Leita í fréttum mbl.is

Útskrifuð og öll að hressast

Þuríður Arna mín útskrifaðist á fimmtudaginn og er öll að hressast(allavega farin að sofa minna og meira úthald).  Eina sem er komið úr blóðprufunum er að hún hefur verið með einhverja veirusýkingu plús ristilinn en við erum ennþá að bíða eftir öllum niðurá stöðum en það tekur víst tíma að rækta þetta allt saman.  Það var líka tekin lyfjagildi af flogalyfjunum hennar og það er mjög merkilegt en ein lyfin hennar sýna undir mörkum sem merkir nú eiginlega það að hún þarf svona nokkurn veginn ekkert á þeim lyfjum að halda en það eru ein af fjórum flogalyfjum sem hún er á.  En ég held samt að læknirinn vilji ekkert hreyfa við lyfjunum og kanski taka þau af henni enda þorum við því heldur ekki, engin áhætta tekin og hún fari að krampa aftur en hún hefur ekki krampað síðan í febrúar í fyrra sem er eiginlega óskiljanlegt en síðan þá krampaði hún daglega 10-50 krampa á dag. 

Nefnilega fyrir tveimur árum þá var farið að reyna minnka flogalyfin hennar því þá hafði verið krampalaus í þrjá mánuði en þá fór allt í vitleysu og ekkert hægt að stöðva neitt og það er ekki eitthvað sem mig langar að leggja á kroppinn hennar aftur allavega ekki ef við getum.

Búið að flýta myndatökunum hjá henni um viku eða til 15.júlí og þá mun hún líka fara í smá "aðgerð" í leiðinni en hún er með ljótan blett á bakinu sem læknirinn hennar vill að verði fjarlægður.  Þannig það er að koma smá kvíði fyrir þeim niðurstöðum, held að hann fari aldrei alveg sama hvursu vel gangi eða illa.

Við fjölskyldan skelltum okkur í útilegu um helgina eða skruppum í sólarhring á Apavatn með góðu fólki, Þuríður mín fékk nefnilega leyfi til að fara í útilegu og við ákváðum að skella okkur.  Ég var eiginlega búin að gleyma því hvað það er spennandi að vera í útilegu svona lítill einsog þau og jú og svona "gömul" og ég eheh.  Þeim fannst þetta geggjað stuð, sofa í tjaldi, úti að leika allan daginn, kíktum á Laugarvatn, grilla, skreppa í sund á Borg en þar skemmti Þuríður sér geggjaðslega vel en hún er smá adrenufíkill og renndi sér endalaust oft í rennibrautinni.  Enda það skemmtilegast sem ég geri er að fara með hana í tívolí en verst hvað hún er lítil miða við aldur (vegna lyfjanna)því þá fær hún ekki að fara í öll tækin sem henni langar í.  Samt svo gaman að sjá hana svona hamingjusama einsog í rennibrautinni á Borg, það skríkti alveg í henni enda ef hún hefði fengið að ráða þá væri hún ö-a ennþá að renna sér ehe.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

æ hvad thetta er gott ad heyra( lesa ) , bara ad allt sé í rétta átt lofar gódu. Gott hjá ykkur ad drífa ykkur í útilegu,thær klikka ekki bara yndislegt ad vera útí náttúrunni med familiuna.

eigid góda viku kæra fjølskylda og hafid thad sem allra allra best

María Guðmundsdóttir, 29.6.2008 kl. 17:21

2 Smámynd: Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Flott að heyra að skottan sé að hressast- æðislegt

Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 29.6.2008 kl. 18:06

3 identicon

Gott að lesa.Alltaf fjör á Borg.Góður staður og sveit.Kveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 18:30

4 Smámynd: Hulla Dan

Dásamlegar fréttir.
Óskum svo að þetta haldi áfram svona

Hulla Dan, 29.6.2008 kl. 18:56

5 identicon

Yndislegar fréttir af stelpuskottinu   Njótið lífsins í sumar kæra fjölskylda

Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 19:33

6 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 19:51

7 identicon

Hæ Hæ og takk fyrir samveruna í útilegunni. Þetta var voða gaman og ójá hvað Þuríði fannst gaman í rennibrautinni, bara dúlla.

Helga Jóhanna (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 20:59

8 identicon

Yndislegar fréttir frá ykkur góða fjölskylda. Kveðja Þorgerður.

Þorgerður (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 21:19

9 identicon

 Æ, það er SVO hressandi að fá svona fréttir af hetjunni, Þuríði Örnu. Hafið það sem best, kæra fjölskylda. Kveðja Sólveig

Sólveig (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 22:14

10 Smámynd: Þórunn Eva

glæsilegt að skottan sé öll að koma til.... dagurinn hjá okkur var æði pæði....  LOVE á þig

Þórunn Eva , 29.6.2008 kl. 23:28

11 identicon

Æðislegt að skottunni er farið að líða betur

Oddný Sigurbergs (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 00:51

12 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Gott að heyra þetta og gaman að hún skyldi skemmta sér svona vel.

Helga Magnúsdóttir, 30.6.2008 kl. 10:14

13 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Gott að heyra þetta og vonadni verður allt í góðu með ljóta blettinn.

Sólarknús 

Guðrún Jóhannesdóttir, 30.6.2008 kl. 11:06

14 identicon

jæja hvernig fer stórleikurinn KR-ÍA í kvöld???Ég segi 1-1.Bestu kveðjur.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 13:06

15 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Kysstu krúttið á ennið og kvakaðu þakkir fyrir daginn útí tómið, það heyrir einhver þakkirnar eins og bænirnar.

Þetta voru góðar fréttir

Takk fyrir að láta vita.

Bjarni Kjartansson, 30.6.2008 kl. 13:25

16 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Dásamlegt að heyra!

Ylfa Mist Helgadóttir, 30.6.2008 kl. 15:28

17 identicon

Yndislegt að lesa að stúlkan er að hressast....og já það heyrir sko einhver bænirnar 

Tendra ljós 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 20:07

18 identicon

Yndislegar fréttir af stórfjölskyldunni.

kær kveðja frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 22:15

19 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Gott ad fá tessar fréttir mín kæra.Mikid hefur hún unad sér vel í rennibrautinni.Ad ég taki ekki um ad fara í útileigu.

Stórt knús á ykkur öll

KV frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 1.7.2008 kl. 05:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband