Leita í fréttum mbl.is

Þuríður Arna

Þú ert ljósið sem skærast skín
í mínu lífi, elsku stelpan mín
og ég þakka fyrir þig á hverjum degi
og vona, að lengi enn ég njóta þín megi.

Þú ert lítill engill sem mér var sendur
Þú ert ljósið sem skærast skín
í mínu lífi, elsku stelpan mín
og ég þakka fyrir þig á hverjum degi
og vona, að lengi enn ég njóta þín megi.

Þú ert lítill engill sem mér var sendur
svo fullkomin, að mér fallast hendur
Og ég skal gera mitt besta til að sýna þér
að alltaf þú eigir vísan stað í hjarta mér.

Og hjartað slær núna hraðar í mér
Þakka þér Faðir, sem allt sér
Af lotningu ég fyllist er ég lít hana á
stúlkuna sem Hann, lét mig fá.

Og alltaf er ég lít á þig, svo sæt og fín
þá get ég alltaf undrast, að þú ert dóttir mín
Og þú mátt vita, ef vökva tárin kinn
Að alltaf sé opinn faðmur minn.

Ég man ekki alveg eftir hvern þetta ljóð er en mig minnir að það sé eftir systir vinkonu systir minnar, doltið lang sótt en fallegt er það og mér finnst það eiga svo við fallegustu hetjuna mína.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert flottust

Aðdáandi (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 16:06

2 identicon

Já það er Íris systir hennar Birnu. Minnir að hún hafi samið þetta til dóttur sinnar. Mjög fallegt ljóð

Oddný sys (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 16:11

3 identicon

Þakka þér kærlega fyrir fallegu kveðjuna á blogginu mínu.  Ég hef hugsað til ykkar síðan ég frétti af ykkur frá Ástu Lovísu.  Var ekki lengi að segja pabba að styrkja ykkur.  Auðvitað hlýddi hann mér um leið og það hefði aldrei þurft mig til þó.  Ég veit að þið skiljið hvert annað þar sem þið eruð í svipaðri stöðu.  Ég skil ykkur reyndar líka, en hef verið heppnari þið þar sem litli kúturinn minn var einstaklega fljótur að ná sér. En það er alltaf erfitt að vera foreldri með alvarlega veikt barn.  Ég finn innilega samúð með ykkur og vona að baráttan ykkar gangi sem best.

Hildur Sif 

Hildur Sif Helgadóttir (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 16:43

4 identicon

ofboðslega er þetta fallegt ljóð

Brynja í Vesturberginu (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 17:01

5 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Þetta kom út á mér tárum. Mikið er þetta fallegt.  Gangi ykkur vel.

Ylfa Mist Helgadóttir, 31.5.2007 kl. 18:20

6 identicon

Elsku Áslaug og fjölskylda.

Mikið var þetta fallegt ljóð, ég fékk kökk í hálsinn.  Bið og vona að barátta ykkar fjölskyldu verði farsælli en hennar Ástu Lovísu. Finnst þið öll hetjur.   Kveiki á kerti fyrir Þuríði Örnu.   Gæfuóskir,  Stella A. 

Stella A. (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 18:47

7 identicon

Hæ Áslaug, langaði til að segja þér að þetta ljóð er eftir systur mína, þetta er á barnalandi, á síðunni hennar dóttursystur minnar :) hun samdi þetta þegar litlan hennar var nýfædd

 Kv Birna vinkona Oddnyjar

Birna vinkona oddnýjar (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 22:11

8 identicon

Ljóðið er mjög fallegt og einlægt. Gott að myndatöku var flýtt. Óvissa er slæm og nauðsynlegt að eyða henni ef þess er nokkur kostur.  Sendi Þuríði Örnu bros og bestu óskir. F

F (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband