Leita í fréttum mbl.is

Hann á afmæli í dag....

Elsku flottasti 3 ára töffari minn hann Theodór á afmæli í dag.  Er í leikskólanum í dag en ætlaði að velja bollur í tilefni dagsins og bjóða krökkunum en er búin að heimta hamborgara í kvöldmatinn, þetta er drengur sem veit hvað hann vill.  Bíður væntanlega spenntur eftir því að komast heim því þá átti hann að fá pakkann frá okkur fjölskyldunni sem Skari og Þuríður eru að setja saman núna. Bara spennandi.

teddi
Hérna er þriggja ára töffari minn hann Theodór en þarna er hann ca 6 klukkutíma gamall á leiðinni heim af spítalanum.  Ótrúlegt að það séu liðin þrjú ár og annar svona gaur mættur í heiminn.  Er til eitthvað annað yndislegra?
P1217073
...og svo var þessi tekinn af honum í fyrradag í pottnum í Húsafelli.

Lítill tími fyrir meiri skrif, vorum að koma heim frá Húsafelli þar sem við vorum í sumarbústað og höfðum það ótrúlega gott ásamt  Oddnýju systir og fjölsk.  Við Skari á leiðinni á foreldrafund uppí skóla hjá hetjunni minni, ég þarf að læra heilan helling þar sem það var lítið um það í bústaðnum, undirbúa litla nágranna-afmælisveislu sem verður haldin á morgun og og og og og og...........

Góða helgi.

...og svo ein af þeim systrum sem var líka tekin fyrir þremur árum, eru þær flottastar eða hvað?
tonlist


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

kærar kveðjur..til flottra barna og foreldra. 

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 12:57

2 identicon

Innilegar hamingjuóskir elskurnar mínar...god það er nóg að gera hjá þér Áslaug mín og að sjálfsögðu sýnir þú hvers megnug þú ert..krafturinn þinn er ótrúlegur.Eigið þið yndislegan dag...knús

Björk töffari (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 13:36

3 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Flottir tónlistarmenn

Margrét Birna Auðunsdóttir, 23.1.2009 kl. 14:22

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Til hamingju Theodór Ingi með 3ja ára afmælið. Flott að fá hamborgara í afmælismatinn. Svo er pottmyndin af þér mjög fín.

Mikið er gaman og gott að lesa fréttirnar frá ykkur    Guð veri með ykkur öllum. Yndisleg helgi.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.1.2009 kl. 14:26

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 Innilega til hamingju med afmælisbarnid...hann er audvitad bara flottastur! og thau øll, já timinn er fljótur ad lida og børnin alltof fljót ad stækka finnst manni stundum.

Góda helgi og hafid thad gott kæra fjølskylda.

María Guðmundsdóttir, 23.1.2009 kl. 15:42

6 identicon

Til hamingju með piltinn 

 Þú ert algjörlega frábær og veitir manni þvílíka orku svona í gegnum skjáinn

Gangi ykkur allt í haginn.

Kv.
Þórunn

Þórunn (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 15:53

7 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Til hamingju með afmælisdrengin og öll þín yndislegu börn.Eg vildi óska að eg gæti útskyrt hvað þú ert að gefa mer með þínum skrifum en allavega líður mer alltaf svo vel  þegar þeim lestri er lokið.Hafið goða helgi

Sædís Hafsteinsdóttir, 23.1.2009 kl. 17:29

8 Smámynd: Aprílrós

Stelpurnar flottar í sinni hljómsveit ;) Til hamingju með pottgæjann.

Já ég tek undir það hvað þú gefur manni mikla orku í gegnum skjáinn, endalaus orka orka orka., þrátt fyrir veikt barn, og stóra fjölskyldu og allir í sínu tómstundaverkum. Þetta er ekki hægt nema með góðu skipulagi ;)

Góða helgi ;)

Aprílrós, 23.1.2009 kl. 22:51

9 identicon

Tek undir hamingjuóskir annarra hér að ofan með Theodór Inga

Gott þið nutuð dvalarinnar í Húsafelli.  Falleg öll börnin ykkar og myndarleg.  Gangi þér námið og lífið sem best.  Þið eruð miklir orkuboltar öll Góðar helgarkveðjur,  Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 12:44

10 identicon

Til hamingju með afmælisbarnið.  Held áfram að biðja fyrir ykkur elsku fjölskylda. Góða helgi.

Kristín (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 16:58

11 identicon

Innilega til hamingju með prinsinn ;) Bestu kveðjur úr firðinum fagra ;*

Esther og Guðmundur Orri (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 21:58

12 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

Til hamingju með afmælisbarnið!

Yndislega falleg börn sem þið eigið.

Hafið það alltaf sem allra best.

Emma Vilhjálmsdóttir, 25.1.2009 kl. 03:35

13 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Til hamingju með elsku Theadór elsku fjölskylda...knús og klemm

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.1.2009 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband