Leita í fréttum mbl.is

Þreyttar mæðgur

Við mæðgur erum frekar þreyttar þessa dagana.  Þuríður mín er frekar orkulítil svo það er eins gott að það er að koma páskafrí svo hún geti hvílt sig aðeins og safnað smá orku fyrir síðasta sprettinn í skólanum.  Segist bara vilja vera heima eftir skóla, nennir ekki neinu og vill bara liggja uppí sófa.  Reyndar segist hún núna vera með hausverk og liggur bara fyrir en getur nú samt horft á uppáhaldið sitt hana Dóru.

Hinrik minn er eitthvað slappur þessa dagana, mikið kvefaður og lítill í sér.  Vona að hann sé ekki að fá þessa flensu sem er að ganga og þess á móti sefur drengurinn frekar lítið en hann var farinn að sofa betur á nóttinni eftir að ég byrjaði að gefa honum grautinn sinn fyrir svefn en núna vill hann lítið sem ekkert borða.  Meir að segja vill hann lítið sjá mjólkubúið sitt og þá er nú mikið sagt annars vill hann bara kúra í mömmukoti en þar líður honum best.

Þannig mín er frekar þreytt en það líður nú hjáWhistling, finn líka meira til með litla kvefaða manninum mínum og hausverkjastelpunni minni.

Þó svo að það er mánuður og tæpir tveir mánuðir í afmæli stelpnanna minna er komin langur óskalisti hehe og mín var svo heppin að finna eina búð sem er að hætta og með mikinn afslátt og mun að sjálfsögðu gera góð kaup þar fyrir þær.  Var bara svo sniðug að hringja og ath hvort eitt á óskalistanum væri til og lét taka frá.  Maður nýtir öll tilboð sem maður finnur þar að segja ef maður þarf á þeim að halda hehe, ætla mér ekkert að fara í einhverja verkfærabúð því þeir eru að bjóða 50% afslátt af öllu mhúahaha!! 

Mikill lærdómur sem bíður mín, úúúfffhh!!  Mikið verð ég fegin þegar þessi önn verður búin og veit ekki hvað ég ætla að gera næstu önn, frekar leiðinleg viðmót sem maður fær frá fagstjóranum sem ég þoli ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sendi ykkur kærleiksknús í gegnum netið með von um að ekki sé nú flensan að stinga sér inn á heimilið.  Það fannst mér alltaf erfiðast...þegar ALLIR 4 strumparnir mínir lögðust hver á eftir öðrum.....já ég veit ekki á hvaða orku ég keyrði þá ennn það tókst alltaf.  Tendra ljós og fer með bænir til handa ykkur.

Það er alltaf gott þegar kemur frí til að hlaða batteríin jafnt hja stórum sem smáum

kærleikskveðja 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 15:15

2 identicon

Elsku hetjan mín...hvíldu þig ef þú þarft að safna orku,ég hugsa mikið til ykkar og vona svo innilega að við getum farið að hittast aftur,en ég hef verið í dálítilli einangrun þar sem blóðið mitt er lélegt...en ég vona líka að  flensan sé ekki að ná ykkur.Guð veri með ykkur elskurnar..luv u

Björk töffari (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 16:08

3 identicon

Hafið það sem best, alltaf! Rjómabollan tekur sig vel út í Mogganum í dag.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 16:23

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Svo "rjómabollan" er kominn í blöðin. Flottur drengur eins og vant er. Kvef og höfuðverkur í heimsókn, ekki skemmtilegir gestir, en stoppa vonandi ekki lengi. Er ekki hissa þó þreyta sé að gera vart við sig hjá ykkur, en páskarnir nýtast vonandi vel til hvíldar og samveru.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 24.3.2009 kl. 18:36

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

María Guðmundsdóttir, 25.3.2009 kl. 06:57

6 identicon

Þú ert dugleg og Þuríður er duglegust ;)

ókunn (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 11:38

7 Smámynd: Þórunn Eva

knús á þig fallegust.. hlakka til að sjá þig um helgina ef ég kemst ;)

Þórunn Eva , 25.3.2009 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband