Leita í fréttum mbl.is

Spítalinn í dag

Þá erum við uppá spítala, Þuríður að byrja í nýju lyfjameðferðinni sinni.  Hún situr bara og horfir á Latabæ að sjálfsögðu, ótrúlega góð og yndisleg.  Linda uppáhalds frænka sat hjá henni hérna í tvo tíma en við fórum á smá fund á leikskólanum útaf Þuríði og svo fengum við okkur smá snarlHlæjandi.

Þessa dagana er ég svo reið, sár, leið, pirruð og svo glittir í smá gleði í hjartanum mínu.  Æjhi það eru allir svo góðir við okkur og reyna með bestu getu að láta okkur líða vel sem er ótrúlega fallega gert, allir tilbúnir að hjálpa okkur einsog þeir geta og alltaf tilbúnir þegar við köllum.  Endalaust fallegt!! 

Svo verður maður svo leið, pirruð, reið og sár yfir öllu sem er að bögga hana Þuríði mína því það er einsog engin viti neitt og standa bara á gati.  Ég meina hvernig getur maður liðið öðruvísi þegar eitthvað er að bögga barn manns og engin veit neitt.Öskrandi  

Það á víst að reyna minnka eitthvað flogalyfin hennar þótt þau séu alveg á góðu leveli en það gæti verið ástæðan fyrir því að hún sé svona syfjuð en það er nottla bara ágiskun svo það sakar víst ekki að prufa það fyrst en hvað ef það virkar ekki?  Hún byrjar væntanlega að krampa endalaust þegar lyfin hennar eru minnkuð og þá þarf bara að gefa henni lyf í æð og dópa hana meira upp.  Aaaaaaaaaaaaarghhh!!Gráta  Þetta er bara búið að vera endalaust jójó, erfiðast í heimi!!

Ætli ég reyni ekki að hætta pirra mig og reyni bara að hlakka til helgarinnar en við verðum með hvíldarbústaðinn hjá Styrktarfélaginu næstu vikuna.  Við fjölsk. verðum saman um helgina svo þurfum við að fara heim eldsnemma á mánudagsmorgni því, Skari í vinnuna, búið að bjóða langveikum börnum og fjölsk. þeirra í tívolíið á mánudagsmorgninum og svo á þriðjudeginum þarf Þuríður að fá lyfin sín þannig þá munum við börnin ásamt Oddnýju systir,Evu,  mömmu og pabba vera í bústaðnum fram á föstudag.Hlæjandi  Frekar spennt að fara útí sveit, anda að mér fersku lofti og hafa það gaman sérstaklega stelpunum.  Bara gaman!!

Best að fara horfa á Latabæ með Þuríði minni og leika við Theodór minnÓákveðinn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og sextán?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband