Leita í fréttum mbl.is

Draumar

Þegar Þuríði minni líður mjög illa þá líður mér illa, verð hálf þunglynd af sársauka hennar vegna, sef varla dúr, hjartað hamast og allt verður hreinlega ómögluegt.  En það er samt einsog ég eignist einhverja krafta og get gengið með henni þann veginn og hjálpað henni eftir minni bestu getu gegnum þessa baráttu enda hef ég heldur ekkert val.  Samt er þetta svo skrýtið með orkuna sem maður fær þegar henni líður þannig?

Þegar henni líður vel þá verð ég svo þreytt og þrái mest í heimi að fá hvíldina og komast aðeins í burtu og gleyma mér í smá stund. Já mér líður vel í dag en væri alveg til í losna við þessa þreytu sem er að gera útaf við mig.  Aaargghh!

Langar að minna ykkur á þetta svona í lokin.

-Dreymdu stóra drauma.... en láttu þá rætast með því að fara fetið, taka eitt skref í einu.  Hvert skref færir þig nær draumnum.  Ef þú tekur hinsvegar ekkert skref, þá muntu aldrei komast á áfangastað.
-Adlrei að horfa á allan listann í einu, takstu eitt atriði í einu, kláraðnu það og kíktu svo á næsta aðtriði.
-Skref fyrir skref, það er galdurinn. 
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórunn Eva

knús knús sæta mín þú ert algjör HETJA.... LOVE á þig fá mér

Þórunn Eva , 12.3.2008 kl. 11:10

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

sendi þér RISAORKUKNÚS og hetjunni litlu líka 

Auðvitað eruð þið ÖLL hetjur, þið foreldrarnir, Þuríður og systkinin hennar litlu, svo það fá bara allir risaorkuknús og kærleiksljós af skaganum

Guðrún Jóhannesdóttir, 12.3.2008 kl. 12:52

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég ber þvílíka virðingu fyrir þér og þínum vegna þess hvað þið eruð ótrúlega sterk og dugleg við þessar ósegjanlegu erfiðu aðstæður. Ég og aðrir sem ekki hafa gengið í gegnum svipaða erfiðleika getum reynt að skilja hvernig ykkur líður, en ég held að það takist engum sem ekki hefur reynt þetta á eigin skinni. Baráttukveðjur Áslaug hetja

Helga Magnúsdóttir, 12.3.2008 kl. 13:08

4 identicon

Hæ elskuleg...gott að  lesa að allt gengur ennþá vel með elskulegu hetjuna mína..bjóst við að sjá þig í dag,en þetta var fínn tími og takk fyrir gærdaginn.Knús til ykkar með von um áframhaldandi vellíðan..

Björk töffari (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 14:29

5 identicon

Auðvita ertu þreytt, þegar Þuríður er lasin þá dælir þú allri þinni orku til hennar svo þarftu að byggja þig upp á milli. Reyndu að komast í smá ró og endurhlaða batteríin. Gönguferð í grasinu eða rölt um Þingvelli gera kraftaverk

Ofsalega gaman að sjá og lesa að það gangi vel 

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 15:23

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég ætla að prenta þetta með drauminn og hengja það upp hjá mér. Þú ert alltaf jafn frábær og hugrökk. Guð veri með ykkur Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.3.2008 kl. 17:08

7 Smámynd: Hanna

Ég hef ekki kommentað svo lengi hjá þér að ég vildi bara senda kveðju til þín.  Ég les alltaf bloggið og fylgist með.  Það er rétt að þið eruð öll hetjur og þú átt alla mína virðingu kæra Áslaug.  Yndislegt að Þuríður hefur verið hressari undanfarið og ég dáist að þér að taka mömmutíma frá fyrir hin börnin.  Það er svo nauðsynlegt að þau fái sinn tíma líka. 

Baráttukveðjur áfram :)

Hanna

Hanna, 12.3.2008 kl. 17:19

8 identicon

Þú er algjör perla,alltaf að leiðbeina okkur á ýmsa vegu.Takk fyrir.Ef maður geti borgað og gefið þér til baka einhvern veginn,það væri gaman gera.Og átt það skilið.Kærleikskveðjur

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 19:51

9 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Orkukveðjur að vestan!

Ylfa Mist Helgadóttir, 12.3.2008 kl. 21:20

10 Smámynd: Sigríður Þóra Magnúsdóttir

Takk fyrir að minna okkur á . Þið eruð hetjur

kv

Sigga 

Sigríður Þóra Magnúsdóttir, 12.3.2008 kl. 21:27

11 Smámynd: Linda litla

Þið eruð alveg ofsalega duglegar.

Linda litla, 12.3.2008 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband