Leita í fréttum mbl.is

Takmarkalaust ég trúi á þig

Það er varla nokkur heppnari en ég.
Þessi tilfinning er ævintýraleg.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.


Vorum að fá hringingu frá spítalanum rétt í þessu.  Það var einhver röngenlæknir sem að sjálfsögðu skoðaði myndirnar og mældi þær við gömlu eða þær síðustu sem voru teknar af henni sem er kanski ekki frásögufærandi en ég held að hann sé ekki búinn að vera mikið í Þuríðar málum.  Hann einmitt spurði þá skemmtilegu spurningu þegar hann sá myndirnar (en síðustu voru teknar í byrjun sept) hvort hún hefði farið í aðgerð frá síðustu myndatökum.  Hmmmm og hvað merkir það? Grin  Ég brosi allavega hringinn og græt gleðitárum núna, það hefur sem sagt minnkað (skroppið saman)mjöööög MIKIÐ á tæpum mánuði, haldiði að sé?  Hún Þuríður mín er alltaf að koma meira og meira á óvart sérstaklega þeim uppá spítala, læknarnir vita ekki allt sem betur fer.

Líðan hennar er aðeins skárri í dag en í gær, erum strax búin að minnka krabbalyfin hennar og vonandi verður hún ekki svona lyfjuð marga daga í viðbót.  Einsog læknarnir okkar í Boston hafa alltaf sagt við okkur ef æxlið mun halda áfram að skreppa saman þá fær hún að fara í aðra aðgerð (eða þá þora þeir að gera aðra aðgerð á henni) og við skulum bara vona svo heitt og innilega að það haldi áfram á þessari braut. 

Erum ennþá að bíða eftir fréttum frá Boston, verst að þeir eru ekki með þessar nýjustu myndir í höndunum en kanski við heimtum að doktorarnir okkar sendi þeim þær líka?

Vávh hvað það er mikill léttir að fá þessari fréttir, líður svo vel í hjartanum.  Veit allavega ástæðuna fyrir þessum slappleika og vonandi verður hún fljót að hrista hann af sér en ekki hvað?  Núna græt ég ekki af sársauka, bara endalaus gleði.

Best að knúsa kraftaverkið mitt og mestu hetju í heimi.  Knús líka til ykkar sem hugsið svona fallega til okkar, megið alveg kveikja á fleiri kertum tilefni dagsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:06

2 identicon

Frábærar fréttir og gott að við hin getum sent ykkur styrk og góðar hugsanir.  Einlægni þín og umhyggja gefur okkur líka kraft inn í daginn, mundu það !

Eigið þið góðan dag fallega fjölskylda og við skulum halda áfram að tendra ljós til ykkar.

með kærleikskveðju 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:08

3 identicon

Innilega til hamingju með góðar fréttir.  Hef aldrei kvittað fyrir innlit mín en fylgist með og reyni að senda góða strauma til ykkar.  Fáið endilega læknana til að senda nýju myndirnar til Boston.  Ég kveiki á kerti fyrir ykkur.

Helga

Helga (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:16

4 identicon

Frábærar fréttir, Þú átt duglegustu stelpuskottuna í öllum heiminum :)
Knús á ykkur
kv. Kolla

Kolla (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:20

5 identicon

Bestu kveðjur til ykkar allra

Stína(ókunnug) (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:20

6 identicon

Frábærar fréttir  knús til ykkar

K (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:27

7 identicon

Elsku fjölskylda

Æðislegar fréttir, þið eigið þær svo sannalega skilið.

Vonandi líður ykkur öllum betur, mér gerir það allavega

kv. Anna

Anna (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:30

8 identicon

Elsku fjölskylda.

Þetta eru frábærar fréttir,innilega til hamingju.

Vona að Þuríði fari að líða betur , hún er sannkölluð hetja þetta barn:)

Þið eruð frábær og standið ykkur eins og hetjur líka.

kveðja

Silla Karen 

Silla Karen (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:47

9 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Mig langar að byrja á að óska ykkur til hamingju með þessar fréttir.

Ég er að koma hér í fyrst skipti en ég sá fréttina þegar þið fóruð í legoland Þuríður litla er mikil hetja ég á eina skottu fædda 2002  byð góðan guð að styrkja ykkur á eftir að koma og fylgjast meira með ykkur.

Kveðja Heiður. 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 26.9.2007 kl. 11:06

10 identicon

Jiminn. Það hríslaðist um mig sæluhrollur og ég fékk tár í augun við að lesa þetta! Gangi ykkur sem allra best, áfram hetjur!

Oddný (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 11:12

11 identicon

Elsku Áslaug og Óskar....þettu eru yndislegustu fréttir sem ég hef heyrt í langan tíma og ég hef alltaf sagt að snúllan ykkar er superhetja númer 1 og hún er endalaust að sanna það.Til hamingju með þetta elskurnar og megið þið njóta dagsins og ég verð áfram dugleg að kveikja á kertunum hennar og biðja fyrir ykkur.Knús á línuna..baráttukveðjur

Björk töffari (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 11:26

12 identicon

Hún Þuríður Arna er lítil hetja

þarf við krabbann sinn að etja

en hún kemur alltaf okkur á óvart

þegar okkur finnst allt orðið svart

þið eruð í bænum mínum

Þvi kraftaverkin

asa (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 11:35

13 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Til hamingju með þessar frábæru fréttir  

Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.9.2007 kl. 11:38

14 identicon

Innileg til hamingju með þessar frábæru fréttir. Mér er búið að vera endalaust mikið hugsað til ykkar að undanförnu og auðvitað fylgist ég með. Ég er bara með gæsahúð af gleði og tár í augum:) Knús á línuna. Kær kveðja Þórunn (ókunnug)

Þórunn (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 11:41

15 Smámynd: SigrúnSveitó

Vá, yndislegt! Ég klökknaði við að lesa þessa færslu.  Þrátt fyrir að við þekkjumst ekki neitt þá eigið þið stórt pláss í hjartanum mínu.  

Njóttu dagsins með hetjuskottinu ykkar.  Þið eruð reyndar öll miklar hetjur, að mínu mati.

Ljós&kærleikur af Skaga... 

SigrúnSveitó, 26.9.2007 kl. 11:46

16 identicon

Yndislegar fréttir!

Njótið dagsins ungu hetjur.

Kærleikskveðjur,

Ragna (ókunn)

Ragna (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 11:49

17 identicon

Mikið er ég GLÖÐ fyrir hönd ykkar yndislega fjölskylda

Auðvitað gerið þið kröfu um að nýjustu myndirnar verði sendar til Boston, annað kemur ekki til greina. Ég teki ykkur öll í fangið og faðma ykkur að mér í huganum. Svo er dansað og sungið.

Guð blessi ykkur og kærar þakkir guð fyrir þessa miklu hjálp. Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 11:56

18 identicon

Sæl og blessuð,

                             wow !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!hvað það er frááááááááábært að heyra þetta ,var alveg með í hjartanum í gær mér leið svo illa fyrir ykkur hönd, ég var alltaf að hugsa til ykkar.Ný dagur í dag nýtt byrjun og hver veit að þessi kraftaverkastalpa fái að fara í aðgerð fyrir rest og verð laus við krabbameinið að eylífu, wow það þýður ekkert annað an að stefna á því .Til hamingju og til lukku og bara besta baráttu kveðju til ykkar .Þetta er aldeilis frábært .ÉG ER FARIN TIL AÐ KVEIKJA Á FULLT AF KERTUM OG BIÐJA EINS OG ÉG GET .hAFIÐ ÞAÐ GOTT Í DAG , ÞETTA ER BÚIN AÐ BJARGA ANNARS FRÁBÆRT DAGINN .Kær kveðja Dee.

Dolores Mary (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 12:01

19 identicon

Græt gleðitárum með ykkur, mér finnst ég hafa fengið stóran happdrættisvinning hvað þá heldur þið og litla Þuríður hetjan ykkar. ,egi allir ljóssins englar vaka yfir ykkur alla daga og nætur. kveðja kona

kona að norðan (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 12:52

20 Smámynd: Guðný Linda Óladóttir

Kæra fjölskylda til hamingju með þessar frábæru fréttir

Guðný Linda Óladóttir, 26.9.2007 kl. 12:56

21 identicon

Frábært að heyra :) kv. oddný

Oddný (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 13:02

22 identicon

Kæra fjölskylda

 Þetta voru frábærar fréttir. Vona bara að Þuríður nái að koma öllum á óvart með áframhaldandi bata.

Kv.

Brynja Hrönn ókunnug 

Brynja Hrönn Jónsdóttir (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 13:09

23 identicon

Hetjan sanna.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 13:09

24 identicon

Húrra,húrra,húrra og svo AUÐVITAÐ HÚRRA.

Þetta er bara FRÁBÆRT að heyra. Ég var orðin skelkuð á þessum verkjafréttum af okkar stúlku.

En eins og Bjöggi söng um árið "Ævintýri enn gerast" svo sannarlega sem betur fer.

Sendi ykkur endalausar SAMGLEÐSYKKURKVEÐJUR.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 13:17

25 identicon

Þetta lýsir öllum mínum tilfinningum núna ,hún snúlla er sko alveg að rúlla þessu upp,það er hennar dugnaður að berjast áfram,hún vill jafn mikið vera áfram hjá ykkur, og þið að hafa hana,GUÐ og allir hans verndarenglar vita það líka,þetta er svo frábært, yndislegar knúsi knús kv.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 13:25

26 identicon

Það er nú ekki oft sem að verkir er jákvæðir. Yndislegt að heyra þessar góðu fréttir og eins og þú segir stelpan er stöðugt að koma á óvart :) je hún er náttúrulega mesta hetjan í heiminum.

Njótið góðu fréttana saman og við gerum það líka, höldum áfram að biðja og vona

Kv frá mömmu sem er ekki sama

Guðrún (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 15:52

27 identicon

Ó mikið er yndislegt að heyra þetta - ég græt gleðitárum með þér! Góður Guð veri með ykkur!

Kv. Valgerður

Valgerður (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 16:01

28 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Dásamlegar fréttir. Ég brosti hringinn þegar ég las þetta. Elsku litla hetjusnúllan kemur sífellt á óvart.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.9.2007 kl. 16:19

29 identicon

Kæra fjölskylda!

Ég sit hér með gæsahúð niður í tær. Mikið eru þetta yndislegar fréttir. Ég kíki daglega hér inn til að fylgjast með líðan Þuríðar Örnu en hef aldrei kvittað fyrr en nú, en hún, ásamt ykkur er í huga mér daglega og í mínum bænum.

Guð blessi ykkur ávallt.

Hanna, hafnfirðingur (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 16:36

30 Smámynd: Ragnheiður

Vá en frábærar fréttir ! Vonandi vonandi verður svo hægt að skera þetta burt !

Innilega til hamingju með þetta.

Ragnheiður , 26.9.2007 kl. 16:43

31 identicon

Ó hvað ég varð glöð þegar ég las þetta, brosti allan hringinn og fékk hlýju í hjartað. Hún Þuríður Arna er greinilega búin til úr sterkari kjarna en margir

Meiriháttar fréttir!!!

Elísabet (ókunnug) (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 17:39

32 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Dásamlegt. Hvað ég samgleðst ykkur!!!

Ég hugsa á hverjum degi, oft á dag: Þuríður Arna er alheilbrigð í höfðinu. Þetta endurtek ég í fullkominni einbeitingu, með myndina af henni í huganum. Þetta er mín leið til að laða góða heilsu til hennar.

Ást og knús frá Bolungarvík, Ylfa

Ylfa Mist Helgadóttir, 26.9.2007 kl. 17:47

33 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Indislegar fréttir.  Samgleðst ykkur innilega.

knús og kram

Bergdís Rósantsdóttir, 26.9.2007 kl. 18:35

34 identicon

FRÁBÆRAR FRÉTTIR!! Þekki ykkur ekkert en ég samgleðst ykkur innilega. Finnst ég þekkja ykkur í gegnum bloggið og les það daglega. Hún Þuríður er ótrúleg og á eftir að sigra þessa baráttu ég er viss um það ;)

Baráttukveðjur

Gígja (ókunnug) (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 18:45

35 identicon

Til hamingju elskurnar- yndislegustu fréttir í öllum heiminum í dag - Nú verður þetta að halda áfram að minnka svo að sé hægt að skera aftur-  Guð veri með  ykkur

Þórdís tinna (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 18:50

36 identicon

þetta er töfrum líkast, hér hoppuðum við og klöppuðum saman lófunum. Til hamingju elskurnar. Auðvitað fer hún í aðgerð og þetta verður tekið í eitt skipti fyrir öll. Nú hugsa ég í hverju kvöldi að Þuríður sé alheilbrigð, ég las bókina Leinarmálið og ákvað að nýta þá aðferð sem er sagt frá þar. Skaðar örugglega ekkert

Ég veit hver verður sigurvegarinn í þessu máli, efast ekki eitt augnarblik.  

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 19:14

37 Smámynd: Bergþóra Guðmunds

yndislegt,,,til hamingju fallega fjölskylda..Guð er góður

Bergþóra Guðmunds, 26.9.2007 kl. 21:21

38 identicon

Finn engin orð til að lýsa þeim regnboga gleðitilfinninga sem streymdu yfir mann við lestur þessarar færslu.  Þekkjum ykkur ekki neitt fyrir utan þetta eina skipti sem við fengum að koma til ykkar litlum gjöfum frá Nadíu en við höfum fylgst með síðunni ykkar daglega frá því við heyrðum fyrst af veikindum litlu fallegu dóttur ykkar.  Þið hafið verið í bænum okkar og hugsunum.  Þú, Áslaug hefur gefið sálu þína hérna og leyft öllum að taka þátt í þínum dýpstu og erfiðstu átökum og get ég ekki annað sagt að þú hafir með einlægni þinni gefið öllum skilning og innsýn í þann veruleika sem við flest gleymum að þakka fyrir að við lifum ekki.  Litla stelpan ykkar er hetja og svo sannlega ótrúleg sál, það snertir mig ennþá minningin þegar hún tók utan um mig, bláókunnga manneskju þegar ég kom í mýflugumynd heim til ykkar með pakkana.  Hún snart hjarta mitt þá og mun ávallt eiga stað þar.

Þið eruð ótrúleg fjölskylda og það er heiður að hafa fengið að fylgjast með ykkur í baráttu ykkar og nú er bara að um að gera að allir haldi áfram að biðja fyrir litlu fallegu stúlkunni ykkar og þannig haldið áfram þessu yndislegu þróun sem þetta hefur tekið nú.

Baráttukveðjur kæra fjölskylda

Lilja 

Lilja, mamma Nadíu Lífar (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 22:06

39 identicon

Ji :D Ég veit ekki hvað ég á að segja - Var að lesa þessar tvær nýjustu færslur í einu og veit eiginlega ekki hvorri ég felldi fleiri tár yfir - tárin að vísu af sitthvorum toganum.

Haldið áfram að berjast

Súsanna (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 22:16

40 identicon

Æ hvað manni hlínaði um hjartarætur að lesa um þessar niðurstöður í dag hún er algjört kraftverk hún Þuríður og svona ætlar hún að halda áfram innilega til hamingju með þennan sigur.Hef ykkur í bænum mínum

Ellen (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 22:16

41 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Til hamingju með þessar æðislegu fréttir

Kerti til ykkar allra

Kjartan Pálmarsson, 26.9.2007 kl. 22:27

42 Smámynd: Linda

Æðislega fréttir!!

Linda, 26.9.2007 kl. 22:35

43 identicon

Frábært að lesa að allt gengur vel, hún Þuríður er ótrúleg.  Baráttukveðjur.  Mæja

María Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 23:01

44 identicon

Kæra fjölskylda er ekki sagt að eftir því sem lyfin geri þig veikari þess betur eru þau að virka er það ekki bara að sýna sig hjá þessu yndislega kraftaverki ykkar. Gangi ykkur allt í haginn þið yndislega fjölskylda.

ókunnug Eyrarbakka (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 23:19

45 identicon

Yndislegar fréttir, 

Baráttukveðjur úr Firðinum C",)  

Hjördís Ósk (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 23:48

46 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

elsku elsku tið öll   ég er svo glöð !

Kertin hennar Turíðar eru lang komin í 500 :) svona er samhugurinn með ykkur endalaust gaman að fá svona fréttir rétt fyrir svefninn. Get ekki ímyndað mér hvernig ykkur líður, en ég er syngjandi kát. Knús á liðið.

Skagakveðja. Gunna í OLÍS  

Guðrún Jóhannesdóttir, 27.9.2007 kl. 00:13

47 identicon

Dásamlegar fréttir - mikið óska ég eftir áframhaldandi minnkun - og fljótlega verði hægt að fljúga með litla ljósið til Boston - gangi ykkur öllum vel hjartans fjölskylda.

Berglind Elva (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 01:20

48 identicon

Hef fylgst með síðunni þinni í langan tíma og  vá, hvað það er frábært að sjá að allt gangi vel !!!!!

Bið til guðs um áframhaldandi góðar fréttir.  kv. Katrín (ókunnug)

Katrín (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 03:00

49 identicon

Ahhh....hvað þetta eru góðar fréttir....þetta blogg er svo innilegt að maður bæði tárast af gleði og sorg og fær gæsahúð.....

Þið eruð ótrúleg fjölskylda.

Kveðja Katrín.

Katín (ókunnug) (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 07:57

50 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Guð lát á gott vita.

Svo vonar maður að læknarnir skeri óværuna í burtu, þegar það hefur minnkað nægjanlega.

Kærar kveðjur

bjarni

Bjarni Kjartansson, 27.9.2007 kl. 08:04

51 identicon

Til hamingju með þetta og gangi ykkur rosalega vel áfram

Kveðja Jórunn úr Tbr

Jórunn (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband