Leita í fréttum mbl.is

Erum á leiðinni...

....uppá spítala, Þuríður mín Arna er að fara í lyfjamælingu og ath hvernig statusinn er á lyfjunum hennar en fyrst förum við uppá heilsugæslu en þá fær hetjan mín 5 ára sprautuna en samt að verða 7 ára.  Hún hefur aldrei mátt fá hana vegna meðferðar sinnar því þá er ónæmiskerfið hennar svo slæmt en loksins fær hún hana, þannig stúlkan fær tvær sprautu í dag sem verður nú lítið mál fyrir hana.  Enda alltaf þegar við mætum uppá spítala, klæðir hún sig sjálf úr bolnum sínum leggst í stólinn og leyfir að sprauta sig í brunninn sinn.  Lítið mál fyrir Þuríði stál!!  Ætlum líka að kíkja yfir til Bjarkar stór töffara og hetju sem er að fá lyfin sín í dag það er ekki langt að fara, bara "næsti" gangur.

Loksins þegar Þuríður mín er komin í vetrarfrí í skólanum þá eru endalausar spítalaferðir, þarf einmitt líka að mæta í fyrramálið og svo aftur á mánudag við sem ætluðum að hafa það kósý þessa daga.  Well.....

Endalaust mikið að gera hjá okkur og stundum sé ég dáltið eftir því að hafa ekki tekið mér frí þessa önnina í skólanum en það þýðir víst lítið að svekkja sig á því núna en ætla samt að segja mig úr einni greininni og vera bara í þremur.  Verð líka stundum að sætta mig við það að ég get ekki allt þó viljinn sé fyrir hendi.

Farnar (reyndar farin þar sem Hinrik er með í för hehe) í sprauturnar...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Eigið góðan dag kæra fjölskylda

Sædís Hafsteinsdóttir, 26.2.2009 kl. 10:15

2 identicon

Hæ sætu og takk fyrir að kíkja til mín elskurnar og Þuríður mín þú ert alltaf jafn falleg og yndisleg..dugleg með eindæmum.Hlakka til að kíkja í ræktina með þér Áslaug mín....og við sjáumst vonandi fljótlega..knús á línuna

Ps..Hinrik er orðin svo stór og svo mikill töffari ég held að hann sé að ná okkur Þuríði..hehehe hann er æði

Björk töffari (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 12:01

3 identicon

Vona að allt verði í lagi og gangi vel hjá ykkur í dag.  Já stundum þurfum við að staldra við, að vera 4 barna mamma er barasta fullt jobb svo einfalt er það.  Það er líka svo vont fyrir okkur ef við keyrum út á orkunni, ég er ekki ólík þér, ég hef oft komist í gegnum dagana bara á viljanum einum saman.  En ég hef lært með árunum að stundum verð ég að stoppa við og hugsa um hvernig mér sjálfri líður og hvað líkaminn segir.  Ég hef þurft að segja nei...nú stoppa ég við, sest niður og geri bara ekki neitt.  Að fara einn út í göngutúr er líka mjög svo orkugefandi, að hugsa ekki neitt og tala ekki neitt.  Maður hleður allavegna 4 batterí með 20 mín göngu

Bið guð að gæta ykkar  kveðja 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 12:12

4 Smámynd: Elsa Nielsen

Gangi ykkur vel í dag Slauga ofurmamma - flottar myndir af ríkidæminu þínu í síðustu færslu ;)

KNÚS

Elsa Nielsen, 26.2.2009 kl. 12:49

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gangi ykkur allt í haginn.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 26.2.2009 kl. 13:50

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

gangi ykkur vel i sprauteríinu.

María Guðmundsdóttir, 26.2.2009 kl. 18:40

7 identicon

Í hvaða skóla ertu að taka stúdentinn? Langar svo að vita, þú ert alltaf að tala um skólann! Dáist að dugnaðinum. Með nýfætt barna, annað veikt og svo tvö önnur. Þú ert kjarnakona!!!

Gunnsa (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband