Leita í fréttum mbl.is

Brjálað að gera

P1176858*
Hérna eru skírnarbörnin og frændsystkinin Hinrik Örn og Tanja Lind en það er 20 daga aldursmunur.

Klikkað að gera hjá okkur, mín byrjuð í skólanum og kem mér ekki alveg í þann gírinn, Oddný æfir sund 3x í viku og Theodór 2x og svo er Þuríður mín að byrja á reiðnámskeiði 2x í viku sem hún getur ekki beðið eftir.  Þannig okkur leiðist ekkert, ekki það að við gerðum það eitthvað fyrir öll námskeiðin ehehe.

Þuríður mín er bara hress og kát, er algjörlega hætt að leggja sig á daginn sem er frábært.  Er vöknuð fyrir kl sjö á morgnanna og stundum ekki sofnuð fyrr en þegar við erum að fara sofa svoleiðis er orkan í þessu barni sem er að sjálfsögðu frábært enda best að hafa hana svoleiðis en sofandi hálfan sólarhringinn uppdópaða af lyfjum.

Well er farin núna að skutla henni Oddnýju minni á eitt stk námskeið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með fallega nafnið á hnoðranum, nafnið fer honum vel, er sterkt eins og öll hin nöfnin og já bara rosalega fallegt.  Verð líka að taka undir hér með einni sem kommentaði á síðustu færslu hjá þér, mikið er fallegt að lesa um fyrsta brosið, þú ert ótrúleg kona Áslaug og takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér í gegnum skrif þín!

Dugleg er hún hetjan ykkar og gott að lesa hversu hress og kát og orkumikil hún er.  Tendra ljós og sendi ykkur kærleiksknús

4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 16:59

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið eru þau falleg blessuð frændsystkinin. Hann sýnist bera höfuð og herðar yfir frænku sína, sennilega er hún ekki orðin eins styrk að sitja, þessi elska. Heyrðu, það er bara BRJÁLAÐ að gera og allir á full sving. Frábært að hetjan sé hætt að þurfa svefn á daginn. Þetta er allt upp á við í sveitinni.  

Hvað er margir klukkutímar í sólarhringnum í Hafnarfirði ???

Hólmfríður Bjarnadóttir, 19.1.2009 kl. 17:25

3 Smámynd: Aprílrós

Það er alsekki lognmollan allavega á þínu heimili elskan mín ;)

Þið eruð yndisleg öll sem eitt ;)

Aprílrós, 19.1.2009 kl. 17:29

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Alltaf gaman að heyra þegar Þuríði fer fram.

Helga Magnúsdóttir, 19.1.2009 kl. 19:24

5 identicon

Hvað ég kannast við svona sækjum/sendum. Þegar maður keyrir frá Kef til Rvk 4x í viku til að fara í skóla, brunar svo til að sækja/senda börnin á æfingar. Og ég á sko bara 2!! Dís í sundi 3x í viku og fimleikum 2x í viku (á að vera 3x en er í árekstri við sundið 1x í viku) og svo er Líf "bara" 1x í viku í sundi (var 2x fyrir áramót). Þegar ég er svo búin að sækja þetta og senda, sinna heimalærdómi stórunnar, elda matinn og ganga frá, lesa, hátta og koma í bólið - tja, þá fara þessar tvær stundir frá 21-23 í eitthvað allt annað en lærdóm :O Kannski ég geti ráðið einhvern til að lesa fyrir mig í bílnum á Rnbrautinni ehe.

Og ég á bara 2 börn - bæði heilbrigð í þokkabót (og þakka ég fyrir það á hverjum degi). 

En Þuríður er frábær! Alltaf jafn gaman að lesa um framfarirnar og aukið úthald :) Þú hlýtur svo að komast í lærdómsgírinn þegar tíminn er réttur (kortér í próf??).

Knús og haldið áfram á sömu braut stórkostlega fjölskylda

Súsanna (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 19:40

6 identicon

Flott frændsystkin! Til hamingju með nöfnin. Til hamingju með þetta allt saman. Svo gaman að lesa færslurnar þínar, eintóm gleði. Þvílík hetja, hún Þuríður Arna. Kærleiksknús í hús.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 19:57

7 identicon

Það er endalaust gaman að fylgjast með ykkur um þessar mundir.

Myndin af frændsystkynunum er kannski villandi því Hinrik situr ofar en hann er samt greinilega miklu stærri.

Greinilegt líka á planinu að Áslaug hefur lítinn tíma fyrir skólann, en hún hefur sýnt að hún getur það sem hún vill.

Kær kveðja í húsið.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 09:45

8 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Kús á þig duglega kona.Tú ert hetja í mínum augum

Sædís Hafsteinsdóttir, 20.1.2009 kl. 12:16

9 identicon

Nóg að gera á stóru heimili. Falleg litlu frændsystkinin. Knús á ykkur öll .

Kristín (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 20:43

10 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Hjartanlega til hamingju med tessi fallegu nöfn.

Kvedja frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 21.1.2009 kl. 08:57

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og ljúfar yndislegar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.1.2009 kl. 14:12

12 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Hinrik Örn er fallegt og hljómmikið nafn. Hæfir vel þessum litla karlmanni!

Ylfa Mist Helgadóttir, 22.1.2009 kl. 00:41

13 identicon

hæ og hó elskurnar mínar allt lokað og læst á barnalandssíðunni þegar amma ætlaði að fara að senda afmæliskveðju,en litli (stóri)ljósálfakrulluprinspungurinn fær ástarkveðjur og hamingjuóskir með þriggja ára afmælið sitt frá ömmu og afa á Ásó.megi hann og þið öll eiga ánægjulegann dag,heyrumst seinna í d,

abesta@simnet.is (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband