Leita í fréttum mbl.is

Það yrði sólskin ef ég fengi að ráða

Ef ég réði um stund þessum heimi.
Ég léti útrýma söknuði og sorg.

Ef lífið væri svo einfalt og ég fengi bara að ráða öllu BARA í einn dag þá væri ég ekki lengi að lækna Þuríði mína og útrýma öllu slæmu, vávh hvað lífið væri yndislegt þá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

ÉG tek undir þetta með þér Áslaug mín. Sorg og söknuður eru vondar tilfinningar. Kannski nauðsynlegar til að maður þekki gleðina og hamingjuna á móti en sú sorg og sá söknuður sem þú gengur í gegn um dag hvern getur ekki verið hollt fyrir manneskju. Mikið vildi ég að eitthvað væri hægt að gera til að "taka allt það vonda" og ef einhver segði mér hvernig það væri hægt, gerði ég það strax. En ég held bara áfram að hugsa hlýlega til ykkar, kveikja á kertum og senda góða strauma.

Hér er líka algjört kerta veður! 30 cm snjólag yfir öllu hér í Boló, jólin næstum að koma.......

Ylfa Mist Helgadóttir, 25.5.2007 kl. 10:49

2 identicon

Hér er falleg bæn eftir

Gísla frá uppsölum 

Bæn. Þegar raunir þjaka migþróttur andans dvínarþegar ég á aðeins þigeinn með sorgir mínar.Gef mér kærleik,gef mér trú,gef mér skilning hér og nú.Ljúfi drottinn lýstu mér,svo lífsins veg ég finni.Láttu ætíð ljós frá þérLjóma í sálu minni. Gísli frá uppsölum.

 

Góða helgi elsku Áslaug.

Með kveðjur og risa búnti af orku og bjartsýni, Guðrún

Guðrún Bergmann Franzdóttir (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 11:22

3 Smámynd: Elsa Nielsen

Elsku Áslaug - eigðu góða helgi í faðmi fjölskyldunnar! Ég trúi því að litla hetjan þín verði spræ á ný :) Sendi hlýja strauma og KNÚÚÚÚS

Elsa Nielsen, 25.5.2007 kl. 13:08

4 identicon

Hvort ég mundi ekki leggja þér lið við að útrýma sorg, veikindum, söknuði og öllu sem étur fólk að innan og þyngir um tugi kílóa. Manni verðu svo oft hugsað til HANS sem allt getur og öllu ræður að sagt er. Af hverju er hann ekki búinn að útrýma þessum hörmungum öllum?

Sendi ykkur orku og kærleiksstrauma frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 13:33

5 identicon

Sæl Áslaug

Ó, hve það það væri indælt og gott, þú sendir henni Þuríði heilun með þessum óskum þínum og það gerum við líka sem erum að óska henni bata og heilsu. Heilun er miklu sterkara afl en margan grunar og hugarorkan sömuleiðis. Bið Guð að senda ykkur öllum ljós og kærleika og bið sérstaklega um bata og heibrigði fyrir Þuríði Örnu.

Kveðja Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 14:52

6 identicon

Elsku Áslaug og fjölskylda.

Já það væri munur væri það hægt. Vona svo innilega að Þuríður hressist en á ný. Mikið vildi ég óska að eitthvað sé hægt að gera fyrir hana. Ég get með engu móti sett mig í spor ykkkar þó svo að ég reyni. Þið eruð algjörar hetjur og hafið staðið ykkur alveg ótrúlega vel. Ég trúi en á  kraftaverkin og þau gerast, vonum bara að Þuríði hlotnist eitt slíkt. Svo er það vonin, hún getur fleytt manni ansi langt ef maður einu sinni trúir. Ég skil þig samt vel, það eru mikil vonbrigði þegar maður sér að barninu er að fara svona mikið fram og sjá svo afturför. Vona svo innilega að þetta fari allt saman vel.

Bestu kveðjur frá Siggu Ásgeirsd.

Sigga Ásgeirsd. (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 17:23

7 identicon

Elsku hetjur,hef setið bara í nokkra daga,hugsað um og horft á Þuríði hetju á forsíðunni.Hef bara ekkert getað skrifað.Megi sá sem öllu ræður, fara að láta eitthvað gott að gerast fyrir blessaða stúlkuna.Guð veri með ykkur.Óska öllum góðrar helgi og í guðanna bænum farið varlega í einu og öllu.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband