Leita í fréttum mbl.is

Komin heim

Þá er stórfjölskyldan mætt í sveitina og búin að hafa það yndislega gott í "hvíldarbústaðnum" hjá styrktarfélaginu.  Við gerðum allt og ekkert, sváfum þegar okkur langaði að sofa, börðumst úti í kuldanum, kíktum í pottinn, horfðum á Latabæ, kveiktum á nokkrum stjörnuljósum, las bókina Póstulín sem ég mæli hiklaust með og þið lærið heilmikið af því að lesa hana, spiluðum og slappað bara endlaust vel af.  Við öll höfðum svo gott af þessari hvíld, Þuríður mín að sjálfsögðu mest og gat legið í leti alla dagana enda ekki mikil orkukona þessa dagana og það var bara yndislega gott.  Við grilluðum að sjálfsögðu, við fengum humar síðasta sumar (jámm síðasta sumar) og ég er búin að passa svo vel uppá gullið mitt ehe eða til gott tækifæris einsog núna síðustu daga og við tókum hann með okkur og fengum la grill humar að hætti Skara.  Slurp slurp.  Vávh hvað ég elska þennan mat og hvað maður fær hann alltof sjaldan enda ekki fyrir venjulega manneskju að versla sér svona gull.  Sem sagt þessi ferð var æði í alla staði, alltaf gott að komast í kyrrðina og helst vera með tærnar útí loftið allan tíman.  Æði gæði!!

Þuríður mín Arna er sæmileg þessa dagana, þreytt og sefur dáltið mikið og verður að fá að sofa þegar hún vill og þarf sofa.  Hún er t.d. núna að taka sinn annan dúr í dag en svefninn hennar hefur eitthvað verið að aukast síðustu daga, þreytan að segja til sín en vonandi er hún bara að safna orku fyrir nýja árið.  En við erum búin að fá flýti á myndatökunum hennar en hún fer í þær 8.janúar, læknarnir gera flest allt sem við biðjum þá um líka bara til að halda okkur góðum og minnka stressið í manni sem hefur verið að "drepa" mann síðustu daga.  Ekki þægilegar tilfinningar.

Krakkarnir eða þá aðallega stelpurnar eru svakalega spenntar fyrir morgundeginum, urðu ennþá spenntari þegar við gáfum þeim nokkur stjörnuljós í gærkveldi og vilja sko líka bombur.  Sjáum hvað við gerum á morgun, hvort við blæðum ekki í nokkrar litlar bombur handa þeim.W00t

Ætla ekki að hafa neinn áramótapistil fyrir árið, þið vitið hvernig það hefur verið.  Algjör rússíbani.  Árið er búið að vera hrikalega erfitt, reynt mikið á allar tilfinningar, vissi ekki að það væri hægt að finna svona til í hjartanu.  Vonandi verður árið 2008 betra en þetta og það þarf nú ekki mikið til.

Ætla enda á nokkrum myndum af fallegustu börnunum mínum:
PC238361
Hérna eru systkinin og Eva frænka að bíða spennt eftir að sveinki mæti í sveitina í smá heimsókn á Þorlák.

PC238392
Systurnar glaðar að fá sveinkana inní stofu á tjattið en samt smá feimnar.

PC248566
Systkinin á aðfangadagskvöld, þarna eru þau alveg að springa úr spenning að fá að opna alla pakka sína.  Bara gaman!

PC248570
Systkinin hjálpuðust öll að á aðfangadagskvöld við að opna ALLA pakkana alveg sama hver átti að fá hann sem var bara gaman.

PC268702
Að sjálfsögðu var farið útí snjóinn hérna í sveitinni og búið til eitt stk snjóhús á pallinn.  Systurnar skemmtu sér vel við það þá sérstaklega að kíkja í heimsókn inní snjóhúsið einsog hér má sjá.

Læt þessar myndir duga í bili enda þarf ég að sinna hetjunni minni sem er eitthvað svo pirruð og þreytt(var að vakna), ætla að reyna gleðja hana aðeins og leyfa henni að fara í bað.  Jámm það þarf ekki mikið tilHalo og vonandi hressist hún við það.

Gleðilegt ár kæru lesendur, gangið hægt um gleðinnar dyr á morgun og verið varkár með sprengjurnar en vonandi get ég jú eða Skari sprengt nokkrar bombur fyrir allar hetjurnar okkar á morgun.

Kveðja
Slaugan og fjölskyldan

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Elsku Áslaug og fjölskylda, ég óska ykkur innilega gleðilegs árs og óska af heilum hug að það verði ykkur gott, að það verði ár kraftaverksins sem við öll óskum svo heitt eftir.

Yndislegt að heyra að bústaðarferðin var góð, og takk fyrir að deila þessum frábæru myndum með okkur bloggvinum þínum.

Knús á línuna hjá þér vinan.

Ykkar bloggvinkona á skaganum

Gunna 

Guðrún Jóhannesdóttir, 30.12.2007 kl. 18:44

2 identicon

Velkomin úr hvíldarsetrinu og glæsilegt að þar var bara gagn og gaman.Yndislega samhentar hetjur í einu og öllu.Æ snjóhús toppurinn,hef ekki gert snjóhús síðan í sveitinni minni fyrir um 100 árum...með von um að þið getið dundrað upp hressilega og árið 2008 verði sem allra allra best.Þúsund þakkir fyrir fá að fylgjast með ykkur hetjurnar mínar.Ég hef skánað sem persóna og er það þrekvirki,þökk sé ykkur.Guð blessi ykkur.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 19:20

3 Smámynd: .

Guð gefi ykkur gleði og góða daga á nýju ári, eigi einhver það skilið eruð það þið.  Takk fyrir að lofa okkur hinum að fylgast með baráttu ykkar fyrir betra lífi fyrir ykkur öll.

., 30.12.2007 kl. 20:17

4 identicon

Oooh hefði verið til í að liggja í leti uppi í sumarbúst og hafa það næs. Það er alltaf svo gaman í sumó. Vonandi að það verði fleyri og betri kraftaverk sem gerast á næsta ári, ég trúi því :o) þú átt eftir að brillera í skólanum og fara að finna fyrir  meiri orku og kyrrð í hjartanu. Ég er að varða eins og völvan hahahah en þetta allt mun og skal koma heir heir

Hlakka til að fá að vera með ykkur á komandi ári og gleðjast saman. Hafið það sem allra best um áramótin í faðmi allra. Við mæðgurnar ættlum allavega að hafa það gott SAMAN :o)

Gleðilegt ár og takk fyrir allt gamalt og gott og allar færslunar þínar hérna Áslaug mín

Luv Magga

Magga (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 21:25

5 identicon

Gleðilegt ár kæra fjölskylda og megi næsta ár verða eintóm gleði hjá ykkur, eigið það alveg inni.

Kveðja Ella. 

Ella (ókunnug) (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 22:24

6 identicon

Yndislegir litlu gimsteinarnir ykkar.  Eigið þið góð áramót Guð gefi ykkur gleðilegt komandi kraftaverkaár..

Kristín (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 23:07

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gott að þið gátuð hvílt ykkur vel kæra fjölskylda. Það er svooo nauðsynlegt og hollt. Litla hetjan þreytt þessa dagana og hún er ekki ein um það blessunin. Ég held svei mér þá að myrkrið og allar þessar veðrabreytingar geri marga þreytta og til í að sofa út í eitt. Myndirnar af þessum elskum eru frábærar eins og vænta mátti. Vonandi verður rokið ekki of mikið á morgun svo það verði hægt að sprengja nokkrar bombur. Guð blessi ykkur öll. Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 30.12.2007 kl. 23:26

8 identicon

Gleðilegt nýtt ár með von um bjartari og betri tíð fyrir ykkar hönd - gangi ykkur sem allra best í baráttunni - hugur minn er hjá ykkur

Berglind Elva (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 00:39

9 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Dásamlegar myndir! Eigið himnesk áramót kæra fjölskylda og Guð blessi ykkur. Megi nýja árið færa ykkur heilsu, orku, hlýju og frið.

Ylfa Mist Helgadóttir, 31.12.2007 kl. 02:25

10 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.12.2007 kl. 13:35

11 identicon

Gleðilegt nýtt ár og megi nýja árið færa ykkur birtu og betri tið .

Dagrún (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 14:38

12 identicon

Gleðilegt nýtt ár  og megi næsta ár koma með kraftaverk til fyrir Þuríði Örnu Hetju

Halla Rós (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 15:09

13 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Gleðilegt ár og takk fyrir bloggkynnin á árinu sem er að líða.

Megi 2008 vera fyllt gleði og hamingju fyrir ykkur kæra fjölskylda.

Bergdís Rósantsdóttir, 31.12.2007 kl. 15:29

14 identicon

Elsku Áslaug og fjölskylda...guð gefi ykkur frið og gleði á nýju ári og vona að litla fallegasta hetjan á heimilinu verði frísk og glöð á nýju ári.Takk fyrir fallegt og hetjulegt bloggár.Áramótaknús til ykkar allra.

Björk töffari (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 16:25

15 Smámynd: Bergþóra Guðmunds

elsku Áslaug og fjölskylda,,takk fyrir að minna mig á að heilsan er manni ekki sjálfgefin. Ég hef fylgst með baráttu Þuriðar siðan i vor,,og þakka guði fyrir hvern dag sem  hún á. Þið eigið bara allt það góða skilið,,og meigi góður guð vera með ykkur öllum á nyju ári.

Bergþóra Guðmunds, 31.12.2007 kl. 19:19

16 Smámynd: SigrúnSveitó

Gleðilegt ár, kæra fjölskylda.  Megi Guð og gæfan fylgja ykkur á nýju ári.

Kærleikur af Skaganum.

SigrúnSveitó, 1.1.2008 kl. 00:25

17 identicon

Var undir sæng með meiru,skíthræddur við bomburnar æææææ.Ætlar þessu ekki fara að linna?????.Gleðilegt ár og kærleikskveðjur.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 00:36

18 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Gleðilegt nýtt ár elsku fjölskylda og takk fyrir góð blog-kynni á árinu sem liðið er og megi nýja árið verða ykkur farsælt og gott.kv.linda

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 1.1.2008 kl. 02:38

19 Smámynd: Ásta María H Jensen

Gleðilegt ár

Ásta María H Jensen, 1.1.2008 kl. 15:48

20 identicon

Gleðilegt ár duglega fjölskylda.

Hulda Klara (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 18:54

21 identicon

Gleðilegt ár kæra fjölskylda.

Kær kveðja Dee

Dolores (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 23:30

22 Smámynd: Auður Kristín Matthíasdóttir

Kæra fjölskylda. Gleðilegt nýtt ár. Sendi mínar bestu baráttu kveðjur.

Megi góði guð vera með ykkur í þessari erfiðu baráttu.

Kveðja Auður Matt.

Auður Kristín Matthíasdóttir, 2.1.2008 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband