Leita í fréttum mbl.is

Hibbidíhæ hibbidíhó

Ég ætlaði mér nú ekkert að skrifa í dag fyrirutan að minna ykkur á nýja könnun en svo varð ég bara og ástæðan er hún Þuríður mín litla kraftaverkar hetjan.  Ég fór nefnilega með henni í sjúkraþjálfun í dag sem er ekki frásögufærandi, ég hef ekki farið með henni í tvo eða þrjú skipti vegna veikinda og svona þannig Skari hefur farið henni. 

Allavega þá var yndislega gaman að sjá hana í þjálfuninni, jú fyrsta lagi dreif stúlkan sig afstað þegar hún var komin í Real Madrid búninginn sinn ekki spurja mig afhverju hún á þannig búning en það var kanski vegna þess að Arsenal búningurinn er svo hrikalega dýr og ég tímdi ekki að kaupa hann dóóhh!!  ....og KR-búningurinn hennar var skítugur en það er skylda hjá stúlkunni að mæta í fótboltabúning í þjálfunina og það er sko allt hennarCool.  Hún veit sko alveg hvað hún vill en ekki hvað? Ok alltílagi með það, stúlkan dreif sig bara að gera æfingarnar án þess að kóngur né prestur hefði sagt henni hvað hún ætti að gera og gerði allt svona líka vel.  Oh mæ god hvað ég varð stollt af henni en þetta hafði hún ALDREI gert og hvað þá gert þetta svona vel án þess að þjálfarinn segði henni til.  Draumur í dós!! 

Hún gerði allar sínar æfingar stór glæsilega, ég og þjálfarinn urðum eiginlega kjaftstopp.  Þvílíkar framfarir á örfáum vikum, jú það þarf ennþá að ýta á eftir henni að nota hægri því hún eiginlega oftast gleymir að hún sé til enda búin að vera lömuð í henni í marga marga mánuði.  Höndin er sem sagt að koma til þó hún sé ennþá máttlaus í henni og maður sér líka að kraftur í fótum er meiri en hann var og það sá ég svo sannarlega í dag þegar henni var skellt á hjólið.  Jú hún þarf sérstök tæki fyrir lappirnar hennar sem eru festar við petalana en stúlkan gat í alvöru hjólað í fyrsta sinn á ævi sinni án allra hjálpar.  Það eru sko ótrúlegustu hlutir að gerast og maður verður orðlaus yfir þessum kraftaverkum, ég var líka brosandi allan hringinn allan æfingatíman hjá henniGrin

Mikið er ég spennt eftir næsta sjúkraþjálfunartíma sem verður reyndar ekki fyrr en eftir tvær vikurFrown og svo verður frí í allt sumar sem mér finnst synd því henni fer svo mikið fram og það á svona stuttum tíma.

Það er allavega allt að gerast hjá kraftaverkin mínu og ég er svo sannarlega farin að trúa á þau og held í mikla von ennþá að hún lagist af þessu öllu saman.  Hvar værum við án allra vonar og trúar?
Knúsumst öll í tilefni dagsins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yndislegt að hún lætur ykkur vera kjaftstopp.Er ekki hægt að fara með hana eitthvert annað í sjúkraþjálfun?það er nú ótækt að KR búningurinn sé óhreinn  verður bara að eiga lager af KR búningum.En glæsilegt að heyra.KR kveðja 

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 19:39

2 identicon

Frábært að heyra þetta :)   

Oddný (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 20:06

3 identicon

Æðislegt að lesa svona góðar fréttir af stelpunni   Kraftaverkin gerast, það er greinilegt.

Thelma (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 20:29

4 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Elsku þið ! æðislegt er að heyra þetta, maður vildi helst bara dansa :) Guð veri með ykkur og gefi litla gullinu kraft og orku til að halda svona áfram, bara æðislegt

Kveðja, Gunna á Skaganum :) 

Guðrún Jóhannesdóttir, 26.4.2007 kl. 22:04

5 Smámynd: Þórunn Eva

ó mæ god :) þetta eru sko bara æðislegar fréttir :) innilega til hamingju með þetta allt saman :)

förum að kíkja í heimsókn hver veit nema að maður kíki kannksi bara í næstu viku ef að það fer eitthvað að róast hjá manni :) sjáum til skvís og enn og aftur til hamingju með þennan flotta dag :)

koss og knús

Þórunn Eva , 26.4.2007 kl. 22:07

6 Smámynd: Elsa Nielsen

Yndislegast :) 

KNÚÚÚÚS 

Elsa Nielsen, 26.4.2007 kl. 23:31

7 identicon

Yndislegar fréttir...... höldum áfram að biðja þess að sigurgangan haldi áfram !

Njótið ykkar !

Lilja (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 08:26

8 identicon

Yndislegt að lesa hvað henni gengur vel!! það er hollt fyrir alla að lesa það sem þú skrifar Áslaug,þvílík jákvæðni,kraftur,skynsemi og dugnaður!!þú er bara flott! kv Harpa

Harpa Barkar (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 09:09

9 identicon

Elsku dúllan, ji hvað hún spjarar sig,maður bara vælir-af gleði- munið bara að lífið er ekkert LÍF, án VONAR ,BÆNAR, og kærleiks, elsku fjölskylda það er allt hjá ykkur ,þetta er bara yndislegt.Kv.Hrönn

Hrönn (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 09:52

10 identicon

JJuu þetta eru yndislegar fréttir er alveg með kökkinn í hálsinum ég er svo ángæð fyrir ykkar hönd,þetta er bara frábært  Og það er ekki spurning Áslaug,það eiga margir eftir að knúsast í dag yfir þssum frábæru fréttum.það lifnaði alveg yfir mér að lesa þessa færslu þína  Eigið yndislega helgi og við sendum ykkur RISA knús.

Kveðja Guðrún Bergmann,Jói og dætur.

Guðrún Bergmann Franz. (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 10:19

11 identicon

En yndislegt að lesa um svona frábæran dag  Samgleðst ykkur innilega og ætla núna að knúsa börnin mín í tilefni dagsins  Bestu kveðjur og takk fyrir að deila þessu með okkur.

Ólöf (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 13:17

12 identicon

Hæ hæ

En æðislegt að lesa svona góðar fréttir - og það er sko rétt hún Þuríður er gangandi kraftaverk.   Hafið það gott og góða helgi.

Kkv. Martha og grísirnir

Martha (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 18:10

13 Smámynd: Halla Rós

VÁ VÁ VÁ....... Enn yndislegar fréttir. STÓRT KNÚS á ykkur öll ;) Þetta er frábært, gvöð ég fékk alveg kökk í hálsinn og hnút í magann ÞEgar ég las færsluna. Veistu það er æðislegt að heyra þetta.

Enn er ekki hægt að fara með hana eitthvert annað í þjálfun eða gera eitthvað, mér finnst alveg synd að gera það ekki, ég myndio athuga það í ykkar sporum.

Elsku fallega kraftaverka stelpan ykkar er HETJA

Halla Rós, 27.4.2007 kl. 23:59

14 identicon

Óska öllum góðrar helgi og Guð veri með öllum,sérstaklega þeim  sem eiga um sárt  að binda.Verum dugleg að knúsa.Kv

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 00:10

15 identicon

jii hvað er alltaf æðislegt að heyra svona góðar fréttir hún Þuríður Arna er náttla bara hreint og beint ÆÐI! ég er komin í sveitina núnag ætla bara að nota tækifærið og óska litlu dúllunum mínum til hamingju með sfmælið;* þið eruð best endalaus KNÚS til ykkar!

Tinna Rut (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 10:48

16 identicon

Það er soldið síðan ég kíkti hingað síðast, samt búin að fylgjast með litlu hetjunni í langan tíma :o) Ég fékk alveg hlýtt í hjartað og virkilega sterka trú á kraftaverk eftir að hafa lesið nýjustu færsluna þína. Hún er kraftaverk nú þegar elsku stelpan ykkar, og sannar það alltaf aftur og aftur :o)

Knús til ykkar!

GunnSara (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 12:36

17 identicon

ÆÐISLEGT að sjá hvað gengur vel  Mér finnst svo gaman að lesa fréttirna hjá ykkur fer orðið oft á dag og les sömu fréttirnar því maður verður eitthvað svo hamingjusamur fyrir ykkar hönd

Gangi ykkur öllum svona vel áfram alltaf beðið fyrir aðalhetjunni á þessum bæ

Kveðja

Margrét(sem þekkir ykkur ekki neitt en er búin að fylgjast með baráttu ykkar lengi)

Margrét (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 19:58

18 identicon

Sæl ágæta fjölskylda

Mikið er yndislegt að lesa um hetjuna í rauða fótboltagallanum. Þetta er það sem gildir að gefast ekki upp. Bið Guð um að batinn haldi áfram. Góð kveðja til ykkar allra. Ykkar styrkur er hreint kraftaverk.

Ömmuknús á öll litlu skottin ykkar frá ókunnugri ömmu norður í landi.

Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 29.4.2007 kl. 00:40

19 identicon

Sæl kæra fjölskylda.

Mikið var gaman að lesa pistilinn þinn. Ekkert gleðilegra þegar barninu gengur svona vel. Sjá allar þessar framfarir hlýtur náttúrulega bara að vera toppurinn af tilverunni. Ef þetta heldur svona áfram þá hlýtur henni að vera batna. Frábært. Ég trúi því að vonin og trúin geti hjálpað ótrúlega mikið. Það hjálpaði mér alveg ótrúlega mikið í mínum veikindum. Ég er svo glöð fyrir ykkar hönd. Þið eruð öll algjörar hetjur.

Bestu kveðjur til ykkar allra.

Sigga Ásgeirsd.

Sigga Ásgeirsd. (IP-tala skráð) 29.4.2007 kl. 08:25

20 Smámynd: Þórunn Eva

vonandi gekk veislan vel í dag :) koss og knús

Þórunn Eva , 29.4.2007 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband