Leita í fréttum mbl.is

Gleðileg jól kæru vinir

Laumaðist aðeins í tölvuna, hef reyndar engan tíma þar sem það er alveg brjálað að gera hjá stórfjölskyldunni.  Búin að vera sveitt við að þrífa í morgun, vakti frammá á nótt til að klára síðustu innpökkunina, eftir að keyra í einhver hús með pakka og svo hendi ég bara restinni í mömmu og læta hana klára það fyrir mig eheh!!Halo

Stelpurnar alveg að farast úr spenningi og geta ekki beðið eftir morgundeginum, Þuríður mín Arna er alltaf að laumast inní herbergi til að reyna opna nokkra pakka.  Dóóhh!!  Ótrúlega snögg þesssi stúlka og ég er í því að pakka þessum gjöfum aftur inn en sem betur fer er þetta ekkert af hennar gjöfum.

Svo er það hefðin í kvöld sem við fjölskyldan gerum ALLTAF á Þorláksmessu en það er að fara útað borða á Ítalíu og fá okkur pasta eða pizzu.  Slurp slurp!!  Mamma, pabbi, Oddný og fjölskylda alltaf með í för og svo veit maður ekki hvort nokkrir bætist við í hópinn í kvöld.  Hlakka mikið til!!!

Jólatréð skreytt í kvöld, Skari gerir heitt súkkulaði og aldrei að vita að einhverjir komi í heitt súkkulaðiWhistling.

Ohh boy engin tími til að skrifa einhverjar merkilegar fréttir en þær verða bara að koma sem fyrst hef svo svakalega miklu að segja frá.

Knúúúss til ykkar allra og eigið gleðileg jól, njótið þess að vera saman og njótð þess að horfa á krakka ykkar alveg upptjúnnuð.  Bara gaman!!

Jólakveður frá stórfjölskyldunni í "sveitinni".
Slauga og co


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fín mynd af ykkur Þuríði Örnu á mbl  Hvað segiru heitu súkkulaði mmmmm... á að bjóða mér/okkur? Nú ef ekki þá sjáumst við bara í hádeginu á morgun í möndlugraut  En eigið góðan dag elskurnar mínar

Hanna systa (IP-tala skráð) 23.12.2006 kl. 14:20

2 identicon

Kæra fjölskylda

Hamingjan gefi ykkur

gleðileg jól,

gleðji og vermi ykkur

miðvetrarsól,

brosi ykkur himinn

heiður og blár,

og hlýlegt ykkur verði

hið komandi ár.

 Gleðileg jól hetjur

Kveðja Lilja kr. 

p.s. Særún Embla sendir Þuríði Örnu og Oddnýju Erlu sérstakar leikskólakveðjur

Lilja Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 23.12.2006 kl. 14:41

3 identicon

Elsku Óskar, Áslaug og börn!

Eigið gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár. 

Frábært hvað allt gengur vel hjá ykkur núna.  Var einmitt að sjá mynd af ykkur í mbl.is.  Þið eruð bara orðin fræg, eruð í öllum fjölmiðlum þessa dagana :O)  Yndislegt hvað margir eru til í að rétta ykkur hjálparhönd.

Jólakveðja, Jane, Elli, Lárus Logi og Júlían Breki.

Jane Petra (IP-tala skráð) 23.12.2006 kl. 15:29

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

laumaðist í tölvuna eins og þú hí hi...

GLEÐILEG JÓL

Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.12.2006 kl. 17:06

5 identicon

Kæri Óskar,Áslaug og börn

Guð gefi ykkur Gleðileg Jól og farsælst komandi ár, vonandi heldur skottan áfram að hressast kær jólakveðja María Ólafsd og fjölskylda(Akranesi)

María (IP-tala skráð) 23.12.2006 kl. 18:16

6 identicon

Kæra Fjölskylda,

Mig langar bara að óska ykkur gleðilegra jóla, hafið það sem allra best.Þið eruð ávallt í mínum bænum.

Kveðja Agnes

Agnes (IP-tala skráð) 23.12.2006 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband