Leita í fréttum mbl.is

Reykjavíkurmaraþon

Eins og allir vita er Reykjavíkurmaraþon Glitnis um helgina og hafa margir hlauparar heitið á góð málefni.  Meðal þeirra málefna sem hvað flestir heita á er félagið okkar (SKB) og erum við rosalega ánægð með hvað það eru margir þar sem við þekkjum, ættingjar og vinir.  Nú vil ég skora á ykkur sem þetta lesið að fara á heimasíðu Glitnis og velja einhvern hlaupara til að heita á.

Allir sem á annað borð ráða yfir greiðslukorti og tölvu geta heitið á einhvern hlaupara (getið valið einhvern sem þið þekkið eða bara einhvern sem hleypur langt J). Hið eina sem þarf að gera er að smella nákvæmlega hér og staðfesta greiðsluheitið. Annað hvort skrá menn nafn hlaupara og kalla það fram eða velja rétta félagið til að finna hlauparann. Síðan rekja menn sig áfram til að ganga frá áheitaskráningu. Þetta er skíteinfalt mál og ekkert annað að gera akkúrat núna en að skella sér í málið.

Áheitin renna óskipt til viðkomandi líknar- eða góðgerðarfélags. Mæti hlaupararnir ekki til hlaups eða komist ekki á leiðarenda verður upphæðin hins vegar ekki innheimt af greiðslukortareikningnum, það dugar því ekki annað en koma í mark til að félögin fái sitt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Linda Óladóttir

Ég mun heita á félag í þessu hlaupi og skora á sem flesta að gera það sama

Guðný Linda Óladóttir, 15.8.2007 kl. 16:13

2 Smámynd: Þórunn Eva

flott af þér að setja þetta hérna inn skvís... :)

Þórunn Eva , 15.8.2007 kl. 16:22

3 Smámynd: Elsa Nielsen

Ég er búin að heita á Gunnu frænku sem æltar að hlaupa 10 km til styrktar SKB - þetta er frábært framtak ;)

KNÚÚÚS

Elsa Nielsen, 17.8.2007 kl. 15:26

4 identicon

Ég ætlaði að fara 3 km en tók áskorun frá vinnufélaga um að bæta um betur og taka 10, þá fengi SKB hærra framlag. Sendi áskorun á vini, vandamenn og valda viðskiptavini um áheit og viti menn einn góður viðskitpavinur vildi gera betur en Glitnir sem borgar 3.000 kr. fyrir hvern km. sem starsmenn hlaupa! Hann hét á mig 6.000 kr. pr. km. FLOTTASTUR. Það var aldrei spurning hvaða félaga ég ætlaði að styrkja.   Kærar kveðjur - Guðrún (Gunna frænka)

Guðrún Harðardóttir (IP-tala skráð) 18.8.2007 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband