Leita í fréttum mbl.is

Hreyfiþroskapróf búið

Þá er hetjan mín búin með hreyfiþroskaprófið sitt og þá erum við "laus" frá ÖLLU í sumar eða ég trúi ekki öðru.  Hún stóð sig að sjálfsögðu ótrúlega vel þó svo við héldum að hún væri ekki með svona mikla hreyfihömlun ..ennþá en þá bætti hún sig mjög mikið síðan í fyrra.  Ótrúlega stollt af henni!!  Ég fékk að sjá myndbönd af henni sem voru tekin fyrir tveimur árum hjá sjúkrþjálfaranum sínum og þvílíkur munur, fyrir tveimur árum gat hún ekki notað neitt hægri höndina og studdi sig ekki við neitt með henni og allt frekar erfitt fyrir hana en í dag, VÁÁÁVH!!  Þetta er mjög merkileg stúlka sem ég.W00t  Það er margt sem hún getur engan veginn og sumt sem hún á mjög auðvelt með þannig séð en hún er samt laaaaaangt í frá að vera jöfn jafnöldrum sínum í þessu öllu.  Enn hún verður búin að ná þeim áður en hún giftir sig.Joyful

Núna verður bara gert ALLT og EKKERT, bara það sem okkur dettur í hug og engin pressa á að fara í leikskólann á morgnanna eða drífa sig úr náttgallanum.  Oh mæ god hvað ég er búin að bíða lengi eftir svona tíma, Skari í fríi og endalaust gaman.  Reyndar ætlum við að láta stelpurnar okkar fara á e-h námskeið væntanlega badminton- og reiðnámskeið, bara gaman!!

P6060036
Hérna er ein af Oddnýju Erlu minni.

Vill minnar ykkar annars á "á allra vörum" glossinn sem er ennþá til sölu í Hagkaup og Lyf og Heilsu hér í bænum eða til 14.júní en verður til sölu til 1.ágúst hjá www.skb.is en þar getiði pantað og fengið hann sendan beint í lúguna.  Kostar aðeins 2500kr og rennur allur ágóðin til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

til hamingju með árangurinn hjá hetjunni litlu ;)

Aprílrós, 10.6.2009 kl. 19:05

2 identicon

Til hamingju - alveg hjartanlega. Það er meira en að segja það að standa í svona baráttu.

IÞÞ

Ingibjörg (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 19:14

3 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Stórt knús...

Halldór Jóhannsson, 10.6.2009 kl. 21:43

4 identicon

Til hamingju fallega fjölskylda, njótið vel. Helga

Helga (IP-tala skráð) 11.6.2009 kl. 07:42

5 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 11.6.2009 kl. 13:46

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Glæsilegt hjá henni Þuríði Örnu. Hún er eitt stórt kraftaverk þessi stúlka     

Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.6.2009 kl. 01:07

7 identicon

Stórglæsilegt hjá dömunni-bestu kveðjur frá Þorgerði.

Þorgerður (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 18:32

8 Smámynd: María Guðmundsdóttir

María Guðmundsdóttir, 13.6.2009 kl. 06:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband