Leita í fréttum mbl.is

Styttist í skírn :)

Fengum fleiri niðurstöður í morgun af henni Þuríði minni þar að segja af kýlinu sem ég var búin að finna á höfðinu hennar og það kom allt gott úr því.  Engin skuggamyndun myndaðist á myndunum sem merkir að þetta er ekkert illkynja sem er að sjálfsögðu best í heimi en við fylgjumst með þessu og ef þetta færi eitthvað að breytast verðum við auðvidað að hafa samband við doktorana.

Ég fór áðan og hitti einn af læknunum hennar Þuríðar minnar vegna Oddnýjar minnar Erlu og hann hristir endalaust hausinn yfir því hvað þessi kraftaverka stelpa er að gera góða hluti og kemur sífellt á óvart.  Auðvidað er hann í skýjunum yfir þessu kraftaverki einsog við en þeir bara skilja þetta ekki, oftast finnst manni leiðinlegt þegar læknarnir skilja ekki suma hluti og við viljum að þeir hafi alltaf rétt fyrir sér en ég er alveg í skýjunum yfir því að þeir höfðu ekki rétt fyrir sér í þessu tilfelli einsog með Þuríði mína.

Þuríður mín er einmitt að byrja á reiðnámskeiði og það verður 2x í viku og henni finnst það nú ekki leiðinlegt, bíður spennt eftir því.  Oddný Erla er að sjálfsögðu í sundinu 3x í viku og Theodór minn var að byrja á sundnámskeiði líka sem er 2x í viku, nóg að gera að skutlast með þau á æfingar.  Bara gaman!!

Annars styttist óðum í skírnina, drengurinn fær nafn.  Loksins!!  Það er sem sagt nk laugardag og hann Theodór minn er að sjálfsögðu líka að rifna úr spenning því hann ætlar að halda uppá þriggja ára afmælið sitt í leiðinni nú og Oddný systir ætlar líka að skíra litlu músina sína.  Ótrúlega gaman að heyra í fólki sem heldur að það viti nafnið á drengnum og það vissi það meir að segja á undan okkur hehe þar að segja áður en við ákváðum nafnið á honum.  Bara fyndið og gaman!!  Við vorum einmitt í einni skírn í gær en það var hjá lillunni hennar nöfnu minnar Áslaug en hennar lilla fæddist sama dag og minn en hún fékk fallega nafnið Elínbjört Heiða.

Ætla núna að fara með Oddnýju mína á sundnámskeið og svo verður tilraunabakstur í kvöld fyrir skírnina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Innilega til hamingju með niðurstöðurnar hjá Kraftaverkamúsinni. Og innilega  til hamingju með öll ykkar kraftaverk:) Þetta er sko ríkidæmi í lagi! Gangi ykkur öllum sem best.

Ásta Svavars (ókunnug) (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 17:58

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sendi ykkur öllum stóran vönd af hamingjuóskum með hvað allt er heilbrigt og gott hjá ykkur, kominn tími til segi ég nú bara. Ég bíð spennt eftir nafninu á litla prinsinum. Ég er sérstaklega með eitt nafn í huga, afi minn hét Theodór og hann átti bróðir sem ég hélt svooo mikið uppá. Ef hann fengi nafn bróðurins þá væri það skemmtilegasta tilviljun sem ég veit um. Auðvitað segi ég ekki það nafn, en bíð bara þolinmóð, eða þannig. Til hamingju með nöfnin á litlu frænkunni, þau eru mjög falleg. Og hamingjuóskir til Oddnýjar með afmælið og músina.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.1.2009 kl. 19:39

3 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Hæhæ mikið er nú gott að allt er þetta nú að koma.Innilegar hamingjuóskir og einnig til músarinnar,mer finnst þú áslaug ofsalega dugleg kona.STÓRT KNÚS Á YKKUR ÖLL

Sædís Hafsteinsdóttir, 12.1.2009 kl. 22:00

4 identicon

Til hamingju með góðar niðurstöður. Ótrúlega gaman að heyra hvað allt gengur vel, á öllum vígstöðum! :)

Gangi ykkur vel á laugardaginn, sem og í framtíðinni :))

Inga (ókunnug) (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 23:24

5 Smámynd: Aprílrós

Innilega til hamingju með allan pakkann bara, dásamlegar fréttir af kraftaverkaprinsessunni,.

Guð gefi ykkur góðan dag. ;)

Aprílrós, 13.1.2009 kl. 07:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband