Leita í fréttum mbl.is

Góðir dagar

Mikið hlakka ég til þegar Þuríður mín er búin með hreyfiþroskaprófið sitt þá verðum við nefnilega "frjáls" og ætlum að gera "e-ð" eða það sem okkur dettur í hug. Svo leiðinlegt að vera bundin við eitthvað en núna ætlum við að fá að kynnast því að vera það ekki, jiiiiihaaaa!!  Við ætlum að vera í vandræðum hvað við eigum að gera því það verður svo mikið að velja úr, ekki leiðinlegt!!

Þuríður mín er ótrúlega hress, það er alveg yndislega gaman að horfa á hana því hún er svoooo hamingjusöm finnst svo yndislega gaman af lífinu að hálfa væri miklu meir en nóg.  Henni finnst allt svo fyndið og skemmtilegt, ef allir væru svona einsog hún er já nei það væri ö-a ekki gaman hehe.  Ég reyni samt ofsalega mikið að fagna ekki of mikið  og þó svo við séum vön að plana mikið frammí tímann en þá reyni ég ekki að hugsa of mikið um það hvenær eða hvort ég geti kanski farið að fara vinna smá aukavinnu því það er ofsalega mikill draumur hjá mér að fá að vinna smá.  Bara komast aðeins út og hitta fólk, eiga vinnufélaga og þess háttar en það þekki ég bara ekki og hef ekki þekkt í alltof mörg ár.  En ég á mér samt þann draum að komast kanski einn tvo daga í vinnu þó það væri ekki nema það, kanski ekkert merkilegur draumur fyrir marga en mjög stór hjá mér sérstaklega þegar hetjunni minni líður vel einsog henni líður í dag en oft þegar ég hef farið að dreyma þennan draum og hugsað aðeins frammí tímann þá kemur bakslag þess vegna reyni ég ekki að dreyma of mikið um þetta og hugsa ekki of mikið frammí tímann.

Ætlaði að setja inn nokkrar myndir frá deginum í dag en það er víst e-ð vesen á myndakerfinu þannig það er ekki hægt en við áttum alveg yndislegan dag við Rauðavatn og í skóginum.  Bara seinna þá!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Elskan mín, dreymdu bara daginn í dag og dreymdu morgundaginn á morgun. Langbest að taka einn dag í einu. Ég skil þig samt ofurvel dúllan mín ;)

Njótið sumarsins í botn svo langt sem það dugar elskurnar og gerið það sem þið viljið og getið og hafið þol í elskurnar ;)

Aprílrós, 8.6.2009 kl. 21:54

2 identicon

Glæsilegt að heyra hvað allt gengur vel, eigið bara yndislegt sumar og njótið þess, það kemur að því áður en þú veist af að þú getur farið að vinna hef ég trú á. kærleikskveðjur. Guðrún

Guðrún (Boston) (IP-tala skráð) 8.6.2009 kl. 22:17

3 identicon

Hamingja og gleði, var einmitt það sem ég tók strax eftir, þegar ég sá myndina af þeim systrum. Þið megið svo sannarlega vera stolt af börnunum ykkar. Falleg börn.Kærleikskveðja frá Sólveigu.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 9.6.2009 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband