Leita í fréttum mbl.is

Ágætis dagur að ljúka

Við fjölskyldan kíktum í bæinn í dag tilefni dagsins, hvöttum nokkra aðila sem voru að hlaupa til styrktar "styrktarfélagi krabbameinssjúkrabarna" en ákváðum í þetta sinn ekki að taka þátt í Latabæjarhlaupinu.  Alltof mikið af fólki og of mikill troðningur en að sjálfsögðu kíktum við á skemmtiatriðin og þau skemmtu sér svakalega vel einsog þið sjáið á þessari mynd.
P8234544
Þuríður Arna mín var í svakalegu stuði niðrí bæ í dag þó hún hafi ekki séð mikið á sviðið en þá fannst henni bara rosalega gaman að hlusta á alla tónlistina.  Söng hástöfum þegar Ingó og Veðurguðirnir byrjuðu að spila Bahama en það er eitt af hennar uppáhaldslögum.  Höfum spilað það mikið í sumarfríinu okkar og sumir komnir með nett ógeð af því lagi eheh engin nöfn.

Eftir bæinn fórum við heim og við börnin bökuðum eitt stk gulrótaköku sem er reyndar í ofninum núna þannig íbúðin ilmar vel.  En við erum að fá gesti í morgunmat í fyrramálið eða kl hálf átta til að horfa á leikinn og þá verða vera til einhverjar kræsingar handa liðinu.  Krökkunum fannst sko ekki leiðinlegt að baka einsog ég ætla að sýna ykkur eheh.

P8234551
Þetta byrjaði mjög sakleysislega með smá smakki á kreminu en svo byrjaði þetta:
P8234554
Fór aðeins að klínast á alla hendina og það fannst það geðveikt fyndið en það var bara smotterí miðavið framhaldið ehe.
P8234562
Farið að klínast aðeins útí andlit og ennþá var hlegið....  Þuríður Arna mín og Oddný Erla mín
P8234570
Theodóri mínum fannst þetta samt laaaang fyndnast.

Annars er statusinn ágætur á hetjunni minni, reyndar kvartar hún mikið vegna verkja í líkamanum sem maður veit ekki hvað merkir?  Erum að fara í læknaheimsókn í næstu viku og við komum reyndar að henni í gær lokaða inní herbergi, undir sæng, grátandi og kvartaði vegna verkja í höfðinu.  Þá var ekkert annað en um það að ræða að gefa henni verkjastillandi svo finnst mér hún nota hægri hendina minna.  Var t.d. að klæða sig úr buxunum áðan og notaði þá bara vinstri en að sjálfsögðu vona ég bara að þetta sé tilfallandi og hún bara svona vön að nota "bara" þá vinstri.

Leikurinn í fyrramálið sem fjölskyldan ætlum að sjálfsögðu að vakna til að horfa á ekki það að við þurfum einhverja vekjaraklukku til þess að vekja okkur fyrir leikinn, ég á þrjár góðar klukkur.Wink Fáum líka fólk til okkar til að horfa á leikinn með okkur, ekki oft sem maður bíður fólki heim til sín í morgunmat svona snemma morguns eheh.  Svo ætlar mín yndislega ljósmóðir að koma til mín á morgun og gefa mér nálastungur vegna grindarinnar sem ég er klikkaðslega slæm í, bwaaahh!!

ÁFRAM ÍSLAND!!

ÁFRAM ÍSLAN


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Mikið eru börnin þín falleg.

demanturinn

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 23.8.2008 kl. 21:12

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

ÁFRAM ÍSLAND!!

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.8.2008 kl. 21:13

3 identicon

Elsku börnin og þið algjör snilld sem þið eruð í bakstrinum.Náðurðu í eina tertu....hefur gert stóra uppskrift þá.Vona að ljósmóðurin sé ekki MJÖG titrandi eftir leik,þegar gullið fer um háls og þjóðsöngurinn er leikinn.Góða skemmtun hjá þér og þínum með morgni.Áfram Ís....þori ekki segja meir...Bestu kveðjur 

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 21:16

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Guð hvað ég man eftir svona flippi...með mín þrjú....ógeðslega fyndin og flott!!!!

Þetta eru augnablikin sem gefa svoooo endalaust mikið...og allir muna í framtíðinni...thi hí....

Bergljót Hreinsdóttir, 23.8.2008 kl. 21:41

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Já það á sko að vakna í fyrramálið, ekki spurning. Það er ekki ónýtt að markamaðurinn er ættaður héðan úr Húnavatnssýslunni, í báðar ættir meira að segja og þar að auki af Vatnsnesinu eins og ég hummm. Hann er hörkujaxl og hefur staðið sig frábærlega eins og allt liðið. Mér finnst hugmyndafræðin hans Óla  Stef alveg stórkostleg og mig langar svo sannarlega að fræðast meir um hana.

Ég bið Guð um að senda henni Þuríði bata og orku, ekki veitir af og skólinn að byrja.

ÁFRAM ÍSLAND

Hólmfríður Bjarnadóttir, 24.8.2008 kl. 01:09

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 ædislegar myndir af frábærum krøkkum.

Hafid thad gott kæra fjølskylda og já, ÁFRAM ÍSLAND

María Guðmundsdóttir, 24.8.2008 kl. 06:30

7 identicon

Æðislegar myndir af krökkunum,  þetta hefur greinilega verið svakalega mikið fjör

Oddný Sigurbergs (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband