Leita í fréttum mbl.is

Færsla tvö í dag

Jihdúddamía það mætti halda að það væri ekkert að gera hjá mér eheh bara komin með færslu tvö í dag er reyndar í rólegheitunum núna "bara" með strákana mína heima á meðan hin þrjú fórum uppá Skaga á fótboltaæfingu.

Langaði nú bara að koma með update frá heimsókninni okkar Þuríðar hjá skurðlækninum en hún mun fara í aðgerð einhverntíman í maí og þá verður þetta fjarlægt og sett í ræktun.  Ég veit ekki alveg afhverju ég sagði að þetta væri bakvið eyrað en þetta er við gagnaugað eða þar eru komin tvö stykki af "einhverju" og þriðja farið að birtast aftan á hálsi og engin veit neitt hvað þetta sé eða læknarnir vilja ekkert vera með neinar ágiskanir um þetta sem ég skil mjög vel.  Ef þú ert ekki viss þá er betra að þegja.  Auðvidað er maður stressuð yfir þessa, hetjan mín sína "sögu" og einhverjir "hnúðar" að birtast hjá henni en auðvidað þurfum við að bíða e-ð en vonandi ekki mjög lengi eftir að hún fari í aðgerðina og svo bíða eftir að þetta komi úr ræktun.

Theodór minn er svakalega spenntur fyrir helginni en hann á að fá dekurhelgi, stelpurnar sendar uppá Skaga í annað dekur og Theodór fær að vera "einn" með mömmu og pabba.  Eina sem hann bað um sérstaklega að gera um helgina var að fá að raka sig með pabba sínum hehe og versla afmælispakka handa Oddnýju Erlu sinni og auðvidað verður bæði gert og e-ð fleira.  Hann hefur nefnilega átt dáltið erfitt síðustu vikurnar, frekar erfitt að annar pungsi mætir á svæðið og hann á ekki "einn" mömmu sína lengur þess vegna fær hann heila helgi í dekur og ath hvort hann lagist ekki aðeins í skapinu og svona.

P4098368
Rjómabollan í ungbarnasundi

Gleðilegt sumar allir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ, það er svo gott að vera í vatninu. Eigið Góða helgi, og Gleðilegt sumar, kæra fjölskylda.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 17:58

2 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Kærleikskveðja frá Hellu

Agnes Ólöf Thorarensen, 22.4.2009 kl. 22:32

3 identicon

Elsku fallega hetjan mín...takk fyrir falleg orð á síðunni þinni og þú ert og verður ávallt hetjan mín.Við berjumst saman og ætlum að vinna.Við verðum kraftaverk guðs.Elsku snúllan mín,hlakka til að hitta þig og ég veit að ljósið gerir gott fyrir alla.Elska þig

Björk töffari (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 23:59

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Gleðilegt og heillaríkt sumar...og mundu...að meðan líf er...er von...

Bergljót Hreinsdóttir, 23.4.2009 kl. 00:22

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Skil áhyggjur ykkar en vona það besta eins og alltaf. Mikið er Hinrik Örn orðinn stór og duglegur, svamlar þarna eins og greyfi með þjón og alles. Bestu dekurkveðjur til Theodórs og góða helgi þið öll.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.4.2009 kl. 01:15

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

kærleikskvedja hédan, hafid thad sem best kæra fjølskylda

María Guðmundsdóttir, 23.4.2009 kl. 07:25

7 identicon

Gleðilegt sumar og eigið góða helgi

Kærleikskveðjur

Dagrún (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 08:43

8 Smámynd: Adda Laufey


Adda Laufey , 23.4.2009 kl. 21:03

9 Smámynd: Elsa Nielsen

KNÚÚÚS... og gleðilegt sumar!

Elsa Nielsen, 23.4.2009 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband