Leita í fréttum mbl.is

Fréttir dagsins!!

Vorum að heyra í doktorunum og það verður enginn fundur í vikunni en í staðin munu þeir funda um stöðu mála og við mætum á fund með þeim í næstu viku væntanlega.  Þuríður mín mun fara í myndatökur og svæfingu á þriðjudaginn en við búumst ekki við neinum niðurstöðum þar eða helst vill ég ekki fá neinar niðurstöður því þá veit ég allavega að það er ekki neitt slæmt að ske.  Æxlið er væntanlega mjög bólgið eftir geislana þannig það ætti að vera erfitt að sjá hvort væri eitthvað í gangi nema það væri búið að stækka mega mikið þannig það er ósk um ENGAR niðurstöður, takk fyrir!!  Væntanlega eftir myndatökurnar og fund með læknum (í næstu viku) er búist við að töflumeðferð mun hefjast, ég veit eiginlega ekkert hvernig hún virkar þannig ég get ekkert meira sagt um það.  Æjhi ég er orðin frekar rugluð í þessu meðferðartali, kanski að gera þetta, kanski hitt og kanski ekkert þannig ég bíð bara eftir fundinum og bíð eftir að heyra um þetta en þetta er allavega næst á dagsskrá.

Theodór minn er alveg byrjaður á leikskóla, litli mömmupungsi minn og gengur betur en ég hélt ehe.  Þykist alltaf eiga svakalega bágt þegar mín er að kveðja hann en þetta er allt að koma hjá drengnum, hefur svooooo gott af þessu.  Held að mamman eigi meira bágt við þessa breytingu en hann, dóóhh!!

Farin að hlakka mega mikið til næstu helgar, oh mæ god!!  Við Skari í aflsöppun og skemmtun alla helgina.  Segi frá því síðar........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Mömmuhjartað á alltaf erfitt þegar börnin eiga í hlut.  Var í fyrra með yngi prinsinn í aðlögun og hann var bara hissa á því að mamma þyrfti að vera með honum.  Þið fjölskyldan eruð öll hetjur í mínum augum.

Bergdís Rósantsdóttir, 27.8.2007 kl. 17:54

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Hetjur hversdagsins...   Ég ætla biðja fyrir ykkur.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.8.2007 kl. 21:01

3 identicon

Sæl kæra Áslaug

Það er mikið í gangi eins og vant er og ekki gott að henda reiður á hvað er næst. Eru þetta töflurnar sem þú talaðir um nýlega sem gætu gert kaftaverk eða ekkert. Þetta tekur svaka lega á að hafa þennan sjúkdóm á heimilinu og vera stöðugt að upplifa óvissu.

Það besta sem ég hef heyrt lengi er að þið Skari ætlið að eyða helginni saman bara tvö. Guð veri með ykkur öllum. Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 21:15

4 identicon

Hæ elsku Slauga mín..oh hvað ég skil þig,að bíða eftir niðurstöðum er einhver erfiðasti tíminn sem ég hef upplifað,þannig að mikið skil ég ykkur.En þið eruð hetjur í mínum augum og takk fyrir að vera alltaf svona einlæg og heiðarleg,þetta virkar nefnilega fínt ef maður segir bara sína meiningu.En takk fyrir kveðjurnar og ég fylgist vel með ykkur og bið hinn háa herra að gefa ykkur kraftaverk.Þetta er töff og ég held að þetta hljóti að vera það erfiðasta sem nokkur getur tekist á við,það er að horfa upp á börnin sín veik og geta lítið sem ekkert gert,en þið eruð svo dugleg að það er aðdáunarvert..hugsa til ykkar með galopið hjarta og full af kærleika..knús,knús töffarinn

Björk töffari (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 00:50

5 identicon

Góðar fréttir í dag sem er FRÁBÆRT, þó skuggi sé yfir. Ég var pínu hissa að litli kallinn væri að byrja núna í leikskólanum, fannst einhvern veginn hann hefði verið byrjaður fyrr, en aðvitað er hann svo ungur. Skil vel að mamman eigi pínu bágt í þessu. En þessi mamma er sko engin venjuleg mamma og hefur reynt það sem, sem betur fer fáir þurfa að reyna. Þannig að ég spái vel fyrir þessu.

Megi sólin skína á ykkur öll í dag og ALLA daga.

Með kærri kveðju frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 09:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband