Leita í fréttum mbl.is

Dekurvika framundan

Dekurvikan mín byrjaði í dag en þessi vika verður algjörlega tileinkuð mér, ég ætla að reyna gera endalaust mikið fyrir sjálfan mig sem ég geri aldrei og mun heldur ekki geta það næstu vikur eða mánuði þar sem ég veit ekki alveg hvernig framhaldið verður hjá Þuríði minni en það verður væntanlega rætt í ágúst eða svo.

Þar sem ég get ekki mætt í ræktina þessar vikurnar vegna kirtlatökunar þá skráði mín sig á golfnámskeið sem byrjaði í dag en það er þessa vikuna en það endar með golfmóti í lok vikunnar, oh boy ég er strax að fara keppa í golfi.  Mhúa verður ekki fögur sjón að sjá en sem betur fer mun það fara fram útá landi thíhí!!  Ég tók Oddnýju systir með mér og við skemmtum okkur ofsalega vel á fyrsta degi þó það hafi komið nokkur vindhögg og svona en það er bara gaman.  Skari vonar líka að ég fái bakteríuna eftir þetta námskeið svo hann geti farið í draumaferðina sína sem er golfferð með konunni.  (verður vonandi kanski í ellinni eheh)

Jú svo ætlar mín að skreppa í klippingu og strípur í fyrramálið en það eru ansi margir mánuðir síðan ég leyfði mér það, hmmm ég er orðin einsog reitt hæna. Dóóhh!!  Í lok vikunnar ætlar mín svo að fara fá sér neglur, úha!!  Veit ekki alveg hvernig ég mun bjarga mér þegar þær koma thíhí, er þessi týpa sem nagar alveg niður í skinn og get ekki hætt.  Aaaarghh!!  En þetta ætlar mín að leyfa sér að gera fyrir afmælispeningana sem "frúin í Hamborg" gaf sér þar sem ég finn engin föt en vonandi finn ég þau bara í haust, get alveg beðið er hvorteðer ekki vön að hanga í kringlunni að versla mér föt.  Þannig í staðin dekra ég við mig, oh mæ god hvað ég er spennt.

Annars er hálsinn að koma til, er farin að borða en get samt ekki alveg öskrað almennilega hemmhemm!!  Ekki það að ég þurfi þess nokkurntíman en það er smá sársauki í hálsi en ég er hætt á verkjalyfjum og farin að borða sem er hið besta mál.

Svefninn er samt ekki að sama máli, skil þetta ekki?

Það er miklu léttara yfir mér þessa dagana en það var kanski vegna þess við fengum þessar góðu fréttir á föstudaginn að allri meðferð verði ekki hætt þökk sé Boston.  Jú og líka vegna þess að það líður að sumarfríi sem ég hlakka endalaust til og mín ætlar líka að tileinka þessari viku mig.  Vávh hvað það verður gaman að gera eitthvað fyrir sjálfan sig þannig næst á dagsskrá verður vika tileinkuð mér og Skara saman :)  ...eða helgi, hmm það er reyndar ákveðin helgin sem Þura tengdó ætlar að taka að sér öll börnin, vávh ég hlakka ennþá meira til þeirra helgar heldur en þessara viku.

Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar sem þið hafið verið að senda okkur einsog ég hef alltaf sagt þá getiði ekki ímyndað ykkur hvað þær gera mikið fyrir mig.

mússí múss
Slauga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Njotid vikunnar og helgarinnar kaeru hjon. Thetta eru svo sannarlega dasamlegar frettir!!! Her goladi eg eins og gedveik thegar eg las thetta og fjolskyldan kom a hardahlaupum til ad sja hvad eiginlega gengi ad mer!!!

Gud blessi Bostonska lækna.....segir madur bostonska???

Ylfa Mist Helgadóttir, 25.6.2007 kl. 21:05

2 Smámynd: Þórunn Eva

það er svooo gaman að lesa bloggið þitt þessa dagana þú ert svooo glöð og ánægð...

hafðu það gott skvís koss og knús....

p.s gangi ykkur vel á fimmtudaginn...

Þórunn Eva , 25.6.2007 kl. 21:55

3 identicon

Rétt þetta dekur dekur og njóttu þess mín kæra.Mæli með að þú bjóðir Skara til Grundarfjarðar og gistir þar og TEKUR hann svo í golfinu , rétt fyrir utan Grundarfjörð.Klassavöllur og fínt.Ég skal koma því á koppinn ef viljið.Plús vona að börnin kíki í strætó með ömmu sinni.Knús á Boston lækna og alla. 

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 22:02

4 identicon

Sæl Áslaug

Mikið er GAMAN að lesa bloggið þitt núna. Frúin að fara á golfmót með gervineglur og nýsnyrt um höfuðið. Það er alveg frábært að þú skulir ætla að huga smá að sjálfri þér þessa viku, því eins og þú segir þá er stífur tími framundan og ekki miklar líkur á dekurvikum, (kanski dekurdögum). Þuríður Arna og hennar heilsa verður stóra verkefnið næstu mánuðina (eins og verið hefur í langan tíma) og þá verður þú að taka á öllu þínu.  Mér finnst reyndar allt í lagi þó öskrin vanti fyrst matarlystin er að koma. Svefninn kemur, það er ég viss um. Það er nefnilega líka sjokk að fá GÓÐAR FRÉTTIR hversu einkennilegt sem það er. Ég fékk sjálf MJÖG GÓÐAR FRÉTTIR í síðustu viku (ekkert heilsutengt) og ég missti gjörsamlega fótanna í nokkra daga, snérist bara í hringi inn í mér.

Njóttu vel góðu fréttanna, dekurvikunnar, sumrafrísins og alls þess góða sem lífið býður. Kveðja Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 00:24

5 identicon

Njóttu þín, þú átt það alveg skilið :)

Ragga (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 00:26

6 identicon

Geggjað svona á þetta að vera, það er sem sé engin tilviljun að það er bongóblíða þessa vikuna meistarinn hefur ákveðið að nýju golfmeistarinn fengið blíðu á mótinu

Njóttu þín í botn og fáðu lit á kroppinn. Góða skemmtun.

kv Sigga

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 11:25

7 identicon

Mikið er gaman að lesa að þú ætlir að nota vikuna til að dekra við sjálfa þig. Njóttu vel :) 

Þórunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 12:12

8 identicon

Frábært að þú ætlar að dekra svolítið við sjálfa þig  Þú átt það svo skilið og bara verður líka að gera eitthvað gott fyrir sjálfa þig til að halda andlegu og líkamlegu þreki. Njóttu vikunnar mín kæra

Óla Maja (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 13:02

9 identicon

Frábært Áslaug mín svona góðar fréttir. Hugsaðu vel um þig og njóttu þess að láta dekra við þig. Hálsinn verður aftur góður en þetta tekur allt sinn tíma en það er bara ekkert gaman að bíða eftir því "en það kemur"

kv Unnur

unnur Einarsdóttir (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 13:55

10 Smámynd: Þórunn Eva

hæ babe :) gangi þér vel í golf tíma í dag..........

Þórunn Eva , 26.6.2007 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband