Leita í fréttum mbl.is

Brullup og fleira

Fórum í brullup í gær sem var fínt en það fyndnasta í brullupinu þegar það átti að henda vendinum í stelpurnar sem voru en ógiftar.  Well ég mátti ekki fara ehhe en mín yndislega systir mátti fara og það þurfti ekki að segja það tvisvar við hana að það var verði að fara henda vendinum.  Ohh mæ ohh mæ!!  Hún reikspólaði og þaut uppá sviðið og var laaaaaaaang fyrst á svæðið af stelpununum ehehe og svo var restin einsog bíómynd.  Án gríns þetta var svona atriði úr fyndnar fjölskyldumyndir sem var alltaf í sjónvarpinu í denn, Oddný var hoppandi fremst að bíða eftir vendinum og svo var hoppaði hún fyrir framan allar stelpurnar, þið getið ímyndað ykkur þetta úr fjölskyldumyndunum í dennn ehehe!!  Hún sem sagt greip vöndin í loftinu og hálfpartinn reif hann af annarriHlæjandi.  Endalaust fyndið!! Sem sagt hún litla sys verður næst að gifta sig ehe eða hún vonar það allavega, Sammi er á fullu að vinna til að safna fyrir brullupinu þeirra í Egilshöll sko stóóóóra salnum, thíhí!!  Sem sagt stuð í brullupi.

Ammæli á föstudagskvöldið og jú það var sama stuðið, var reyndar ekki á neinu djammi enda endalaust þreytt þessa dagana og hafði sko enga orku.  Skemmitleg hljómsveit að spila og oft finnst mér bara gaman að fylgjast með fólkinu og hljómsveitinni minni einsog í þetta sinn.  Bara gaman!!Brosandi

Þuríður mín er ekki búin að vera hress um helgina, jú hresstist aðeins við í gærkveldi þegar uppáhalds fjölskyldan hennar mætti á svæðið til að passa sem sagt Linda og strákarnir.  Hún er búin að vera krampa mjög mikið enda fór ég ekkert að fagna þessa nokkra daga sem hún fékk mjög fáa krampa.  Hún er farin að kvarta eitthvað í höfðinu æjhi þarna sem aðgerðin var gerð, vitum ekki alveg hvað það er?  Þuríður mín er ekki vön að kvarta og kveina þannig henni hlítur að finna mikið til þegar hún kvartar undan einhverjuFýldur.

Theodór er farinn að reyna standa upp við dótakassan sinn, vííí!!  Farinn að reyna fikra sig áfram á rassinum en veit ekki alveg hvað hann á að gera, þetta er allt að koma hjá drengnum.

Oddný er sami snillingurinn, ég var að máta föt í fyrradag þá heyrist í minni "mamma þú ert einsog kona", hmmm henni fannst ég sem sagt eitthvað kerlingaleg í þessum fötum eheh!!

Ætluðum í berjamó í dag en stefnir ekki í það þar sem það er rigning og leiðindaveður, aaaaaaaarghh!!Öskrandi

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jájá.... :)

Oddný (IP-tala skráð) 27.8.2006 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og þremur?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband