Leita í fréttum mbl.is

Róleg helgi framundan

Það gerist ekki oft hjá okkur fjölskyldunni að það sé alls ekkert planað fyrir helgina, hmmm!!  Þannig það verður bara afslöppun og ennþá meiri afslöppun, að sjálfsögðu verður farið í hjólreiðatúr enda Þuríður mín farin að æfa sig fyrir næstu heimsmeistarakeppni, þvílíkur snillingur og kraftaverk þarna á ferð.  Hún er meira að segja farin að biðja um að fara útað hjóla og þá er nú mikið sagt, finnst svo gaman að geta loksins gert eitthvað einsog Oddný sín Erla þar að segja sem reynir á styrk hennar og krafta.

Stelpurnar telja niður dagana fyrir afmælið sitt sem verður haldið 1.maí (en þær eiga afmæli 30.apríl og 20.maí)í stórri "höll" ehe enda bara það besta og flottasta fyrir stelpurnar mínar.  En við fáum lánaðan íþróttasal þá meina ég ekkert venjulegan íþróttasal (þeir sem vita hvað ég æfði í 11ár vita hvar afmælið verður W00t) og þær eru þvílíkt glaðar með það en ekki hvað.  Allir krakkarnir geta hlaupið um, hoppað á dýnum, spilað íþróttina "mína" og svo lengi mætti telja, bara gaman!!

Lítið að frétta af stór fjölskyldunni en samt ekkert lítið þar sem hetjan mín er á fullri uppleið sem er bara gaman að fylgjast með.  Jú mín fór aldrei þessu vant í kringluna áðan en mér finnst hundleiðinlegt að fara þangað nema þegar ég að leita að fötum á börnin mín (sem ég elska) en það var ekki ástæðan fyrir þessari kringluferð því minni vantaði föt og það eiginlega bara fyrir nokkrum vikum en ég fer mjööööög sjaldan til að versla á mig, finnst það bara svo leiðinlegt því ég finn heldur aldrei neitt. Þoli ekki, þoli ekki!!  ...og að sjálfsögðu varð það líka svoleiðis núna nema hvað, jú ég fer inní eina búðina því mig vantar svo buxur en auðvidað fást ENGAR buxur á mig þar að segja sem mér líkar en þá ákvað ég bara svona í ganni mínu að fara inní aðra búð sem ég versla ALDREI inní sem er kanski ástæða fyrir hehe en viti menn mín fann pils.  Þannig ég endaði bara í pilsi í staðin fyrir fínar svartar buxur, dóóhh!!  Samt ekki sátt því mig vantar ennþá buxur ehe.

Styttist í að skólinn klárist hjá mér eða bara núna í byrjun maí og ég get ekki beðið, var í munnlegu enskuprófi í morgun sem var pís of keik.  Díssuss hvað ég hlakka til þegar þessi mánuður er búinn og ég að gera ekki neitt í maí nema kanski eitthvað fyrir sjálfan mig.  Hmm sem ég hef ekki hugmynd um hvað það ætti að vera ehe?  Hugmyndir?

Sundkennarinn hjá stelpunum vill að Oddný Erla mín fari í betri hóp í sundi og þannig hóp að við foreldrarnir séum ekki með enda kanski ekkert skrýtið þar sem daman er snillingur í sundi.  Vill að hún fari að æfa 3x í viku eða sko þetta eru mánaðarnámskeið tekin í senn (en hún er 3x í viku núna en er að klára það námskeið).  Kanski hún fari að æfa sig fyrir Ólmypíuleikana 2020? ehe!!  En svona án gríns þá er ekki langt í að barnið verði alveg vel synt. 

Best að klára þessi síðustu verkefnaskil mín og fara svo að njóta helgarinnar, sundnámskeið í fyrramálið, jú Birta mín (bróðurdóttir) ætlar að vera hjá okkur hálfan daginn á morgun og svo verður bara endalaus rólegheit.

Eigið góða helgi, njótið hennar í botn.
Knús og kossar
Slaugan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Góða helgi og góða afslöppunarhelgi. Vonandi lifið þið bara lífinu í botn í maí og njótið þess bara að vera saman og slappa af.

Helga Magnúsdóttir, 25.4.2008 kl. 13:45

2 Smámynd: Hulla Dan

frábært hvað gengur vel hjá ykkur. Áfram svona

Góða helgi og hafi þið það sem best.

Hulla Dan, 25.4.2008 kl. 14:09

3 identicon

Frábært að sjá hvað allt gengur vel hjá ykkur :-) Ég kíki alltaf á síðuna þína í gegnum "vinsæl blog" á mbl.is og hugsaði í vetur ... mikið verður gott þegar Áslaug dettur af listanum ... þá er sennilega allt í rólegheitum :-) Og viti menn, sumarið hófst á því.

Gleðilegt sumar duglega fjölskylda!

Anna Baldursdóttir (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 14:47

4 Smámynd: María Guðmundsdóttir

  Eigid góda helgi kæra fjølskylda. Er svoooo gaman ad lesa hvad gengur vel, bara gerir daginn hjá manni gladan 

María Guðmundsdóttir, 25.4.2008 kl. 15:10

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.4.2008 kl. 17:49

6 Smámynd: Hanna

Mikið var yndislegt að lesa bloggið þitt í dag :)

Takk elsku Áslaug fyrir að leyfa okkur að fylgjast með :)

Hanna, 25.4.2008 kl. 18:29

7 Smámynd: Þórunn Eva

Stórt knús á ykkur HETJURNAR í sveitinni.... LOVE

Þórunn Eva , 25.4.2008 kl. 20:21

8 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Njótið sælunnar í botn, verkefnavinna og próf á enda, sumarið framundan og allt á uppleið

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 25.4.2008 kl. 23:40

9 identicon

Knús móttekið,sendi til baka.Góða helgi

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 01:09

10 identicon

Ohhh þetta er yndislegt,, fæ bara sælustraum við að sjá hversu vel gengur núna,, vonandi helst það svo bara sem lengst ;)

Sendi ykkur alltaf góðar hugsanir

KVeðja frá DK

Halla Rós (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 15:33

11 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Eigið þið góða helgi.  Yndislegt að heyra um allar framfarir hetjunnar.

Bergdís Rósantsdóttir, 26.4.2008 kl. 20:07

12 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er svo mikil gleði á blogginu þínu núna kæra Áslaug. Mikið er það frábært og yndislegt. Einhver væri í þínum sporum að tína fram hluti sem ekki eru í lagi, en þú ert bara svo jákvæð og dugleg að segja okkur frá því góða sem er að gerast hjá ykkur núna. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. Guð blessi ykkur Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.4.2008 kl. 12:47

13 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

vona að helgin hafi verið frábær hjá ykkur Áslaug mín

Knús 

Guðrún Jóhannesdóttir, 27.4.2008 kl. 15:56

14 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Dásamlegt að lesa hvað allt gengur vel hjá ykkur Aslaug mín!

Bestu kveðjur til Iþróttaálfanna.

Ylfa Mist Helgadóttir, 27.4.2008 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband