Leita í fréttum mbl.is

Bloggleti

Er ekki að nenna skrifa hérna er bara að njóta daganna með fjölskyldunni, e-ð sem ég þekki varla þá meina ég svona margar vikur í einu og sumarið búið að vera fullkomið.

Þuríður mín er búin að vera ótrúlega hress en samt þreytt en hver verður ekki þreyttir eftir sólríka og viðburgðaríka daga?  Finnst hún kanski stundum þreytast "of snemma" á daginn en auðvidað er hún ekki með sömu orkuna og heilbrigðir krakkar og svo þreytast hin líka alveg.  Hún vill mikið sitja í kerrunni þegar við förum í göngutúra en það vilja hin líka þannig það er stundum erfitt að átta sig á þessari þreytu.

Það er ofsalega gaman að fylgjast með henni þessar vikurnar því hún er að taka smá þroska og farin að sýna smá "gelgjustæla" sem er ofsalega fyndið og skemmtilegt.  Sýnir stundum pirring á systkinum sínum sem við lítum bara á sem þroska og það er líka gaman að sjá hvað hún er hrifin af Hinrik Erni (alveg einsog hin tvö), spjallar mikið við hann en kanski leiðinlegast við þetta er að hún getur ekki haldið á honum.  Henni langar svo að halda á honum einsog Oddný Erla en hún hefur bara ekki krafta í það en henni langar svoooo mikið, frekar leiðinlegt!!  Tennurnar eru allar að losna núna, hlakka mikið til þegar hún er orðin "tannlaus".Grin

Dagarnir hjá okkur eru búnir að vera æðislegir, reynum að nýta hvern dag enda veðrið til þess.  Fórum á Bryggjuhátíðina á Stokkseyri í gær, röltum miðbæinn, búin að taka Laugardalinn, ísinn er frekar vinsæll í þessu veðri hvað þá grillið sem verður tekið út í kvöld og svo lengi mætti telja.  Ætlum að gera e-ð skemmtilegt í dag í þessu frábæra veðri.

Njótið helgarinnar!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar sumarkveðjur :)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 18.7.2009 kl. 23:02

2 identicon

Kæra fjölskylda, haldið áfram að njóta sumarsins með ofurhetjuna ykkar svona hressa. Yndislegt að heyra að hún sé í góðum gír, fyrir utan þessa þreytu...
Vona að restin af sumrinu verði eins góð

Kærar kveðjur frá DK, Begga

Begga (DK) (IP-tala skráð) 19.7.2009 kl. 06:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband