Leita í fréttum mbl.is

...og þau eru enn að gerast :)

Ég oft sagt við ykkur að Þuríður hefur aldrei getað hjólað, hún hefur bara aldrei haft krafta né getu í það og hefuru ekki vitað hvernig hún ætti að beyta fótunum við það.  Jú hún hefur getað hjólað í sjúkraþjálfun á sérútbúnu hjóli, fæturnir eru "ólaðir" niður þannig að þeir haldist fastir og svo er svona stór stuðningur fyrir bakið, þetta er einhversskonar stórt þríhjól og henni hefur alltaf fundið æðislegt að fá að hjóla á þessu tæki því hún hefur getað það.  Alveg ljómað öll þegar hún hefur fengið að fara útá plan á hjólinu í lok hvers þjálfunartíma.  

Fyrir ári síðan ákváðum við samt að gefa henni hjól í afmælisgjöf því við erum ekki fólk sem gefst auðveldlega upp því einn daginn vissum við að hún myndi geta hjólað.  Við vorum búin að fá svona "ólar" til að setja á petalana og áttum að fara fá svona stöng á hjólið til að geta ýtt henni áfram svo hún myndi læra þetta einhverntíman en það varð eiginlega aldrei úr því að við fengum þessa stöng, gáfum okkur aldrei tíma til að fara niðrí hjálpartækjastöð til að setja þetta á og maður var eiginlega komin með samviskubit vegna þess því hennar draumur er að geta hjólað.  Ólarnar voru samt ekki lengi á hjólinu því henni fannst það ekki gaman því auðvidað langar henni bara að vera einsog systir sín og þurfa ekki nein tól og tæki til að hjálpa sér enda baráttukona sem ætlar sér alla hluti þó hún viti ekkert hvernig hún eigi að gera það.

Jú viti menn kraftaverkin gerast, þegar ég kom heim úr ræktinni í gærkveldi var hún búin að vera úti með pabba sínum og systkinum að æfa sig að hjóla því henni langaði svoooo mikið að geta þetta.  Henni langaði svo mikið að geta verið úti með Oddnýju sinnii og hjólað í endalaust marga hringi og haft það gaman, þegar ég var að leggja sá ég breiðasta og fallegasta bros sem ég hef nokkurntíman séð og það var á Þuríði minni sem hjólaði einsog ekkert væri (án allra aðstoðar og engin hjálpartæki til staðar fyrirutan hjálpardekkin).  Vávh þarna gat ég varla haldið niðri tárunum, einsog ég hef oft sagt þarna leið mér einsog hún var að segja sín fyrstu orð eða taka sín fyrstu skref.  Þegar ég kom heim var hún búin að vera hjólandi í sirka klukkutíma hring eftir hring og brosandi alveg í marga hringi, henni fannst þetta yndislega gaman og væri ö-a ennþá hjólandi ef við hefðum ekki tekið hana inn í gærkveldi eheh.  

Þetta sýnir það bara að maður getur ALLT ef viljinn er fyrir hendi og maður á ALDREI að gefast upp alveg sama hvað hver segir. 

Hún getur, hún ætlar og hún skal.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ohhhh gaman að lesa svona góðar sögur í morgunsárið. Táraðist alveg. Sendi stórt fjarknús

Hrundski 

Hrundski (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 08:59

2 identicon

Það er yndislegt að heyra af þessu.

"okkar" YKKAR stúlka er líka engin venjuleg stúlka, frekar en þið hin.  Ég hefði örugglega fengið stór gleðitár í augun.

kær kveðja

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 09:24

3 identicon

FRÁBÆRT, sit hérna með tárin í augunum yfir þessu

Ókunnug (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 09:30

4 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Þetta er dásamlegt, ótrúlegt - ég tárast hér við tölvuna mína

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 22.4.2008 kl. 09:32

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 já sit hérna bara kløkk  en ædislegt bara já hún Thurídur er engri lik bara HETJA

                                     kvedja frá dk

María Guðmundsdóttir, 22.4.2008 kl. 09:46

6 identicon

Yndislegt    Hetjan Þuríður kemur sífellt á óvart. Bara frábærast

Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 10:19

7 identicon

Elsku Þuríður mín,,,,það er satt þú ert engri lík og gerir það sem þú ætlar þér og það er æðislegt hvað baráttuviljinn þinn er mikill...ég vona að guð gefi þér áfram svona frábæra líðan og allan þennan vilja...bið að heilsa ræktarkonunni(ég fer alveg að mæta Áslaug)knús

Björk töffari (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 10:19

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hún er greinilega svona já, ég þori, get og vil stelpa. Æðislegt hjá Þuríði, hún er óborganleg hetja.

Helga Magnúsdóttir, 22.4.2008 kl. 10:24

9 Smámynd: Dagbjört  Pálsdóttir

Já maður sér þetta alveg fyrir sér þegar maður les þetta & tárast um leið  Glæsilegt hjá henni, sést greinilega hvað viljinn getur gert mikið  Hafið það gott & vonandi heldur hún bara ótrauð áfram í að sýna hvað í henni býr

Dagbjört Pálsdóttir, 22.4.2008 kl. 10:35

10 Smámynd: Þórunn Eva

æði pæði... vá hvað þetta er lang frábærst í heimi.... LOVE á ykkur frá okkur....

Þórunn Eva , 22.4.2008 kl. 11:09

11 identicon

þetta eru bara yndislegar fréttir1!! áfram þuríður.... áslaug ég veit að það eiga að vera stórir stafir hér en takkarnir hjá mér eru eitthvað bilaðir varð að koma þessu að, að gefnu tilefni)

guðrún (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 11:43

12 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Vorið er ekkert annað en galdrar, allt verður nýtt og kraftar náttúrunnar eru á fullu við að endurskapa.

Laugaðu þig og þína upp úr þeirri lind. Hún mun aflið gefa og mundu GEFA.

Miðbæjaríhaldið

óskar þinni til hamingju með hreyfanleikan og vona að þú hafi við henni, he he.

Bjarni Kjartansson, 22.4.2008 kl. 12:06

13 Smámynd: Pálína Erna Ásgeirsdóttir

Ég tek undir orð þín "Aldrei að gefast upp hvað sem hver segir" Ég samgleðst hjartanlega með ykkur

Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 22.4.2008 kl. 12:14

14 identicon

Æi bara yndislegt að lesa þetta, falleg færsla frá þér Áslaug, tár á hvarma en mikið er gott að við sem fellum tár skulum gera það af gleði :=)  Hún getur

Megi guð gefa ykkur áfram góða daga og allir englar gefa Þuríði kraft og styrk.  Með kærleikskveðju 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 12:27

15 identicon

OOOO ÆÐISlegar fréttir af æðislegri fjölskyldu,sem biðu mín við heimkomu úr langri sólarferð,þar sem var voða undrun á fólki sem sáu kveikt á kerti í 25 til 30 st hita og sól,en ljósið hefur sko skilað sér til BROSdúllunnar. VÁ hvað þetta er allt æðislegt ,áfram áfram-duglega fjölskylda.Kv.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 12:45

16 identicon

Hjólakveðjur.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 13:04

17 Smámynd: Ragnheiður

Sú er dugleg...yndisleg færsla Áslaug mín, yndisleg

Ragnheiður , 22.4.2008 kl. 19:02

18 identicon

Yndislegast.  Tárast við þessar dásamlegu fréttir . Guð gefi henni styrk og kraft.

Kristín (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 19:05

19 identicon

Skil ekki alveg hvernig þú gast haldið aftur af tárunum. Ég varð grátklökk að lesa þessa færslu. En veistu fullt af börnum upplifa aldrei þessa tilhlökkun og gleði yfir að fá einhvern hlut. Foreldrar og ættingjar eru alltaf búnir að gefa börnunum allt sem þau gætu einhvern tímann langað í. Dúkkuna fá þau áður en þau vita hvað dúkka er o.s.frv.

En haldið áfram á þessari braut... ég fer hér inn með tilhlökkun á hverjum degi núna en ekki með kvíðahnút.

Get ekki ímyndað mér hversu mikil hamingja ríkir á heimilinu ykkar.

Elva (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 19:48

20 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Alvöru kvenmaður þarna á ferð, ef það væru allir kvenmenn svona ákveðnir, þá vitum við hvor væri sterkara kynið í dag..

Yndislegt hvað þetta kemur allt upp, kraftaverk eiga sér stað

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.4.2008 kl. 23:28

21 identicon

Maður á ekki orð yfir þessa litlu hetju þína, hún er alveg órtúleg þessi skotta - það hefur verið ánægjulegt að koma heim úr ræktinni........þú ert náttúrulega bara dugleg kona ;o) með 3 lítil börn og eitt svona lasið alltaf - þú ert í skóla og ferð í ræktina......... þið hjónin eigið hrós skilið - þið eruð frábær!!!!!!!

Knús á ykkur flotta famelí - kv Kata.

Katrín (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 05:56

22 identicon

Ótrúlega gleðilegar fréttir og guð hvað ég skil vel að þú hafir tárast, ég ókunnug manneskjan táraðist við að lesa þetta blogg.

Hreint út sagt dásamlegt.

Kveðja,

Margrét

Margrét (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 08:56

23 identicon

Ómæ Ómæ En frábært, hún er svo mikill snillingur þessi dama og er það ekki síst vegna frábærra foreldra. Til hamingju með þetta

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 09:41

24 identicon

Það er svo skemmtilegt að fylgjast með ykkur þessa dagana.

KVeðja Benný

Benný (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 09:48

25 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.4.2008 kl. 10:15

26 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

VÁ VÁ VÁ þetta er frábært.  Vá fékk bara tár í augun.

Bergdís Rósantsdóttir, 23.4.2008 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband