Leita í fréttum mbl.is

Komin heim

Jibbíjei, Hinrik minn farinn að drekka aðeins betur en samt ekki nógu vel og mín svo stressuð að missa mjólkurbúið.  Hann er aðeins hressari en samt ekki nógu hress, jú ekki með hita en endalaust slím í honum og sefur mjög illa.  Greyjið litli!!  Hann verður samt fljótur að hrista þetta af sér, verður bara vafinn í bómul um helgina og lætur dekra aðeins meira en venjulega við sig hvernig sem það er hægt hehe.

Mín ætlar líka að dekra við hinn mömmupunginn minn hann Theodór sem þráir að eiga mömmu sína ALEINN og við ætlum að skreppa aðeins tvö um helgina, helst vill hann bara púsla með mér hehe og sjá tígrisdýrin hehe.  Við ætlum sem sagt að eiga smástund saman, kíkja á Íslandsmótið í badminton og húsdýragarðurinn verður að duga í þetta sinn svo fær hann kanski að sjá tígrisdýrin seinna.  Stelpurnar eru bara sáttar við það þar sem þær fá e-ð mjög skemmtilegt eftir vikuWhistling ...og jú líka vegna þess við ætlum að labba útí bensínstöð fyrir Idolið í kvöld (engin sjoppa í sveitinni) og kaupa okkur heilan helling af gotteríi og það dugar fyrir þær.  Bara að fá að labba þangað er geðveikt sport.

Eigið góða helgi kæru lesendur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eigið góða helgi kæra fjölskylda. Kveðja Þorgerður..

Þorgerður (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 17:15

2 identicon

Velkomin heim. Eigið góða helgi elsku fjölskylda.

Kristín (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 17:30

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.3.2009 kl. 19:51

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gott að Hinrik er að hressast, eigið góða helgi

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.3.2009 kl. 21:54

5 Smámynd: Elsa Nielsen

Ég held barasta að hoppugrindin eigi eftir að hressa Hinrik litla við ;)... kannski verð ég bara með hana í skottinu um helgina! Sé ykkur vonandi á morgun!

KNÚS

Elsa Nielsen, 27.3.2009 kl. 22:50

6 Smámynd: Aprílrós

Velkominn heim Hinrik og eigið góða helgi yndislega fjölskylda ;)

Aprílrós, 28.3.2009 kl. 07:36

7 identicon

Hæ elskurnar...gott að vita að litli mann er komin heim og er að ná sér.Hetjan mín fær knús og koss inn í helgina og mikið hlakka ég til að hitta ykkur næst.Luv u og njótið helgarinnar.

Björk töffari (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband