Leita í fréttum mbl.is

......

Hetjan mín er þreytt þessa dagana og er fljót að þreytast, hún þarf orðið að sofa á daginn "aftur" og sofnar snemma á kvöldin.  Það er eitthvað að bögga hana, jú það er eitthvað í lungunum sem læknirinn hennar hefur ekki alveg áttað sig á hvað það sé? Þess vegna munum við hitta lungasérfræðing á föstudag og vonandi mun hann finn útur þessu, hún á líka svo oft erfitt með öndina sem er ekkert betra.  Stundum er einsog hún sé að "kafna".  Þannig statusinn mætti vera betri á henni.

Margir eru að spurja hvað sé að frétta af óléttunni, æjhi ég veit ekki afhverju ég ræði það ekkert hérna.  Kanski vegna þess að ég er dáltið slæm í grindinni og finnst asnalegt að "kvarta" eitthvað um það hérna þegar veikindin hennar Þuríðar minnar eru miklu alvarlegri og hún hefur gengið í gegnum miklu erfiðara tímabil en það sem ég er að ganga í gegnum.  Ég hef reyndar aldrei verið jafn góð í henni og þegar við Skari vorum úti á Fuertventura þannig kanski er best að læknirinn minn framvísi vottorði um það að ég þurfi að fara til sólarlanda eina viku í .

Bumban stækkar og stækkar, margir spurja mig hvort þetta séu tvö eða hvort ég sé vissum að þetta séu ekki tvö.  Hmmmm!!  Fæ þá spurningu nánast frá ÖLLUM en nei barnið er bara eitt en bumban mín hefur alltaf stækkað svona hratt við allar mínar meðgöngur nema hjá Þuríði minni því þá kastaði ég upp fyrstu fimm mánuðina.  Dóóóhh!!  Svo spurja mig margir hvort við vitum kynið en nei sama svarið ég er ekki gengin nógu langt til að vita það og þegar það kemur að 20 vikna sónarnum sem er snemma í næsta mánuði þá ætlum við ekki að vita kynið, ótrúlegt en satt.

Meðgangan gengur sem sagt bara vel fyrirutan grindarverki, krakkarnir alltaf að knúsa og kyssa bumbuna og tala mikið um litla barnið í maganum sem er bara gaman enda við líka dugleg að tala um það við þau.  Þarf víst að undirbúa litla mömmupunginn minn sem er verið að venja snudduna af þessa dagana og það gerir hann þvílíkt slæman í skapinu.  Greyjið litli!!  Næst verður  það svo bleyjan....  Bara stuð!

Var að kaupa blóm á pallinn minn þannig kanski ég fari að setja þau í potta og reyni að gera pallinn minn aðeins "sætari".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

æ en leidinlegt ad litla hetjan er enn svona threytt og orkulaus. hugsa til hennar og sendi minar hlýjustu hugsanir til hennar sem og ykkar 

kvedja frá dk

María Guðmundsdóttir, 16.6.2008 kl. 17:35

2 Smámynd: Hulla Dan

Hugsa blítt til Þuríðar litlu og ykkar allra reyndar.

Mér finnst að þú ættir bara að rasa út um þína grindarverki. Þeir eru ógeðslega vondir og stundum þarf maður bara að rasa út

Ég vona að þér eigi eftir að ganga sem best og ég ligg á bæn og bið þess að snúllan ykkar verði hraust og laus við allt sem heitir veikindi.

Kveðjur frá Dk

Hulla Dan, 16.6.2008 kl. 17:45

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ósköp er að heyra hvað Þuríði líður illa, litla skottið. Blessuð kvartaðu bara undan grindarverkjunum eins og þér þóknast, það lagast ekkert við það að eitthvað annað sé verra.

Helga Magnúsdóttir, 16.6.2008 kl. 17:53

4 Smámynd: Þórunn Eva

knús á þig sætust... stendur þig svoooo vel... gangi ykkur ótrúlega vel á föstudaginn... LOVE

Þórunn Eva , 16.6.2008 kl. 19:20

5 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Sendi ljós og engla á litlu Skottuna og ykkur öll.

Farðu vel með þig kæra Áslaug, það skilar sér fljótt til barnanna þinna.

Bergljót Hreinsdóttir, 16.6.2008 kl. 19:50

6 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 21:05

7 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Gott að vita er vel gengur. 

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 17.6.2008 kl. 01:15

8 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

ÆÆÆ litla skottid svona lasin núna..Sendi ykkur sterka,fallega  strauma kæra Áslaug.

Stórt knús á tig inn í gódann dag

Gudrún Hauksdótttir, 17.6.2008 kl. 05:51

9 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Ég ætladi ad segja tér ....Tú skalt fara vel med tig vegna grindarinnar,dóttir mín hefur verid svona alla medgönguna en hún á ad eiga núna í júlí svo ég veit hvad tú ert ad tala um.Henni finnnst voda gott ad vera í vatnsleikfimi fyrir ófrískar konur tá lídur henni betur.Núna reynir hún ad  fara í sund á hverjum degi,svona til ad kmast í gegnum daginn.Veit tad er mikid ad gera hjá tér en svona fyrir tig mín kæra tá skaltu reyna allt tú getur ad gefa tér tíma fyirr sundid.Knús.

Gudrún Hauksdótttir, 17.6.2008 kl. 05:55

10 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.6.2008 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband