Leita í fréttum mbl.is

6.jan'09

Jessörí þá eru 8 dagar í næstu myndatökur hjá hetjunni minni, hef ekkert reynt að hugsa um þennan dag yfir jólin en er núna að átta mig á því að það er að líða að þessum degi.  Alveg sama hvursu hress hetjan mín er þá verður maður alltaf jafn stressuð yfir þessum degi, það t.d. bendir ekkert til þess að það sé stækkun í gangi því hún er búin að eiga sín bestu jól EVER en samt er ég öll að stressast upp.  Þetta stress hættir aldrei.  Það hefur aldrei liðið svona langur tími á milli myndataka heilir 6 mánuðir er bara algjört kraftaverk og vonandi mun líða svona langt á milli næstu myndataka.

Annars erum ég og börnin mín fjögur heima, að sjálfsögðu voru hin tvö látin vera í fríi í leikskólanum um jólin þannig það er bara búið að vera tjill hjá okkur í dag.  Erum reyndar að horfa á Gosa í annað sinn hehe þau elska þennan disk sem þau fengu nota bene í jólagjöf en Skari þurfti að fara í vinnuna en bara tveir vinnudagar eftir hjá honum en þá ætlar minn maður að skreppa í mánaðarfæðingarorlof en það er í fyrsta sinn sem hann fer í FÆÐINGARORLOF, ótrúlegt en SATT.  Ákváðum að leyfa okkur það fyrst að þetta á að vera okkar síðasta barn þanga til annað kemur í ljós hehe eða árið 2010 og svo styttist óðum í skírnardaginn hjá hnoðra mínum en samt ekki búin að finna nafn á drenginn.  Hvað er málið?  Við erum búin að hafa ansi langan tíma að ákveða nafnið en finnum samt ekkert, dóóhh!!  Well verðum að vera búin að finna það fyrir 17.jan þegar Séra Pálmi ætlar að skíra hann og litlu músina hennar Oddnýjar systir.

Best að halda áfram að gera ekki neitt og kanski við börnin kíkjum útí göngutúr með hnoðra litla sem fékk að sitja í Dorrit fangi á Styrktartónleikunum, ekki amalegt að geta sagt honum það þegar hann eldist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Mikið skil ég þig, við hættum aldrei að hafa áhyggjur og erum aldrei stresslaus gagnvart börnunum okkar. Vona það besta og það getið liðið svona langur tími í næstu myndatöku.

Gangi ykkur vel. ;)

Aprílrós, 29.12.2008 kl. 16:08

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hann hverfur aldrei alveg beygurinn við eftirlitið hjá þeim sem hafa verið veikir eins og hún Þuríður. Ég er reyndar bjartsýn fyrir ykkar hönd, en verð þó ekki alveg róleg fyrr skoðun er búin og þú búin að segja okkur frá.

Frábært að Óskar ætlar að taka fæðingarorlof og svo er æðisleg að heyra hvað þið eruð hress og glöð. Það finnst örugglega flott nafn á Hnoðrann, vertu viss. Það kemur til ykkar einn daginn og þá verður eins og annað nafn hafi aldrei komið til greina. Knús í hús og smá  á kinn á öllum.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 29.12.2008 kl. 17:10

3 identicon

Gleðileg jólin elskurnar og gott að lesa hvað allir eru hressir og glaðir.Vona að áramótin verði skemmtileg hjá ykkur og að hetjan mín verði hress áfram.Krossa fingur og tær og allt fer vel,ég veit að guð er góður og gefur ykkur góðar fréttir elskurnar..knús og koss

Björk töffari (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 18:40

4 Smámynd: María Guðmundsdóttir

já krossa alla fingur og lika tær fyrir 6.jan. Trúi bara ekki ødru en ad thær myndir komi vel út.

Hafid thad áfram svona gott kæra fjølskylda. kvedja frá dk.

María Guðmundsdóttir, 29.12.2008 kl. 19:03

5 identicon

Vona að það gangi sem best í myndatökunum:-)

Dagbjört (ókunnug) (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 20:37

6 identicon

Mér er farið að lítast mjög vel á Hnoðra nafnið - þið ættuð kannski að athuga hvort að það sé leyfilegt ? :P haha ;)

Gangi ykkur vel á þrettándanum, mun hugsa til ykkar.

Súsanna (IP-tala skráð) 30.12.2008 kl. 12:11

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Gleðilegt nýtt ár

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.12.2008 kl. 22:02

8 Smámynd: Erna Sif Gunnarsdóttir

Gangi ykkur súper vel þann 6.Jan næst komandi og eigið gott kvöld á morgun...

Gleðilegt nýtt  kæra fjölskylda

Kv Erna Sif Gunnarsdóttir 

Erna Sif Gunnarsdóttir, 31.12.2008 kl. 02:15

9 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

gangi ykkur vel tann 6 jan. Á ekki von á ödru en allt komi tar vel út svo frísk er skvísan ykkar ordin.

Gledilegt ár til ykkar og megi tad ár færa ykkur farsæld og gledi í hjarta.

Hjartanskvedja frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 31.12.2008 kl. 06:47

10 identicon

Bið Guð um gott gengi þann 6. Jan. Eigið góð áramót frábæra fjölskylda.

Kristín (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:18

11 identicon

Gleðilegt árið, mikið verður næs fyrir ykkur öll að Óskar æli að skreppa í foreldraorlof, bara snilld. Annars ætlaði ég bara að láta í ljós gleði mína og yfir endalausum góðum fréttum hjá ykkur þessar síðustu vikur, kreppa hvað, Þuríður eldhress svo ekki sé nú talað um hin kraftaverkin. Og svo má ég til að þakka ykkur fyrir að ælta að skíra nýja prinsinn á afmælisdaginn minn, hvað með að láta hann heita Sigurður   
Ég vona að þið hafið það gott áfram og ekkert vera að kvíða myndatökunni því þar verða bara góðar fréttir  

Lov Sigga frænka, atvinnulaus bankastarfsmaður sem ákvað að gerast völva og bendir á að Pétur er sérdeilis gott og fallegt karlmannsnafn   

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband