Leita í fréttum mbl.is

Lífið - nr.4

Núna eru komin rúm sjö ár síðan ég var í 100% vinnu, ætlaði að fara á vinnumarkaðinn þegar Oddný Erla mín var sjö mánaða og meir að segja komin með vinnu en þá kom áfallið.  Þuríður mín veiktist og þá var ekkert annað í boði en að vera heimavinnandi, jú ég hef verið í aukavinnu sem hafa oft bjargað geðheilsu minni enda með skemmtilegustu vinnum sem ég hef verið í.  Hitti mikið af skemmtilegu fólki og get fíflast mikið við kúnnana og haft það bara gaman, sakna þess oft að vera ekki í þeirri vinnu.

 

En það fer oft í mig þegar fólk segir við mig að ég eigi bara að njóta þess að vera heimavinnandi það eru bara forréttindi, margir sem vildu vera í þeirri stöðu að geta það.  Ég lít ekki á það sem forréttindi fyrir mig að vera heima þetta er eitthvað sem ég þarf að gera og það er ekkert annað í boði, vonandi samt einn daginn get ég litið á það sem forréttindi og verið heima vegna þess mig langar til þess, verið til staðar fyrir börnin mín og ég haft efni á því.  Það eru FORRÉTTINDI!!

 

Í dag eru rúm tvö ár síðan hún fékk síðast krampa og þar á leiðandi ekki farið í nein heilalínurit eða þess háttar.  Alveg ótrúlegt kraftaverk með það að gera því þeir voru alveg um 50 á dag.  Geggjað góður draumur!!  Ég meina stúlkan gat ekki gengið um nema orðið með hjálm um höfuðið til að hlífa því og við stressuð labbandi á eftir henni til að reyna minnka höggið því það var aldrei neinn fyrirvari á flogunum hennar, hún hrundi bara niður.  Oft sat maður grátandi yfir henni, fann svo mikið til bæði ég að horfa á hana þjáðst og hún að sjálfsögðu kvalin en aldrei hefur hún kunnað að kvarta.  Hefur bara ekki þekkt neitt annað en í dag er hún farin að upplifa hluti sem hún hefur aldrei gert þess vegna ætlum við að eiga veikindalaust sumar núna í sumar sem verður okkar fyrsta síðan hún veiktist og njóta þess í botn.  Eins gott að það verði GEÐVEIKT veður í sumar því ekki verður nein sólarlandaferð á þessu heimili.

 

Ég hef verið að horfa á gömul myndbönd með henni sem hún var sem veikust, ég bara hef ekki áttað mig á því fyrr en ég horfði á þau hvað hún var orðin veik. L  Hrikalega erfitt að horfa á þau en samt mjög gott því ég sé hvað hún hefur það svo gott í dag og hvað hún er mikið KRAFTAVERK!!  Jebbs ég veit, ég get taulast á því endalaust.  Horfa á hana frá því hún var í Boston, nýkomin úr heilaaðgerð var hrikalega erfitt.  Ég kasólétt af Theodóri mínum, við Skari tvö í Boston engin nákominn nálægt bara netið var hrikalega erfitt sem ég ætla mér aldrei að upplifa aftur.  Ef það kæmi einhverntíman að því að hún þyrfti að fara aftur til Boston í einhverja aðgerð myndi ég biðja fólkið mitt að fylgja en það mun reyndar aldrei koma af því þannig ég þarf ekkert að hugsa meir um það J.

 

Ég veit allavega í dag að óskir manns rætast bara ef maður biður fallega.  Ég hef ekkert þurft að komast undir regnbogann.  Yndislegt líf!!

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Já óskirnar rætast ef maður biður fallega. Þetta er ekki neitt bull heldur sannleikurinn holdi klæddur. Hugurinn er okkar sterkasta afl og það fylgir því mikil ábyrgð hvaða maður hugsar. Neikvæðni skilar okkur neikvæðu lífi og jákvæð hugsun skilar okkur jákvæðu lífi.

Í tilfellum eins og ykkar er jákvæðnin lykilatriði og skiptir bara öllu. Þið eruð skólabókardæmi um árangur jákvæðni, lífsvilja og kærleika.

Varðandi Þuríði og Idolið þá er ég viss um að hægt er að taka upp lagið henar Ég er kraftaverk og sýna það af myndbandi í Smáralindinni. Ég fæ hamingjuholl og tilhlökkunarfiðring við að skrifa þetta hér á bloggið.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.3.2009 kl. 16:33

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gleymdi þessu með forréttindin. Mér finnst allt tal um forréttindi vera svo afstætt. Ef ég tel að einhver njóti forréttinda, er ég þá ekki um leið að öfunda viðkomandi. Öfund er neikvæð tilfinning og best að losa sig við hana. Mér finnst orðið forréttindi ekki eiga við í umræðum um ykkur og skil ekki þá greiningu.

Þið eruð hugrökk en samt hrædd, þið eruð djörf en samt varkár, þið hafið verið skelfingu lostin en samt ekki tilbúin til uppgjafar, þið eruð venjulegt fólk með ótrúlegt úthald, þið eruð gríðarlega rík en trúlega ekki sterk efnuð.

NIÐURSTAÐA - ÞIÐ ERUÐ FRÁBÆR

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.3.2009 kl. 16:47

3 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 23.3.2009 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband