Leita í fréttum mbl.is

Endalaus þreyta

Oh my, er búin að bíða eftir þessari þreytu síðan ég veit ekki hvenær.  Allavega þessi eftir á þreyta sem kemur alltaf þegar vel gengur er mætt á svæðið og núna er það sem mig langar virkilega að fara í burtu og slappa af með Skara mínum.  Gvuuuð hvað mig dreymir um sand, sól, hita, ís, (hefði langað að segja ískaldan bjór en það kemur víst ekki til greina ehe) og það er aldrei að vita að þessi draumur fari að rætast?Blush

Lítið að frétta af verðandi stórri fjölskyldu, reyndar er Þuríður mín mjög slæm af asmanum og versnar bara ef eitthvað er samt búin að vera síðustu þrjár vikur á virkilega sterkum lyfjum einsog þessum sterum og núna reyndar á súper þriggja daga skammt af pensilíni því það var einhver skítur í öðru lunganu en ekkert er að hjálpa henni nema gera okkur foreldrana gráhærð með ræsi kl 5:30 á morgnanna (nóttinni reyndar).  Erum búin að þurfa fara alltof margar ferðir (meira en venjulega allavega) uppá spítala í allskonar tjékk á henni, hún er reyndar ekki að metta fullkomlega en samt ekkert til að hafa áhyggjur af.  Æjhi vonandi fer hún bara að hrista þetta af sér svo sumarið verði gott hjá henni.

Útskrift hjá henni í leikskólanum á miðvikudag sem hún verður spennt að bíða eftir þegar ég segi henni frá því en samt mun hún eiga eftir tæpa tvo mánuði á leikskólanum eða þanga til miðjan júlí þegar þau systkinin fara öll í sumarfrí.  Mjög skrítið að eiga bráðum skólastelpuJoyful

Er alltof þreytt til að blogga meira..... En helgin var frábær hjá okkur, þreföld afmæli, euro-partý og svo lengi mætti telja.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: katrín atladóttir

hehe verðandi stórfjölskyldu???

eruð þið ekki stórfjölskylda nú þegar:)

þú verður komin með 5 áður en ég kem með eitt sko

hafið það gott, kyssikyssi! 

katrín atladóttir, 26.5.2008 kl. 11:01

2 Smámynd: Þórunn Eva

hæ hæ sæta mín... vonandi að asminn fari að kveðja snúlluna.... love á ykkur..... gaman að heyra að snúllan er að fara að útskrifast

Þórunn Eva , 26.5.2008 kl. 11:56

3 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 12:05

4 identicon

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband