Leita í fréttum mbl.is

Mikill heiður

Einsog sum ykkar vita var ég tilnefnd sem "afrekskona" Létt bylgjunnar sem var mér mikill heiður að vera meðal þessara fimm heiðurs kvenna.  Það voru víst tilnefndar 300 konur og þar valdar 5 úr þeim hópi og svo kosið um, þó ég hafi ekki "unnið" þá fannst mér þetta mikill heiður og hefði reyndar frekar viljað sjá nafnið hennar Þuríðar minnar þarna í staðin fyrir mitt þá er ég samt stollt.  Langar að þakka ykkur öllum sem kusum mig fyrir, ég er ótrúlega stollt af því að þið vilduð gefa mér þessa nafnbót.  Stórt knús til ykkar allra. 

Ég fór á þetta kvennakvöld Léttbylgjunnar í gær og skemmti mér ótrúlega vel, fórum fimm saman og hlógum mikið.  Var samt fegin þegar sú sem fékk þessa nafnbót að hefði ekki verið ég eheh því ég hefði aldrei getað staðið þarna uppá sviði fyrirframan 100-200 konur (veit ekki hvað þær voru margar) og þurft að segja nokkur þakkar orð.  Það hefði ö-a liðið yfir mig ef ekki það þá bara "kú..." á mig ehe.  Púúúfffhh, hefði aldrei getað það.  Allavega Léttbylgjan takk fyrir skemmtilegt kvöld sem ég skemmti mér frábærlega á.

Ætla bara að hafa þetta stutt í dag, er á leiðinni í ræktina og fá smá útrás og reyni svo að nýta restina af deginum til að liggja yfir bókum og læra smotterí en þetta er mín fyrsta vika á þessu ári sem ég hef geta einbeitt mér eitthvað almennilega að lærdómi.

Stóóóóóórt knús til ykkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hanna

Innilega til hamingju, þú átt þessa nafnbót svo sannarlega skilið

Hanna, 13.3.2008 kl. 08:52

2 identicon

Sæl Áslaug

Líka stórt knús til þín og allra þinna í húsinu. Þið eruð öll sannar hetjur.

Með kærleikskveðju frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 09:06

3 identicon

Hjartanlega til hamingju elsku Áslaug mín og eigðu góðan dag.

Þið standið ykkur svo vel.

Dísa (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 09:17

4 identicon

Hef aldrei kvittað fyrir mig hér áður en varð bara að gera það núna þegar allt gengur svona vel hjá Þuríði. Ótrúlega gaman að lesa um það. Líði ykkur öllum sem allra best.

Ingunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 09:29

5 identicon

Til hamingju með tilnefninguna þú átt hana sko sannarlega skilið.

 Helga (ókunnug)

Helga (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 09:32

6 Smámynd: Ragnheiður

Til hamingju með tilnefninguna, þú áttir hana alveg skilið

Ragnheiður , 13.3.2008 kl. 09:34

7 identicon

Til hamingju með tilnefninguna Áslaug!  Ég var þarna í gærkveldi líka og var soldið svekkt að þú skyldir ekki vera valin!  En skiptir kannski ekki öllu, þú ert sigurvegari hvort sem er, a.m.k.  í mínum huga!  Já, fannst þér ekki gaman í gær?  Páll Óskar var snilld  
Eigðu góðan dag,
Heiða (systir Hildar Sif hetju)

Heiða (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 10:15

8 Smámynd: Þórunn Eva

já það var ótrúlega gaman... knús og koss.... p.s fáðu mega útrá í ræktinni.... LOVE

Þórunn Eva , 13.3.2008 kl. 10:40

9 identicon

Innilega til hamingju. Þú ert vel að þessari kosningu komin og hefur kennt mér endalaust mikið þó ég þekki þig ekki. Bið fyrir ykkur öllum daglega.

Ingunn

Ingunn (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 10:42

10 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

Þið eruð báðar svo miklar hetjur, já og bara öll fjölskyldan. 

Baráttukveðjur til ykkar allra.

Þórhildur Daðadóttir, 13.3.2008 kl. 11:26

11 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Til hamingju með tilnefninguna

Svanhildur Karlsdóttir, 13.3.2008 kl. 11:28

12 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Til hamingju með þennan heiður, þú átt hann svo sannarlega skilið. Reyndar má segja að þið mæðgur hafið fengið hann saman. Eitt get ég sagt þér mín kæra, það hefur enginn látist vegna þess eins að standa upp og segja nokkur orð. Þú hefðir brillerað í því eins og öðru. Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 13.3.2008 kl. 12:20

13 identicon

Til hamingju, þú átt þetta svo sannarlega skilið.  Þú valdir ekki þetta starf/hlutverk sem þú ert í en hefur skilað því frábærlega.  Gaman að heyra að allt gengur vel.  Kær kveðja til allra, Mæja

María Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 13:43

14 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Enda ertu hetja.  Ættir að vera kosin maður ársins.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 13.3.2008 kl. 13:55

15 Smámynd: Linda litla

Til hamingju með þetta, þú átt titilinn svo sannarlega skilið.

Linda litla, 13.3.2008 kl. 14:53

16 identicon

Æðislega til hamingju með þessa tilnefningu,þú ert vel að henni komin sæta mín.Hlakka til að taka á því eftir helgina með þér,vona að ég komist....skilaðu fullt af knúsum og kossum til hetjunnar minnar...baráttukveðjur

Björk töffari (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 14:57

17 identicon

þú áttir þessa tilnefningu svo innilega skilið....

ég var þarna í gær og vonaðist eftir að þú myndir hreppa þeta hreinlega :)

ég hef verið að fylgjast með þér hérna í langan tíma..

ég fór einmitt i morgun með hetjunni þinni að syngja á hótelinu og ég á ekki orð sem lýsa hversu dugleg dóttir þín er :) 

við sjáumst svo fljótlega vegna verkefnisins :)

með bestu kveðju

Tinna Berg (nemi á Hofi ) 

Tinna (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 16:02

18 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.3.2008 kl. 16:15

19 identicon

Til hamingju - þú átt þetta svo sannarlega skilið - ég les bloggið þitt daglega og DÁIST að þér - æðruleysi þínu og dugnaði - ég held að það sé aldrei hægt að setja sig í þín spor nema að upplifa svona veikindi sjálfur og það hef ég sem betur fer ekki gert - en hef ég þakkað nógsamlega fyrir það ? ég held ekki. Ég tek mig í gegn!! Stórt knús!!

Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 17:54

20 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Til hamingju med thetta,átt thetta meira en skilid njóttu thin i ræktinni,frábært ad fá útrás i thvi.

baráttu og kærleikskvedjur frá DK.

María Guðmundsdóttir, 13.3.2008 kl. 18:24

21 identicon

Til hamingju með tilnefniguna

Ellen (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 19:53

22 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 20:43

23 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Til hamingju þú átt þetta skilið

Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.3.2008 kl. 00:13

24 identicon

Kæra Áslaug!

Hjartanlega til hamingju, þú ert sannarlega verðug þessarar tilnefningar!

Gleður mig að allt sé í góðum gír hjá litlu skottunni og vona að það ástand vari sem allra lengst.

Kær kveðja.

Bergljót Hreinsdóttir (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband