Leita í fréttum mbl.is

Nokkrar frá spítalanum

P5110003
Björkin okkar kom og kíkti á okkur uppá spítala, þarna er hún ásamt Hinrik mínum og Þuríði minni sem langaði sko ekkert í myndatökur hehe.
P5110019
Þessi drengur er alltaf brosandi, þvílíkt draumabarn.  Hann er svo rólegur, heyrist varla í honum nema þegar hann er svangur og þreyttur.
P5110012
Þuríður mín nýkomin úr aðgerðinni og sefur að sjálfsögðu.  Nei hún er ekki með snuddu uppí sér, æjhi ég man aldrei hvað þetta kallast en well....

Skemmtileg helgi framundan, partý hjá okkur tvö kvöld í röð sem krakkarnir bíða svakalega spenntir eftir og við að sjálfsögðu líka.  Mín búin að fá allar einkunnir sem ég að sjálfsögðu stóðst með prýði þó svo ég hafi ekki nennt mikið að læra í vetur.  Er mikið að pæla með áframhaldandi nám, er ekki alveg viss hvað ég fari í en það kemur til greina að halda áfram í þessu sem ég er í eða breyta um sem tengist að sjálfsögðu heilbrigðisgeiranum.  Ótrúlegt hvað mikið af fólki leiðist þangað ef það er búið að kynnast e-ð af því sem við höfum gert.

Þuríður mín hress og þá erum við líka hress.
Eigið góða helgi allir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Góðan daginn.Það er gleðilegt að byrja daginn með því að skoða þessi flottu börn. Er ekki rjómabollan lík pabba sínum, þessi elska. Mikið er gott að Þuríður er hress og kát. Hafið það gott í partýnum og bara alltaf

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.5.2009 kl. 08:59

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

ÆÆÆ  Gleymdi að segja. Til hamingju með prófin mín kæra og þau áform að halda áfram á menntabrautinni

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.5.2009 kl. 09:01

3 identicon

Æ hvað maður er sætur og gott að heyra að Þuríður mín er hress og kát.  Til hamingju með prófin duglega kona og góða skemmtun um helgina. Guð geymi ykkur.

Kristín (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 14:11

4 identicon

ég verð að segja hvað mér finnst þú frábær og jákvæð manneskja ,það er mannbætandi að lesa bloggin þín.

Sigrún (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 19:26

5 identicon

Til hamingju með prófin kæra Áslaug..   Njótið helgarinnar kæra fjölskylda.  Kveðja frá Þorgerði.

Þorgerður Helga Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 22:21

6 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 14.5.2009 kl. 23:04

7 Smámynd: Aprílrós

Til hamingju með prófin ;) Frábært að Þuríði gengur vel og er á uppleið. Eigið góðan dag elskurna. Knús, ljos og kærleikur í kotið ykkar ;)

Aprílrós, 15.5.2009 kl. 08:03

8 identicon

Æi hvað hún er lítil í svæfingarsvefninum duglega stúlkan okkar allra.

Rjómabollan þín er ótrúlega fallegur og glaður,  og ekki skemmir að sjá þessa flottu mynd af Björk með.  Hún er svo falleg og ekki þessleg að vera alvarlega veik og mikið þjáð, hún er svo geislandi.

Þannig að myndir gærdagsins eru eins og allt sem þú sendir frá þér, gefandi.

Sendi ykkur kærleikskveðju og ósk um góða helgi, aldrei þessu vant virðist sumarið ætla að vera á öllu landinu í einu.  Kannski er það tákn um að við vinnum  Eurovision, en ég vona samt ekki því við höfum bara alls ekki efni á því.  2 sætið er vinningssætið fyrir okkur.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 09:56

9 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur......knús til elsku ljúfu Hjartagull....:=)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.5.2009 kl. 18:21

10 identicon

:) fallegust! Duglegust! og þvílíka sjarmatröllið :D

hm (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 21:05

11 identicon

Bara rétt að kikja , frábært að heyra að þér gekk vel til lukku með það .

Gott að heyra að Þuríði gengur vel

Góða helgi og ofurknús til ykkar

kveðja úr sveitinni

Dagrún (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband