Leita í fréttum mbl.is

Eitthvað að frétta?

Tjah ekkert svakalega mikið.  Hetjan mín er búin að vera á sterkum steratöflum síðustu þrjá daga og klára þann kúr á morgun en hún er með svo mikin asma að hún hefur átt erfitt með andardrátt.  Þessar steratöflur áttu nú að virka strax en fannst hún samt hafa mjög þungan andardrátt í morgun, hmmm well eigum að hafa samband uppá Hring á morgun og láta vita af stöðunni.

Ef ég væri í fullri vinnu í dag þá væri ég væntanlega að fara hætta vegna grindarinnar minnar, bwaaahh!!  Ég er strax farin að labba einsog ég veit ekki hvað og ekki komin langt á þessari meðgöngu þannig mér er farið að kvíða fyrir hvernig næstu mánuðir verða.  Hef alltaf verið að "deyja" í grindinni á öllum meðgöngum nema verst á síðustu en þá þurfti ég bara að liggja fyrir síðasta mánuðinn því þá var ég hætt að geta labbað.  Það sem maður leggur á sig til að fjölga mannkyninu eheh, vissi alveg að þetta myndi ske en samt ekki svona snemma.  Ok þetta verður sem sagt síðasta meðgangan enda get ég líka verið í skýjunum að eiga bráðum fjögur börn og eiga mjög auðvelt með að fjölga þeim.

Þar sem ég er mjög forvitin að eðlisfari ákvað ég að skreppa í sónar og kíkja á litla krílið mitt sem er aðeins 5,5cm á lengd (en samt ekki hnakka.....).  Langaði svo að sjá hjartað slá og alltaf finnst mér þetta alltaf jafn merkileg upplifun og alveg ótrúlegt að þetta skuli vera inní mér.  Það er komin föst dagssetning á mig sem er 3.des sem sagt mun barnið koma 17.des þar sem ég er vön að ganga tvær vikur framyfir með börnin mín, dóóhh!!  Nema reyndar Teddalíus en það var ástæða fyrir því en ég var sett afstað þegar ég var gengin 6 daga framyfir vegna Þuríðar minnar sem var að byrja í harðri krabbameinsmeðferð, mínar meðgöngur eru bara 42 vikur. $%#&#$%   Mig hefur alltaf dreymt um jólabarn og það mun víst koma, alveg ótrúlegt að ég/við getum bara ákveðið "hey já við skulum eignast barn í des"  Búúúúmmm það kemur í des, maður getur nánast ráðið hvaða mánuð það kemur, hvursu heppin getur maður verið?  Margir hafa líka spurt okkur hvort við ætlum að vita kynið og þó að ég sé mjööööög forvitin þá er staðan þannig í dag að við ætlum ekki að gera það, en plönin geta breyst?

Þó ég eigi að eignast barn í byrjun des stefni ég samt á að útskrifast um jólin, það verður erfitt en ég mun geta allt ef viljinn er fyrir hendi.  Ég kem bara beint af fæðingardeildinni (einsog einhver sagði) í útskriftina ehe.

Sveitaferðin sem við fórum í á þriðjudaginn með leikskólanum var bara skemmtileg, Teddilíus hélt fast í móðir sína, greyjið hefur svo lítið hjarta en hinar tvær voru með nefið ofan í öllum dýrum sérstaklega Þuríður mín.  Hún er efnileg sveitakona. 

P5201159
Þuríður Arna mín fékk að sjálfsögðu að halda á einu lambinu og vegna þess að hún átti afmæli í dag fékk lambið nafnið Þuríður sem hún var svaklega stollt af en ekki hvað?InLove
P5201165
Systkinin stilltu sér upp í 10 sek fyrir myndatökur ehhe og ekkert svakalega glöð með einhverja svona truflun.

Ætla núna að fara mína síðustu ferð til að leita mér að meðgöngufatnaði, damn hvað mér finnst allt ljótt.  Ég meina þó ég sé ólétt þarf ég ekki að líta út einsog tjald, fer ö-a í fýluferð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bestu kveðjur með að finna annað en tjöld mín kæra.Sveitakonan búin að fá nöfnu,lukku með það.Eigið góðan dag.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 13:17

2 identicon

Yndisleg færsla frá frábærri konu.  Þetta er bara spennandi og ég veit að það er bara gaman þegar húsið er orðið fullt af börnum, endalaust líf, ys og þys. Tendra ljós og fer með bænir fyrir Þuríði. 

 Gangi þér vel í fataleiðangrinum :=)

með kærleiksknúsi 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 13:41

3 Smámynd: Þórunn Eva

hæ hæ skemmtu þér í rvk... LOVE á þig babí... hlakka til að lesa aðra svona ofur skemmtiega færslu.. you go girl

Þórunn Eva , 22.5.2008 kl. 13:46

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þú ert ekkert smá duglega við að fjölga mannkyninu. Annað en ég sem á tvö með 20 ára millibili og sá yngri glasabarn.

Helga Magnúsdóttir, 22.5.2008 kl. 14:11

5 identicon

en gaman að fá smá óléttusfréttir  En ekki gott með grindina... vonandi gengur það eitthvað til baka :)

kv

guðrún (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 14:34

6 identicon

Dúllan mín, grindin strax farin að trufla þig, ég mæli með höfuð beina og spjaldhryggsmeðferð STRAX  Ömurlegt að fara að vagga eins og einfætt hæna strax.  Þú finnur eitthvað smart á þig, ég er viss um það, ég meina leggings og bolir með stroffi neðst í tísku, þú gætir ekki verið heppnari

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 15:20

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Fjögur börn er fínt en þetta með grindina er ekki nógu gott. Njótið sumarsins. Guð veri með ykkur öllum, bið að heilsa 5,5 cm krílinu

Hólmfríður Bjarnadóttir, 22.5.2008 kl. 20:49

8 Smámynd: Sigurbjörg Guðleif

Kvitt kvitt

Sigurbjörg Guðleif, 22.5.2008 kl. 21:25

9 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 22:30

10 identicon

Sæl og blessuð,

                            og innilega til hamingju með bumbubúi .til lukku og gangið ykkar öll rósalega vel.

Kærleikskveðju Dee

Dolores (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 22:47

11 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Kjartan Pálmarsson, 23.5.2008 kl. 00:26

12 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Oooooo hvað þetta er dásamlegt! Jólabarn! Besta jólagjöf í heimi!

Ylfa Mist Helgadóttir, 23.5.2008 kl. 11:01

13 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Góða helgi.Áfram Ísland.Kveðja Dóri

Halldór Jóhannsson, 23.5.2008 kl. 11:28

14 identicon

Ha? Finnurðu ekki óléttuföt? Ertu búin að fara í Tvö líf í Hlíðarsmáranum í Kópavogi?  Held það séu ferlega flott föt þar, þægilegir bolir og svoleiðis. Vildi að svona búðir hefðu verið til þegar ég gekk með mín börn.

Farðu varlega með þig, svona grindarlos er ferlega hvimleitt og hræðilega vont.  

Ibba Sig. (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 11:42

15 Smámynd: Lovísa

Innlitskvitt

Góða helgi

Lovísa , 24.5.2008 kl. 10:54

16 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Er svo gaman ad fá ad fylgjast med hjá thér og bumbubúanum og audvitad hetjunni og øllum hinum. Takk fyrir thad og gangi ykkur sem allra best. kvedja frá dk.psss verdurdu ekki bara ad skreppa eina HM ferd fyrir medgøngufatnadinn?  held thad sé bara nokk flott hjá theim..

María Guðmundsdóttir, 24.5.2008 kl. 15:12

17 identicon

Ég var best á fjórðu meðgöngunni minni. Byrjaði flótlega að fá grindarverki og breytti allri líkamsbeitingu. Skúraði ekki né ryksugaði. Var ekki að týna dót upp úr gólfunum, heldu aðstoðuðu börnin mín mig, því karlinn vanní burtu. Þau réttu mér dót sem var á gólfinu og ég gekk frá því. Síðan getur verið gott að fá sér belti. Aðalmálið er að hlífa sér og passa vel upp á líkamsbeitingu. Frænka mín kom og aðstoðaði mig við heimilsþrifin, það bjargaði mér alveg.

Baráttukveðjur!

Gréta (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 02:03

18 identicon

Til lukku með að vera komin af stað elsku Áslaug mín, bara innilegar hamingjuóskir til ykkar allra ! Knús og klemm til ykkar

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 19:43

19 identicon

Ég veit ekki hvort það á við þig en sakar ekki að athuga.Ég var með mikla grindargliðnun á fyrstu fimm meðgöngum.En svo fór ég í göngugreiningu rétt fyrir síðustu meðgöngu og þá var önnur löppin aðeins styttri og ég fékk innlegg.Ég fann ekki fyrir grindinni á síðustu meðgöngu.Sakar ekki að athuga.

Kv Herdís

Herdís Sigríðardóttir (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband