Leita í fréttum mbl.is

Lífið þessar vikurnar

Ég hef engan veginn nennt að blogga eitthvað af viti síðustu vikur enda við líka búin að vera á ferðinni um landið og haft það skemmtilegt.  Allir ofsalega hressir sérstaklega má ég nefna hana Þuríði mína en hún er búin að vera einstaklega hress og það er allt svo skemmtilegt hjá henni.  Hún hefur haft orku í margt sem hún hafði ekki fyrir ekki svo mörgum mánuðum og það er alveg yndislega gaman að fylgjast með þessum orkubolta.  Hennar uppáhald þessa dagana er "mama mía" og á það getur hún hlustað endalaust, sungið og dansað með, alveg gargar af gleði ef það kemur í útvarpinu.  Bara yndislegust!!  Einn daginn munum við skella okkur á "mama mia" show eða eftir nokkur ár í London.Wink
P7041539
Eintóm hamingja hjá Þuríði minni.

Theodór minn er líka hress og hans draumur var að eignast "Silver" sem er gel í hárið sem hann Logi í handboltanum var að "framleiða" og að sjálfsögðu var honum gefið það.
theod.
Hérna er töffarinn með "silver" sitt og auðvidað búinn að skella smotterí í hárið.  Þessi drengur er mikill gaur en samt með oggupínu lítið hjarta og ef hann fengi að ráða væri hann í skyrtu og bindi alla daga hehe.

Hinrik minn Örn er orðinn mikill mömmupungur og setur þennan fallega stút upp ef mamman hverfur eða e-h annar heldur á honum en ég hehhe. Hvernig ætli hann verði eftir veturinn þegar hann verður einn alltaf með mér, úúbbbbss!!
P7031344
Hérna er ODdný Erla mín og Hinrik Örn minn en hún er mikil "mamma" og elskar að "tuskast" með hann og honum finnst það heldur ekkert leiðinlegt.  Oddný mín er líka hress og kát og finnst alveg yndislega gaman að vera í sumarfríi og telur væntanlega í að hún fari í skóla en það ennþá ár í það.

Ég mun halda áfram í skólanum í haust en ég var búin að velta því fyrir mér hvort ég ætti að gera það vegna ýmsa ástæðna en hef komist að þeirri niðurstöðu að ég ætla vera áfram í þessu fjarnámi mínu og stefni að sjálfsögðu á útskrift að ég held næsta vor.

Það er eitt svo "skrýtið" sem tengist veikindum hetju minnar en þegar gengur frekar erfiðlega eða henni líður sem verst þá reynum við Skari að halda sem mest höfði og erum dugleg að gera eitthvað saman en þegar það gengur svona vel einsog það gerir í dag þá gleymum við okkur algjörlega og auðvidað fer maður þá að sakna tíma með hvort öðru.  Það er ekki einsog við eigum erfitt með að fá pössun eða þess háttar maður bara gleymir sér.  Að sjálfsögðu á það ekki að vera svoleiðis og það getur verið alveg jafn "hættulegt" og þegar henni líður sem verst.  Maður hugsar að sjálfsögðu alltaf fyrst og fremst um börnin og að þeim líði sem best og reynir að gera sem mest með þeim því maður veit aldrei hvað gerist á morgun en jú við megum samt ekki gleyma okkur, hvar væru þau án okkar? Þó svo maður elski börnin sín útaf lífinu þá megum við ekki gleyma okkur hvort sem það eru foreldrar sem eru í sömu stöðu og við eða eiga heilbrigð börn.

Núna ætla ég að eyða kvöldinu með litlu rjómabollunni minni (Skari útá palli að lakka)en öll hin eru sofnuð eftir æðislegan dag, borðuðum útí garði bæði hádegis og kvöldmat, tókum langan göngutúr um Laugardalinn og svo lengi mætti telja.  Hafið það yndislega gott og ekki gleyma ykkur sjálfumSideways.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingu með afmælið.

Líði ykkur sem best.

Ingibjörg

Ingibjörg (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 21:35

2 Smámynd: Aprílrós

Æðislegt allt saman, og það er yndislegt að fylgjast með ykkur. Haldið áfram að njóta elskurnar ;) Það sem þú ert að tala um held ég að þegar gengur svona vel með Þuríði og alla að þá komi slökun og smá kæruleysi ( er ekki að tala um kæruleysi í orðsins fyllstu merkingu ) heldur einverskonar að sleppa fram af sér beislinu, æ vona þið vitið hvað ég á við " en þegar "illa" gengur þá eruð þið svo samheldin og samrímdari og það er það sem þið saknið í þessu þegar vel gengur, þessi samheldni.

Vona að ég hafi komið þessu til skila svo það skiljist. En samt sem áður er bara yndislegt að fylgjast með ykkur esskurnar ;) Bara áfram gott gaman og njóta ;)

Aprílrós, 13.7.2009 kl. 22:49

3 identicon

Lífið er yndislegt, ég geri það sem ég vil.  Svona getur maður sungið og gert þegar allt er eðlilegt.  Og sem betur fer virðist einmitt allt vera orðið hjá ykkur þannig, þ.e. eðlilegt.

Nema ég hef alltaf sagt að þið gerið alveg extra mikið með börnunum ykkar, sem er auðvitað æðislegt fyrir ykkur öll.

En þá er það einmitt þetta með að þið Skari gerið eitthvað bara tvö, rómó og huggó, en úbs,, þá kannski yrði til 5 barnið.  Því eins og þú hefur sjálf sagt oft að þá þarf ekki mikið til.

Og þá færi nú alvarlega að þrengja að í húsinu eins og þú segir líka sjálf.  Þannig að það þarf að ganga hægt um gleðinnar dyr, eins og allir vita.

Sendi ykkur öllum kærar kveðjur, þið eruð svo falleg og fín.

Frá Sólveig

Sólveig (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 12:03

4 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Knús..

Halldór Jóhannsson, 14.7.2009 kl. 21:48

5 identicon

Gaman að sjá hvað allt gengur vel. Er mjög sammála þér með að foreldrar mega ekki gleyma að rækta sambandið sín á milli. Gaman að heyra hvað þið eruð meðvituð um það, gangi ykkur vel áfram.

iris (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 23:17

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús og kossar og ljúfur faðmur....:O)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.7.2009 kl. 00:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband