Leita í fréttum mbl.is

Hálf manneskja og geislar

Þuríður mín Arna er hálf ómögleg þessa dagana en ástæðan fyrir því er að Oddný Erla okkar er í sumarbústað hjá ömmu og afa og hún er bara hálf manneskja útaf því.  Þetta minnir mig á þegar fólk er að tala um tvíbura sína þegar annan vantar þá verður hinn svo ómöglegur, en hún vaknar á morgnanna og spyr eftir ODdnýju og vill fara til hennar eða vill að hún komi heim.  Þannig þetta verður ekki gert alveg í bráð ekki hægt eð gera Þuríði þetta, Oddný hefur samt ofsalega gott af þessu. Skreppa í burtu og vera laus við veikindatal og njóta þess að vera í dekri hjá ömmu og afa, þessi veikindi fara ofsalega illa í hana sem er ekki gott.  Hún er einsog engill þegar hún fer eitthvað í burtu eða í leikskólanum en tekur þetta út hérna heima á mömmu sinni þannig kanski er næst á dagskrá að við mæðgur skreppum í burtu og dekrum við hvor aðra. 

Geislameðferðin er hafin og svæfingin fer ekkert ofsalega vel í Þuríði sem er held ég í fyrsta skipti, var orðin mjög pirruð og leið þegar leið á daginn í gær.  Er orðin mjög kvíðin ef hún mun alltaf fara svona í hana það er kanski í lagi á meðan það er "bara" það sem er að pirra hana.

Annars er andrúmsloftið uppá geisla allt annað en þegar við vorum þar um jólin síðustu, veit nú ekki afhverju kanski vegna þess það er farið að tala meira um krabbamein eða veikindi hjá fólki.  Fólk er orðið miklu opnara með þetta umræðuefni enda engin skömm að greinast með krabbamein.  Einsog ég hef sagt en þegar við vourm þarna um jólin þá sat fólk niðurlútið, leit varla upp, bauð ekki góðan daginn þegar maður mætti á svæðið en núna er þetta allt annað og miklu betra að mæta á svæðið þí ég myndi vilja sleppa því einsog allir hinir sem eru þarna.  Fólk er glaðlegra að sjá og það liggur við að það syngi "góðan daginn" þegar það kemur á staðin og núna er fólk líka að spjalla saman sem er mjög skemmtilegt að sjá. 

Er einmitt búin að "kynnast" tveimur well reyndar þremur þar sem eiginkona eins mætir alltaf með honum þarna niðrá geisla og gaman að heyra hvað fólk er bjartsýnt á lífið þó útlitið sé slæmt.  Theodór mætir með okkur Þuríði niðrá geisla og búin að eignast sér einn "afa" þarna sem finnst ofsalega gaman að hann sé svona glaður  þegar þeir hittast og fyrsta sem Theodór segir er "afa" eheh.  Bara gaman!!  ÞEssi "afi" er ofsalega glaður, hress og bjartsýnn á þetta allt saman þó hann sé með mjög slæmt krabbamein og mér finnst ofsalega gott og gaman að spjalla við hann um daginn og veginn og veikindi hans og Þuríðar, maður fær eitthvað svo gott pepp að tala við svona bjartsýnis fólk. 

Fyrir hálfu ári síðan hefði fólk sem væri að mæta þarna á svæðið vegna veikinda sinna ekki verið að spjalla svona við mann um veikindin sín, þvílík breyting á fólki og kanski er það vegna umræða sem hafa farið af stað útaf öllu þessi fólki sem er að blogga um sína baráttu.  Mjög gott!!  Þetta hefur allavega alltaf hjálpa mér, ég hef alltaf verið mjög opin vegna veikinda Þuríðar minnar þó ég sé mjög lokuð manneskja og hleypi ekki hverjum sem er að mér en þá er þetta mín besta hjálp.  Netið er þvííkur bjargvættur að eiga ykkur öll að sem peppa mann upp þegar maður er langt niðri er þvílíkur draumur í dós, hvar væri ég netsins og ykkar?  Púffhh langar ekki að ímynda mér það.

Ég hef kynnst ofsalega góðu fólki í gegnum veikindin hennar Þuríðar minnar sem ég hefði frekar viljað sleppa því það er bara ein ástæða fyrir því að ég hef kynnst þessu fólki en þá er ég samt mjög þakklát.  Einsog við Skari höfum oft sagt þá hefur raðast svo mikið af góðu fólki í kringum okkur gegnum veikindin hennar Þuríðar sem er ómetanlegt, knús til ykkar allra.

Farin að horfa á Latabæ með Þuríði og Theodóri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð bara frábær!  Knús á Þuríði.  Nákominn ættingi minn er að byrja í geislum fljótlega og mér léttir svo að heyra að andrúmsloftið sé svona gott.  Annars er þessi manneskja sem ég er að vísa í, með góða skapið og bjartsýnina að leiðarljósi.  Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.7.2007 kl. 11:37

2 identicon

Þið eruð líka svo frábær og það geyslar af ykkur. Þið eruð með svo mikla og góða nærveru að það væri skrítið ef ekki svona mikið að góðu fólki laðist að ykkur. Þið eruð algjörir englar.

Ég er hálf manneskja núna þessa dagana og ég skil Þuríði svo vel þegar það vantar eitthvað sem manni er svo kært.

Vonandi að svæfingin fari betur í hana

STTTTÓÓÓRRRTT knús til ykkar allra

Luv Magga K

Maggak (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 12:02

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.7.2007 kl. 14:49

4 identicon

Æi elsku Þuríður mín,ég vona að þetta fari batnandi frekar en hitt,hlýtur að vera álag á líkamann að fara í svæfingu daglega,en þú ert svo rosalega dugleg að það er leitun að öðru eins.Ég hugsa stöðugt til ykkar og dáist alltaf jafn mikið af ykkur öllum,þið eruð hetjur í mínum huga og þetta er alls ekki auðveld barátta sem þið eruð að há.En guð leiðir ykkur ávallt og ég bið um kraftaverkið fyrir þig litla ljúfa stelpa.Baráttukveðjur og takk fyrir kveðjuna Áslaug mín

Björk Andersen (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 16:06

5 identicon

sæl verið þið,

                       whuff !! ég vona að það verður lettari hjá þessu lítla engill og svæfingin mun fara betur í hana það sem eftur er, það hlýtur að vera afskaplega erfitt að fara í gegnum slíkt meðferð í svona langan tíma.Það er bara guðs viljandi að það verður kraftaverk úr þessi og hún mun ná fullan bata .Ég bið guð að styrkja og gefa þér kraft til að takast á við þetta og litla rúsina þínar.Það er bara frábært hugmynd að fara í smá fríi með Oddnyju og láta dekra aðeins við ykkar ,ég held að þið eigið það alveg skilið.

Guð gætu ykkar og ganga ykkar sem allra best í þessu baráttu

Kær kveðja Dee

Dolores Mary (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 16:24

6 identicon

Kæra fjölskylda

Eins og svo margir aðrir þá hef ég fylgst með baráttu ykkar og dugnaði, það er frábært að finna kraftin frá ykkur.

Ég læt loga kerti á síðunni hennar Þuríðar litlu með bæn um styrk og bata.

Vegni ykkur vel.

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 23:35

7 identicon

Þið eruð langbest.Kv

halldor johannsson (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 23:45

8 identicon

Gangi ykkur vel í baráttunni og endilega að fara í dekurferð með oddnýju ....held að þið hafið báðar mjög svo gott af því =)

bestu baráttukveðju frá einni sem fylgist með öllum blogghetjunum =)
og þekkti Hildi Sif...

Helga (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 17:46

9 Smámynd: Hugarfluga

Áslaug, mig langar bara til að segja þér hvað ég dáist að ykkur og hugsa oft til ykkar. Börnin ykkar eru lánsöm að eiga svona vel gerða foreldra.

Hugarfluga, 25.7.2007 kl. 19:34

10 identicon

Frábært að heyra að allt gengur amk. þokkalega. Hetjan í eins góðu standi og hægt er að búast við miðað við það sem hún er að ganga í gegn um.

Skiljanlegt en auðvitað ekki nógu gott að hún er að kvarta yfir því að Oddnýju vantar, því eins og þú segir réttilega þarf Oddný frí úr sínu vanalega umhverfi.

Hetjan ykkar og okkar allra sem fylgjast með henni, gæti verið orðin svolítill harðstjóri á sína familíu og svo sannarlega ekki að undra. Það þarf að reyna að andæfa en betra um að tala en í að komast. Ég býst við að ef ég ætti hana gerði ég ALLT sem hún bæði um.

Megi svo allar góðar vættir vera allan hringinn í kring um ykkur.

með kærri kveðju frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 21:25

11 identicon

Áslaug ég vil fá að hrósa þér hvað þú ert dugleg og hreynskilin á blogginu þínu þetta hlítur að vera alveg frábært fyrir þig að geta tjáð þig svona því betra er að segja steininum en engum.ef þessi tækni hefði nú alltaf verið til hvort maður hefði ekki nýtt sér hana og fl bara haltu áfram að vera svona opin hér það bara gerir gott og þetta með Oddnýju og litla kút þó þetta sé erfitt á meðan veikindunum stendur vertu viss þau koma sem mjög sterkar persónur á seinni árum og kunna að meta lífið á allt annan hátt en þau börn sem hafa ekki þurft að lifa með veikindum í fjölskyldu.En ég vona að meðferðin eigi eftir að gana vel hjá Þuríði sem og gerir þar sem hún hefur svona sterka og jákvæða með sér.Hef ykkur með í mínum bænum og huga

kveðja Ellen 

Ellen (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband