Leita í fréttum mbl.is

Nafnið er...

P1176915
....og litla frænka fékk nafnið
P1176912

Dagurinn var líka frábær í alla staði, Theodór minn hélt líka uppá 3 ára afmælið sitt og hrikalega glaður með þetta allt saman.  Þegar allt var komið í ró voru þeir feðgar farnir að leika sér í bílabrautinni sem mamma og pabbi gáfu honum en svo það komi fram þá var drengurinn skírður í höfuðið á pabba og seinna nafnið í höfuðið á Skara mínum en hans seinna nafn er líka Örn.  En öll okkar börn eru í skírð í höfuðið á einhverju í okkar fjölskyldum.

Fyrsta brosið er komið og þetta var stórkostlegt augnablik: rafmagnað.  Það var eins og einhver hefði allt í einu komið inní herbergið.  Við höfðum dást að stilltri en vökulli athygli hans og kvikri forvitni en höfðum ekki fengið frá honum nema alvarlegt, næstum strangt augnatillit.  Það var einsog hann hefði, allt í einu, orðið manneskja, að hann hefði slegist í okkar hóp.  Brostið hitti mig í hjartastað.  Þetta var einstakt augnablik, ógleymanlegt.  Mér fannst eins og gleðinni hefði lostið niður eins og elding.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Hjartanlega til hamingju með daginn og þetta fallega nafn hans.

Ragnheiður , 17.1.2009 kl. 21:56

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Til hamingju með nafnið, brosið, afmæli eldri sonarins og gleðieldinguna í hjartanu. Og með nafnið á litlu frænkunni. Mikið eru terturnar þeirra fallegar. Ég skynja svo vel hvað þetta hefur verið dásamlegur dagur hjá ykkur öllum. Hamingju óskir til Hinriks afa með nafa litla og svo til ömmu og ömmu og afa.  

Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.1.2009 kl. 22:00

3 identicon

Mikið er þetta fallegt nafn

dagbjört (ókunn) (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:21

4 identicon

Innilegar haminguóskir með daginn

Dagrún (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:41

5 identicon

heil og sæl innilegar hamingjuóskir með daginn og fallegu nöfnin, æðislegar terturnar, gangi ykkur all í haginn, bestu hamingjuóskir til allra  í familíunni.

Didda ókunnug (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:46

6 identicon

Til hamingju með fallegt nafn.

Bryndís R (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:47

7 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

Innilega til hamingju með nafnið og daginn!  Yndislegt hve vel allt gengur hjá ykkur núna.  Hugsa alltaf stíft til ykkar, þó ég þekki ykkur ekkert nema í gegnum bloggið.    Falleg færsla hjá þér og vel skrifuð. 

Emma Vilhjálmsdóttir, 18.1.2009 kl. 00:03

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Innilega til hamingju. Hinrik er frábært nafn og Örn líka! Þið kunnið að velja sterk og góð nöfn á börnin ykkar.

Guðríður Haraldsdóttir, 18.1.2009 kl. 00:17

9 identicon

Vá falleg nöfn !! Til hamingju með allt saman frábæra fjölskylda. Fallegt blogg hjá þér líka. Kveðja Ella.

Ella (ókunnug) (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 00:18

10 identicon

Hjartans hamingju óskir með nafnið á drengnum hann ber mikin svip af afa sínum og nafna,bara rosa hamingjuóskir með báða strákana ,gangi ykkur allt að óskum áfram ,kærleikskveðjur.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 00:37

11 identicon

Innilega til hamingju með fallegt nafn. Ég veðjaði með sjálfri mér á Hinrik - en var ekki viss um hvað kæmi meira.....   Finnst Örn flott nafn, enda heitir maðurinn minn það : )         Til hamingju með frænkuna líka, þetta hefur verið frábær dagur hjá ykkur systrum.   Gæfuríka framtíð fyrir ykkur öll, kærar kveðjur, Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 00:58

12 identicon

Til hamingju með nafnið á litla drengnum ykkar og síðan en ekki síst með þennan yndislega bata á stóru stúlkunni ykkar.  Megi allt gott fylgja ykkur., bestu kveðjur

Sæunn ókunn (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 03:21

13 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mér finnst textinn þinn um fyrsta brosið svo yndislegur og ég er að lesa hann mér til heilsubótar fyrir svefninn. Guð blessi þig Áslaug Hinriksdóttir. Þú gefur svo mikið af þér og það er svo yndislegt.

Nafnið á afabróðir mínum (bróðir Theodórs) var Hjörtur og mér finnst alveg snilld að nafnið á Hinrik Erni skuli líka byrja á H.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.1.2009 kl. 03:26

14 identicon

Innilega til hamingju með skírnina og fallega nafnið á litla drengnum ykkar.  Kveðja Þorgerður.

Þorgerður (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 10:29

15 identicon

innilega til hamingju með þetta fallega nafn á drengnum. Og til hamingju með afmælisdrenginn.  Hafið það ætíð sem best. kv. Guðrún

Guðrún (Boston) (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 10:35

16 identicon

Til lukku með fallegt nafn :)

Kveðja 

Hrund og co.

Hrundski (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 10:58

17 identicon

Innilega til hamingju með nafnið á drengnum ykkar það er mjög fallegt og til hamingju með afmælisbarnið.

Það var alveg yndislegt að lesa þessa færslu ég fann svo vel fyrir gleðinni og kærleikanum hjá þér sem ég alveg dásamlegt.

Mínar bestu hamingjuóskir til  stórfjölskyldunar með nafnið á drengnum og allar góðu fréttirnar af Þuríði sem er bara BEST Í HEIMI.Guð veri með ykkur og megi gleðin ráð ríkjum.Kv.Birgitta 

Birgitta (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 11:05

18 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Innilega til hamingju með þriggja ára prinsinn...fallega gullmolann með nýja nafnið og frænkuna þína litlu....mjög falleg og góð nöfn bæði tvö....

Bergljót Hreinsdóttir, 18.1.2009 kl. 13:17

19 identicon

til hamingju með nafnið alveg rosalega flott og til hamingju með Theodór;)

tinna Rut (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 13:33

20 Smámynd: Aprílrós

Til hamingju með nafnið á prinsinn litla, til hamningju með 3ja ára soninn og til hamingju með nafnið á frænkunni ;)

Ég finn líka og skynja að dagurinn hafi verið góður og skemmtilegur og heppnast vel. Ég segi eins og ein þarna fyrir ofan að ég hugsa mikið til ykkar og finn og skynja, en ég þekki ykkur ekki neitt en samt finst mér ég þekkja ykkur svo mikið.

Eigið yndislegan dag elskurnar ;)

Aprílrós, 18.1.2009 kl. 14:39

21 identicon

Halló og hjartanlega til hamingju með nanfið á drengnum. Ég hitti prestinn ykkar í annari skírn í gær og spurðann hvort hann væri búinn að skíra frænda minn. Jújú hann kannaðist við það en vildi ekki segja mér nafnið því það væri foreldranna en sagði samt, ég held það hafi aldrei verið vafamál hvað hann ætti að heita. Þá glotti ég og sagði, takk hann heitir þá Hinrik  En seinna nafnið gat ég ekki fundið út. Mér finnst Hinrik Örn mjög karlmannlegt og flott nafn, hann á eftir að bera það með rentu drengurinn. Knus knus til ykkar allra og litlu frænkunnar líka.

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 15:09

22 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Til hamingju með flott nafn. Mér finnst þau bæði falleg enda heitir minn strákur Úlfar Örn. Frábært að vera búin að fá fyrsta brosið, það er alltaf sérstök stund.

Helga Magnúsdóttir, 18.1.2009 kl. 15:42

23 Smámynd: Þórunn Eva

til hamingju með nafnið elsku fjölskylda :) ótrúlega fallegt nafn... knús í klessu á ykkur,,,

love á ykkur ;*

Þórunn Eva , 18.1.2009 kl. 16:57

24 identicon

Hamingjuóskir með nafnið,já bara allt saman..Og takk fyrir mig....kv

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 18:47

25 identicon

Innilega til hamingju með nafnið á litla prins og brosið hans. Mjög fallegt.

GunnaG (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 18:52

26 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Innilegar hamingjuóskir með þennan líka yndislegan dag.Þetta verður án efa eftirminnasti dagur í lífi ykkar.Knús á ykkur öll.Þið eigið stórt pláss í hjarta mínu.Guð geymi ykkur

Sædís Hafsteinsdóttir, 18.1.2009 kl. 20:39

27 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Innilegar hamingjuóskir með fallegt nafn, 3 ára afmæli og yndislega fyrsta brosið.

Bergdís Rósantsdóttir, 18.1.2009 kl. 20:43

28 identicon

Til hamingju með fallegt nafn elsku fjölskylda, já og bara allt þennan dag. Þessi yndislegu orð þín Áslaug hitta mann beint í hjartastað, því hvað er fallegra en bros saklauss  barns Guð geymi ykkur.

Kristín (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 22:48

29 identicon

Hjartans hamingjuóskir með fallega nafnið á litla dregnum ykkar.

Þú varst að segja að hefðu verið uooi getgátur um nafni.  Einhver hlýtur að hafa látið sér detta þetta í hug, ekki síst þegar haft er í huga að þið eruð með fjölskyldunöfn á hópnum ykkar, sem mér finnst svo skemmtilegt.

Sendi kæra kveðju í húsið.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 10:20

30 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Hjartanlega til hamingju með daginn og þetta fallega nafn hans

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 19.1.2009 kl. 10:23

31 identicon

Kæra Fjölskylda

Innilega til hamingju með nafnið.

Bestu Kveðjur

Silla Karen

Silla Karen (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 13:19

32 identicon

Sæl og blessuð

Til lukku öll sömul með nöfnin og börnin. Hugsa alltaf til ykkar.

Bið að heilsa mömmu og pabba.

Bestu kveðjur

Elsie

Elsie (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 14:08

33 identicon

Til hamingju með fréttirnar úr myndatökunum.

Kveðja Benný

Benný (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband