Leita í fréttum mbl.is

Helgin

P2169379
Töffarinn minn hann Theodór Ingi.  Hann er alltaf farinn að biðja múttu sína um krem í hárið ehe svo hann getur verið með kamb, ekki seinna vænna.

Ætlaði að setja inn nokkrar myndir en það er víst einhver stíflun hjá mogganum með að setja inn myndir þannig þið fáið bara að njóta að horfa á litla íþróttaálfinn minn, fallegastur!

Núna erum við farin að finna að þetta álag er farið að reyna á hann líka, skapið hans hefur breyst mjög mikið og hann lætur þetta mikið bitna á múttunni sinni, greyjið litli.  Þetta er sem sagt farið að taka á alla í fjölskyldunni því verr og miður.

Ég mun annars eyða allri helginni útí TBR, vííí!!  Er að leika mér aðeins í einu móti, lyfta gulu og rauðu spjöldunum og aðeins að aðstoða í mótinu.  Svoooo gott að komast aðeins út og hitta alla.  Ég var líka svo heppin í dag að hún Elsa mín kom með eitt stk kjól handa mér sem hún sérsaumaði á mig og ég er ótrúlega flott í honum þó ég segi sjálf frá ehehe, hefði viljað kíkja á tjúttið í kvöld og sýna nýja fína kjólinn minn.  Var í honum í sirka klukkutíma hérna heima og var ekki að tíma fara úr honum því ég var svoooo hrikalega sæt og fín.  Ég er nefnilega ekki þessi týpa sem er alltaf útí búð að versla mér föt, læt börnin mín ganga fyrir og vill frekar þau séu fín til fara.  Ég er hvorteðer alltaf heima að læra eða sinna Þuríði minni þannig ég er alltaf í joggaranum og nenni oftast ekki að finna mig til en oh mæ god hvað ég fann þessa góðu tilfinningu að vera í einhverju fínu og vera fín til fara.  Það segir greinilega mjög mikið að finna sig til, núna langar mig mest að fara í mollið og finna fullt af fötum á mig eða kanski ég fái bara Elsuna bara í vinnu hjá mér.   Stóóóórt knús til þín Elsa mín, ég elska þennan kjól endalaust mikið og svona líka smellpassaði á mig.W00t BEST!

TBR aftur á morgun og kíki svo með börnin í nágrannaafmæli, vonandi hefur Þuríður mín heilsu til að kíkja líka yfir í næstu íbúð.  Eurovision að byrja og ég ætla að leggjast undir sæng og horfa á imbann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Fallegu börnin sem þið eigið

Vona að þið fáið frábæra helgi.

Kveðja frá Dk

Hulla Dan, 23.2.2008 kl. 20:28

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Glæsilegt útlit á síðunni...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.2.2008 kl. 20:40

3 Smámynd: Þórunn Eva

hæ hæ babý.... ég kíki kannski inní TBR á morgun u never know... hlakka til að sjá þig sæta mín .... koss og knús á þig......

Þórunn Eva , 23.2.2008 kl. 21:56

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið er töffarinn fínn með kambinn sinn. Það hlaut að koma að því að hann skynjaði ástandið, annað væri óeðlilegt og auðvitað bitnar það á mömmunni, hvað annað. Gott að þú komst út um helgina, ekki veitir af. Guð veri með ykkur og njótið samverunnar hvert með öðru. Já það er hægt að vera hamingjusöm þó á móti blási. Það er svo mikilvægt að sjá það góða og fallega, kveðja og enn og aftur, takk fyrir bloggið í gær, það síast inn í sálina og gerðir allt svo miklu betra. Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.2.2008 kl. 23:09

5 Smámynd: Elsa Nielsen

Knúúús - frábært að heyra ;)... auðvitað kem ég í vinnu til þín

Elsa Nielsen, 23.2.2008 kl. 23:56

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Flottur gutti þinn hann Theadorelsku Áslaug mín þú ert frábær mamma og þú mátt svo sannarlega vera stolt af þér og eins Óskar þinn,það er ekki auðvelt að eiga veikt barn og eiga önnur börn sem eru ekki veik,þau verða svo utanveltu og leið á meðan á því stendur,mín dóttir er ekki með krabbamein en hún er veik,enga síður og hefur átt við erfið veikindi,að stríða, frá því í febrúar fyrir ári síðan og hennar veikindi hafa svo sannarlega haft mikil áhrif á hinar systurnar á heimilinu,sem ekkert skilja,hve breytt systir þeirra sé og öll vilja þau sína athygli fá frá mömmu sín og pabba sín og þá þarf maður að skipta niður eins og þú gerir hafa sér mömmu dag og pabba dag fyrir hvern og einnEnn mundu að þú ert YNDISLEG,GÓÐ MAMMA OG ÞÚ ERT  ÖRUGGLEGA DÁSAMLEG EIGINKONA,þú gefur svo mikið af þér elskan mín,að það er ekki skrýtið þó að þú dettir niður í gryfju en þú stendur alltaf aftur upp,með þvílíkum krafti,það er dásamlegt elskan mín, að fá að fylgjast með þér og þínum og við skulum vona að það birtir hjá ykkur.

Ástarkveðjur og ég sendi til ykkar hlýja strauma og hlýjan faðm af ást og hlýju.

Wink

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.2.2008 kl. 00:11

7 Smámynd: Linda litla

Hann er sko sætastur þessi

Hvernig væri nú að láta mynda sig í kjólnum og leyfa okkur að sjá öll herlegheitin ??

Linda litla, 24.2.2008 kl. 10:49

8 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Flottur  gaur halló  bara sætastur.

Flott hjá Elsu ad sauma á thig flottan kjól,thú átt svo skilid ad lida eins og prinsessu lika Fallega gert af henni. Já og drífdu thig bara á tjúttid kona,komin timi til ad sjæna sig til og sletta adeins úr klaufunum,gleyma sér um stund,gerir eflaust gott 

Góda skemmtun i TBR  og baráttukvedjr hédan frá DK

María Guðmundsdóttir, 24.2.2008 kl. 11:43

9 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Ótrúlega flottur drengur hann Theodór þinn  Til hamingju með kjólinn,efast ekkert um að þú ert glæsó í honum  Ég vona að það fari að birta til hjá ykkur fjölskyldunni

Katrín Ósk Adamsdóttir, 24.2.2008 kl. 14:41

10 Smámynd: Júlíana

jiiii hann er sætastur, reyndar eins og öll börnin ykkar.

En já, skondið hvað svona einfaldur hlutur eins og að klæðast nýjum flottum fötum, að vera fínn, getur haft góð áhrif á sálina. Það er svo gaman að vera fínn.

Júlíana , 24.2.2008 kl. 14:52

11 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Flottur strákur og nýja útlitið á síðunni er flott

Svanhildur Karlsdóttir, 24.2.2008 kl. 15:45

12 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Theodór bara flottastur

bestu kveðjur

Guðrún Jóhannesdóttir, 24.2.2008 kl. 20:04

13 identicon

Þú ert yndi:) mikið skil ég þig vel að vilja breyta útaf og vera fín af og til:) ég hef líka verið of upptekin af vinnu og börnum. Mæli með að þú setjir mynd af þér hér inn;) Guttinn er algert kjútý:):)

Diana Osk Oskarsdottir (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 20:42

14 identicon

Flott síða,glæsilegur strákur,frábær Elsa,flottust Áslaug.Fyrirmynd allra ert þú og fjölskylda þín.Takk fyrir og kveðja.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 21:27

15 Smámynd: Sigríður Hafsteinsdóttir

Krúttgæi þessi strákur! Gott að þér leið vel í fína kjólnum, þú átt það skilið að njóta ÞÍN inn á milli!!!

Sigríður Hafsteinsdóttir, 25.2.2008 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband