Leita í fréttum mbl.is

Gleðileg jól!!

Kæru lesendur.

Við fjölskyldan viljum óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.  Takk fyrir stuðninginn sem þið hafið veitt okkur í gegnum bloggið.  Ég trúi ekki öðru en árið mun byrja jafn vel hjá okkur og það stefnir í að enda en hetjan mín mun byrja árið að fara í myndatökurnar sínar.
PC065746
Hérna eru gullmolarnir mínir, ég er þokkalega ríkust!!

Vill minna ykkur á, að það eru ennþá til nokkrir miðar á styrktartónleikana í Háskólabíó 27.des.  Styrkið gott málefni, hnoðrinn minn ætlar sko að mæta á svæðið.Wink

Allir orðnir spenntir á heimilinu fyrir morgundeginum, lofaði perlunni minni að ná í þau systkin snemma í leikskólann í dag og hún er ö-a að telja niður mínúturnar þanga til ég kem hehe.  Er að reyna mana mig að skreppa aðeins í kringluna með Þuríði og hnoðrann áður en ég næ í hin, verst að það er ekki hægt að skreppa þangað á þessum tíma.  Dóóhh!!  Held að ég nái ekki að mana mig í þetta, bwaaahh!!  Einsog mig langar að eyða gjafabréfinu mínu sem ég á og kaupa mér rauða kjólinn sem ég var búin að sjáInLove, úffhhh það er bara klikkun þarna.

Vávh mér líður einsog litlu barni að bíða eftir jólunum, hlakka svo mikið til því börnin mín eru svo spennt að opna pakka og svona ekki það að ég fái marga pakka hehe en þá lifir maður sig inní börnin sín í staðin.

Vonandi eigi þið yndisleg jól, við ætlum allavega að njóta þeirra hérna í sveitinni.  Loksins ALLIR hressir og kátir!!
Knús í hús!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Fallegir englarnir þínir og skemmtilega uppsett mynd.

Vonandi geturðu náð rauða kjólnum og notið þín um jólin í honum

Aprílrós, 23.12.2008 kl. 11:12

2 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Já thú ert sannarlega RÍK  

Óska ykkur gledilegra jóla og takk fyrir ad fá ad kynnast ykkur hérna i bloggheimum  hafid thad sem allra allra best.

kærleikskvedja frá danmørku.

María Guðmundsdóttir, 23.12.2008 kl. 12:14

3 identicon

Gleðileg jól kæra fjölskylda.

Ég er ein af þeim fjölmörgu sem hef fylgst með kraftaverkabarninu henni Þuríði.

Anna ókunnug (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 13:26

4 identicon

Hæhæ,

 Mig langar bara að kvitta fyrir komu minni. Ég kíki mjög reglulega á bloggið hjá þér og finnst alveg yndislegt að fylgjast með Þuríði þinni vaxa og dafna sem og hinum gullmolunum þínum. Mér finnst þið fjölskyldan algjörar hetjur og ég dáist svo að styrk ykkar og þrautsegju, og maður sér (les) sko alveg hvaðan hún Þuríður ykkar fær þennan styrk sem hún býr yfir.

Gleðileg jól og njótið jólanna :)

 Kærleikskveðja, Þóra

Þóra (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 15:19

5 identicon

Kæra fjölskylda,

Gleðileg jól og megi nýja árið færa ykkur birtu og yl.  Það er komið að ykkur að fá að njóta þess að vera til.  Megi góður guð vernda ykkur og blessa um ókomna framtíð.

Kv.

jj

Jóhanna Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 15:56

6 identicon

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár elsku Óskar Áslaug og Börn vonanandi eigið þið algjörlega frábær Jól þetta árið;*

Tinna Rut (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 16:19

7 identicon

Já þið hjónin eruð svo sannarlega rík.    

Bestu óskir um gleðiríka jólahátið.                                        Jólakveðja, Björk H                                  

Björk H. (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 16:26

8 identicon

Takk fyrir síðast. Þetta var flott útskrift. Gleðileg jól til ykkar allra. Kveðja úr Hafnarfirðinum.

Geirþrúður Þórðard. (Gerða) (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 16:27

9 identicon

Elsku Þuríður og allir hinir:O)

Gleðileg jól og hafið þið það sem allra best:O)

Jólaknús Beta sem var á bláu deildinni:O)

Beta Hofgyðja :O) (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 16:48

10 identicon

Elsku frábæra fjölskylda.Gleðileg jól til ykkar allra og ömmu Þ sem aldrey er heima,en held áfram að kíkja,aldeilis æðisleg mynd af ríkidæminu ykkar ,vonandi kemst þú í kringluna, bara leggja hjá versló ,bestu jóla og nýjárskveðjur.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 17:10

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ég og mín kæra fjölskylda viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þökkum árið sem er að líða.....Jólakveðja

 Linda og Fjölskylda :):):):)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.12.2008 kl. 20:45

12 identicon

Guð gefi að þið eigið gleðileg Jól og allir séu frískir áfram..Takk kærlega fyrir kærleikann og uppörfunina sem þið veitið manni...Kærleikskveðjur.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 21:07

13 identicon

Gleðileg jól öll og hafið það gott á nýja árinu :)

Dagbjört (ókunnug) (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 21:25

14 identicon

Sæl Áslaug.

Það hefur verið mjög ánæjulegt að lesa bloggið þitt undanfarnar vikur, það er svo mikill kærleikur og hlýja sem streymir frá þér, þú átt heiður skilið fyrir þína bjartsýni og DUGNAÐ.   ÞÚ ERT FRÁBÆR.

Ég les bloggið þitt reglulega en kvitta sjaldan

Ég samgleðst ykkur innilega að geta átt gleðileg jól öll saman og að Þuríður sé orðin svona hress,  hún er  kraftaverk þessi elska.

Ég sendi ykkur mínar bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. 

Guð veri með ykkur öllum, þið eruð í bænunum mínum.

Jólakveðja  Birgitta

Birgitta (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 22:22

15 Smámynd: Hanna

Kæra fjölskylda.

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. 

Áslaug - þú ert duglegasta kona sem ég veit um og Óskar maðurinn þinn engum líkur.  Það sá ég þegar ég las bíópistilinn hans.

Kraftaverkin þín fjögur eru öll dásamleg og þið eruð svo heppin að eiga þau.

Takk fyrir allt,

Hanna

Hanna, 23.12.2008 kl. 23:02

16 identicon

Elsku Áslaug, Óskar og barna hópurinn. Óska ykkur gleðilegra jóla, samgleðst ykkur illilega að eiga veikindalaus jól. Veit að allir munu njóta sín í botn. Góða skemmtun.

kv Sigga frænka 

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 23:57

17 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið eru gullmolarnir ykkar falleg og yndisleg. Til hamingju með fjársjóðinn. Mínar bestu jóla og nýjársóskir til ykkar allra með kærri þökk fyrir bloggsamskipin sem hafa gefið mér mikið. Kveðjur á afa og ömmusettin. Megi nýtt ár verða okkur öllum gæfuríkt, heilsugott og gleðiríkt.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 24.12.2008 kl. 00:27

18 identicon

Gleðileg jól Áslaug mín og Óskar og öll yndislegu börnin. Þið eruð svo sannarlega rík og ég á ekki orð yfir hvað ég er ánægð yfir vellíðan hetjunnar hennar Þuríðar Örnu.

Höldum áfram að trúa á hið góða og kraftaverkin!!

Knús frá rokrassgatinu Vallarheiði,
Súsanna og dætur

Súsanna (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 01:18

19 identicon

gleðiríka jólahátið öll sömul, njótið þessð vera til, kíki oft á ykkur, jólaknús.

Didda ókunn (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 01:46

20 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Gleðileg jól

Guðrún unnur þórsdóttir, 24.12.2008 kl. 02:49

21 identicon

Gleðileg Jól og hafið það sem allra best um hátíðarnar!!

Jóla Skaga kveðja,

Helga

Helga Arnar (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 13:04

22 identicon

Innilegar jólakveðjur til stórfjölskyldunnar.  Frá Þorgerði.

Þorgerður og fjölskylda (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 13:29

23 identicon

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Jólakveðjur Þóra Gunnar og börn

þóra páls (skb mamma) (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 16:07

24 Smámynd: Dagbjört  Pálsdóttir

Ohhh þú ert svo sannarlega rík

Eigiði yndislega jólahátíð  & viljum við senda ykkur okkar bestu jólakveðjur héðan að norðan

Dagbjört & fjölskylda

Dagbjört Pálsdóttir, 25.12.2008 kl. 00:52

25 identicon

Óska ykkur yndislegrar jólahátíðar fallega stór-fjölskylda :D

Óla Maja (IP-tala skráð) 25.12.2008 kl. 13:05

26 identicon

Gleðileg jól kæra fjölskylda.

Hulda Klara (IP-tala skráð) 25.12.2008 kl. 22:47

27 identicon

Nú verð ég bara að kvitta fyrir mig ;o)

Þetta eru yndisleg börn og þú algjör hetja að takast á við þetta allt saman, það hefur verið gaman að fylgjast með þér, óska ég þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Til hamingju með útskriftina og gangi þér vel eftir áramót, langar ekkert smá að halda áfram með ykkur eftir áramót en svona er þetta stundum ;o)

Ingibjörg Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 25.12.2008 kl. 23:59

28 identicon

Frábær mynd af grislingunum :)

Gleðileg jólin kæra fjölskylda

Jólakveðjur

Bóndakonan og Co.

Hrundski (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 13:54

29 identicon

Þú ert lánsöm með þessar gersemar.

Gleðileg Jól og Farsælt komandi ár

Jón (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband