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband