Leita í fréttum mbl.is

Læknaheimsókn í morgun og fleiri á næstunni

Fórum með Þuríði mína í smá læknaheimsókn í morgun, hún er í smá "rannsóknum".  Teknar blóðprufur og þess háttar, það er nefnilega verið ath ýmislegt hjá henni t.d. hvort hún megi fara í þetta til að hjálpa henni að vaxa en það er ekki víst því það gæti haft áhrif á æxlið og ef það eru e-h líkur á því viljum við ekki að hún fari í þetta.  Við tökum enga sénsa með hana, þá verður hún "bara" lítil. 

Svo er annað sem er verið að skoða en þið munið kanski í byrjun árs þá fundum við einhverskonar "hnúð" fyrir aftan eyrað hennar sem læknarnir vissu ekkert hvað væri en það komu allavega engar skuggamyndir í myndatökunum þannig að þeir héldu að það væri ekkert illkynja að myndast sem var náttúrlega frábært en við áttum að halda áfram að fylgjast með þessu sem ég hef að sjálfsögðu gert.  Núna hefur þetta e-ð breyst og annað komið þar við hliðina og læknarnir vita ekki ennþá hvað þetta sé og þá telja þeir ekkert annað en í stöðunni en að taka þetta og setja í ræktun sem ég er að sjálfsögðu ánægð með því þá hættir maður kanski að vera með í maganum yfir þessu sem ENGIN veit hvað er.  Þannig á næstunni munum við hitta tvo "nýja" lækna annan útaf vextinum og hinn útaf "hnúðunum".  (veit ekki hvað ég á að kalla þetta)  Hún á sem sagt á næstum vikum að fara í aðgerð og fjarlægja þetta og þá vitum við meira annars er það bara þessi óvissa sem er svo fræg á þessum bæ.  En auðvidað hef ég trú á því að þetta sé "ekkert".

Hún er annars ótrúlega hress, yndislegt að fylgjast með henni á þessari uppleið sem hún er í þess vegna hef ég heldur enga trú á því að það sé e-ð illt að henda hana núna.  ENGA TRÚ!!  Sumarið er líka á leiðinni og það á eftir að vera svoooo skemmtilegt hjá okkur að hálfa væri miklu meir en nóg, ferðast um landið og bara vera ÖLL saman.  Hefði samt ekkert á móti því að fara í sólarlandaferð en það er ekki í boði enda alveg sátt við að ferðast um landið.Sideways  Verður okkar fyrsta sumar sem við ætlum að vera "laus" við "öll" veikindi það verður ekkert spítalabögg í sumar, við neitum því alfarið.

Stelpurnar mínar eru líka farnar að telja niður dagana í afmælin sín og eru sko alveg með það á hreinu hvað þeim langar í, víííí!!  Búin að tala við bestu vinkonu (ein leikona sem hefur orðið góð vinkona Þuríðar minnar í öllum hennar veikindum og góð vinátta hefur þar myndast á milli þeirra) Þuríðar og auðvidað Oddnýjar líka sem ætlar að vera laus þegar við höldum uppá afmælin þeirra.  Jíbbbíjeij!!

Getið annars kíkt á þessa slóð smá frá Idolinu:
http://www.visir.is/article/20090416/LIFID14/807400076/-1

Farin útí göngutúr í góða veðrinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það bara getur ekki verið að eitthvað sé bogið einmitt vegna þess hvað hún er í endalausri framför, okkar stúlka.

Ég er þannig gerð að ég ætti rosa erfitt með að bíða vildi að þetta yrði strax tekið, en eins og þú segir þið eruð svo vön í að bíða.

Þessi STÓRFJÖLSKYLDA er perlufjölskylda.

Sendi kærar kveðjur frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 15:02

2 Smámynd: Freyja Haraldsdóttir

Ef ske kynni að hún geti ekki farið á lyf til að stækka þá get ég alveg staðfest að þó það hafi stundum verið erfitt að vera lítil þá venst það alveg ótrúlega vel :) ... Sérstaklega þar sem hún á fjölskyldu með ykkar viðhorf :)

Annars er ég í verknámi í Norðlingaskóla þessar vikurnar og var á Kína kynningu með bekk hetjunnar þinnar í dag ... hún var verulega áhugasöm yfir þessari framandi menningu Kínverja.

 Ég hlakka til að heyra góðu niðurstöðurnar úr rannsóknunum

Kv. Freyja

Freyja Haraldsdóttir, 16.4.2009 kl. 18:13

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

 Það er sko í lagi að vera lítil, ég er 1,60 og systir mín lægri, en okkur hefur gengið vel að standa uppi í hárinu á lífinu.

Hef enga trú á að hnúðarnir séu neitt slæmt, hún er svo hress þessi elska og er í svo mikilli framför. Horfði á ykkur í gær eða fyrradag og þið eruð frábær

Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.4.2009 kl. 00:02

4 Smámynd: Aprílrós

ég sá þegar Jói og Simmi voru að tala við þær ;)

Sko orðnar frægar ;)

Ég óska ykkur góðs gengis ;)

Aprílrós, 17.4.2009 kl. 00:19

5 identicon

Gangi þér vel elsku fallega hetjan mín og ég er sannfærð um að það er ekkert að,krossa allt sem ég get krossað og svo verðum við að fara að hittast aftur..njótið helgarinnar elskurnar..love

Björk töffari (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 09:45

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

engin spurning, koma gódar nidurstødur úr thessu, vid trúum thvi af fullum krafti.

Hafid góda helgi

María Guðmundsdóttir, 17.4.2009 kl. 15:31

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og ljúfar kveðjur :0)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 18.4.2009 kl. 20:47

8 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Bergljót Hreinsdóttir, 19.4.2009 kl. 01:49

9 identicon

Mikið voruð þið flott á idolinu :)

Sonur minn er einmit með svona lítinn hnúð bak við annað eyrað og hefur verið með í allveg ár(hann er 4ára). Lét barnalækni einmitt kíkja á þetta og hann skoðaði og sagði svo já svona þetta er svo algengt og ekkert hættulegt. Sagði að börn fengju oft svona eftir kvefpest, stíflaður kirtill... kann ekki allveg að útskýra það :)  maður ætti kannski að láta skoða þetta aftur.

ÉG trúi því að Þuríður komi glymrandi vel út úr öllum rannsóknunum :)  Ég held að það sé nú líka allt annað mál að vera pínu lágvaxin stelpa en að vera lágvaxin strákur.

KVeðja frá mömmu sem er ekki sama

Guðrún (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 13:19

10 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Gangi ykkur sem allra best dúllurnar ykkar.Margur er klár þótt hún se smá

Sædís Hafsteinsdóttir, 20.4.2009 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband