Leita í fréttum mbl.is

Þreyttir dagar

Þuríður Arna mín er búin að vera svakalega þreytt síðustu vikur og ég ætla mér að kenna álaginu um það, ætla að reyna að hella mér ekki í neinar slæmar hugsanir en álagið er náttúrlega gífurlegt á þessum litla kropp.  Hún er í endurhæfingu 4x í viku og hver verður ekki þreyttur að mæta alltaf í ræktina eftir vinnu?  Það er samt alveg sama hvursu þreytt hún sé þá gerir hún ALLTAF sínar æfingar í sínum tímum, viljinn er ótrúlega sterkur og hrikalega er hún alltaf dugleg.  Tek hann mikið til fyrirmyndar með þetta allt saman.  Hún er ekki vön að leggja sig lengur yfir daginn en hún sofnaði í gær og þá hélt maður að hún myndi ekki sofna fyrr en mjög seint en nei stúlkan sofnuð rúmlega átta og svo fékk hún aðeins að dorma í skólanum í dag.  Auðvidað verður hún að fá að leggja sig ef kroppurinn segir stop og getur ekki meir, ekki spurning!  Ég veit alveg hvernig ég verð ef ég er mjög þreytt og það er búið að vera mikið álag á mér en HEY ég er heilbrigð, vonandi verður þetta fljótt að líða hjá.

Annars ætlum við kanski ekki að minnka flogalyfin hennar svona hratt einsog það var búið að ákveða þar að segja við og læknarnir.  Æjhi við erum bara pínu smeyk og viljum aðeins hægja á þessu því núna er verið að taka þau lyf af henni sem gerðu sem mest fyrir hana.  Við þurfum ekkert að flýta okkur, höfum allan okkar heimsins tíma til þess að gera þetta þó svo við seinkum þessu kanski um hálft ár eða ár.  Bara ef okkur líður vel með þetta.

Mér finnst nú ekki leiðinlegt að monta mig af börnunum mínum, hverjum finnst það leiðinlegt?  Allavega Theodór kom til mín í gær og stafaði allt nafnið sitt fyrir mig, jújú ég vissi að hann kynni alla stafina en ég vissi ekki að hann kynni þetta því ekki hef ég eða Óskar verið að kenna honum þetta.  Þá tekur hann bara uppá þessu sjálfur svo hann farinn að heimta fá að lesa lestrabókina hennar Þuríðar ehhe þannig ætli hann verði ekki farinn að lesa án þess að ég viti af því.  Oddný Erla las allavega fyrir mig í síðustu viku, geðveikt stollt.  Theodór er einmitt að fara á sína fyrstu fótboltaæfingu á eftir og bíður spenntur eftir því að hann fari að spila með Arsenal hahaha.  Hann tilkynnti okkur það allavega að pabbi sinn, Hinrik Örn og afi Hinrik ættu að koma og horfa á hann spila með Arsenal því við stelpunar ætlum að fara að sjá "mama mia showið" í London því hann veit að Þuríði langar á það.  Alveg ótrúlegur þessi drengur.  Ég er þegar orðin spennt að fá ársmiða á alla Arsenal leikina.Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þetta er maður að mínu skapi, bara strax búinn að setja markið á Arsenal. Auðvitað tekur það á þegar farið er að þjálfa þreklitla kroppa, blessuð daman er samt svooo dugleg og jákvæð og það er bara best. Ég er að upplifa mjög góða hluti núna, var greind með kæfisvefn fyrir mánuði og fékk öndunarhjálp. Nú er ég að fá til baka smá af mínu þreki og svo fer ég í sjúkraþjálfum bráðlega. Hlakka til en verð örugglega þreytt til að byrja með. Það er bara allt í lagi. Þetta er afar leyndur "galli" sjúkdómur. Ef þú þekkir einhvern sem hrýtur, er oft að leggja sig á daginn er samt alltaf þreytt/ur, þá gæti kæfisvefn verið skýringin. 

Kveðja til lestrarhestanna og hinna

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.10.2009 kl. 17:09

2 identicon

Ekki undrar mig þó Þuríður Arna sé mjög þreytt þessa daga. Mín veikindi voru ekki löng, miðað við hetjuna ykkar. Ég er búin að vera svo þreytt undanfarið, hef samt ekkert verið að vinna í 3 mánuði. Þessi þreyta hellist yfir mann eins og hendi sé veifað. En hafið það sem allra best, kæra fjölskylda. kveðja frá Sólveigu.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 22:02

3 identicon

Elsku fallega duglega fjölskylda

Miðað við allt sem er að gera er ekki skrítið að allt fólkið sé þreytt stundum.

En þreytan hennar Þuríðar verður alltaf skoðuð með öðrum gleraugum en hinna barnanna.

Það er bara svo gaman að sjá hvað allir eru duglegir í þessu húsi.

kær kveðja frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 11:19

4 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 7.10.2009 kl. 20:40

5 identicon

Vááá.... hvað drengurinn er klár að geta stafað nafnið sitt :-) Þuríður er hörkutól og hörkutól verða auðvitað þreytt líka...... engin smá dugnaðarforkur þessi dama! Það er auðvitað full vinna fyrir svona lítinn kropp að vera í skólanum og svo í þjálfun eftir það! Þú getur sko vel montað þig af þessum kláru og fallegu börnum sem þið eigið :-)

Hestakveðja úr Mosfellsbænum,

Begga

Berglind Inga - hestakennari :-) (IP-tala skráð) 7.10.2009 kl. 23:43

6 Smámynd: Aprílrós

Mikið áttu dugleg börn og mátt svo sannarlega vera stolt af þeim.

Engin furða tek ég undir með þér að stúlkan sé þreytt, mikið að gera hjá skvísunni, en hún ætlar sér greinilega áfram og henni tekst það sem hún ætlar sér daman.  UPP fyrir henni og hinum börnunum ykkar

Aprílrós, 8.10.2009 kl. 18:20

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og ljúfar kveðjur.....

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 8.10.2009 kl. 19:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband