Leita í fréttum mbl.is

Tölvan mætt á svæðið

Yeeeesss búin að endurheimta tölvuna mína og hún var í ábyrgð en samt leiðinlega við að hún "dó" er að ég tapaði öllum póstinum mínum sem ég hef fengið í gegnum veikindin hennar Þuríðar minnar sem mér þótti ofsalega vænt um.  Myndavélin líka komin, jiiiihaaa!!  Þannig við getum haldið áfram að taka myndir en þá er það helv.... bíllinn sem er kominn aftur með þessa blessuðu sveppi, ólíft í bílnum.

Þuríður mín fór í smá tjékk uppá spítala á fimmtudaginn en það er núna búið að taka önnur flogalyfin af henni eða þau sem hafa "skemmt" mest, þar að segja hægt mest á þroska hennar enda sjáum við líka mikin mun á henni, hún er að þroskast svo mikið þessa vikurnar og orðin mikil gelgja.  Alveg yndislega gaman að fylgjast með henni.  En það á að taka núna pásu frammá haustið með lyfjaminnkun eða eftir næstu myndatökur sem við ætlum ekki að heimta fyrr en í september(ætti að vera í ágúst) því við ætlum að eiga spítalalaust sumar í fyrsta skipti síðan hún veiktist.  Enda sagði læknirinn við okkur á fimmtudaginn að hann vildi ekki sjá okkur neitt í sumar þannig það er eins gott að mæta honum ekki einhversstaðar hehe.

Þuríður mín er ótrúlega hress og þetta er bara yndislegast!!  Sumarið framundan sem við ætlum að njóta í botn enda Skari kominn í fæðingarorlof.  Jiiiiiihaaaaa!!
fedgar
Svona verður sumarið okkar, bara leti og skemmtilegheit hérna á klakanum.  Theodór minn og Skari minn!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Oh en æðislegt bara. Gleðilegt sumar ;)

Aprílrós, 31.5.2009 kl. 13:35

2 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Takk fyrir mig Áslaug mín...Kærleikskveðja fá Dóra.

Halldór Jóhannsson, 31.5.2009 kl. 18:11

3 identicon

og syngja með lagið: Lífið er yndislegt, sjáðu það er rétt að byrja hér ;O)

Luv Magga

Magga (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 13:58

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Frábært allt saman og mikið er gott að heyra hvað gengur vel með prímadonnuna og flogalyfin á förum hvert af öðru. Njótið lífsins, til þess er það.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 1.6.2009 kl. 16:15

5 identicon

Hef eiginlega bara eitt orð handa ykkur: yndislegt!!!

Súsanna (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 21:26

6 identicon

Halló. líst vel á sumarpalanið ykkar  ÉG er komin með nýtt ungpíugloss á varirnar heheh vona bara að þær eigi sér uppreisnarvon og verði jafn blómlegar og Þuríður smarta þegar haustar. Njótið þess að vera í frí elskurnar. Knus frænka gamla 

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 23:01

7 identicon

Frábært að heyra þetta , gangi ykkur vel og eigið þið skemmtilegt sumar saman

kveðja úr sveitinni

Dagrún (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband