Leita í fréttum mbl.is

Hvað EF?

Var að hlusta á Ísland í bítið í síðustu viku þegar ég heyrði viðtal við tvo einstaklinga sem hafa orðið fyrir einelti þegar þáttastjórnandinn spurði þau hvernig helduru að lífið þitt væri öðruvísi ef þú hefðir ekki orðið fyrir einelti.  Auðvidað gat einstaklingurinn ekki svarað því enda ómöglegt að vita.  Ég fór einmitt að spá betur í þessa spurningu og auðvidað get ég ekki ímyndað mér hvernig líf mitt væri öðruvísi og kanski hefði ég ekkert viljað breyta neinu og vill bara hafa líf mitt einsog það er.  Ég meina ef það hefði verið e-ð öðruvísi í fortíðinni þá væri ég kanski ekki á þessum stað sem ég er á í dag, ég meina ef ég hefði ekki farið á Sálarballið sem ég kynntist Skara mínum?  Vill ekki breyta neinu. 

En eitt er víst að ég gæti ímyndað mér að ég hefði ö-a gengið betur í skóla ef þessi ákveðni kennari hefði ekki brotið mig svona niður, ég hefði ö-a haldið áfram að læra og gengið vel því ég veit alveg að ég get þetta og er ógeðslega klár.Whistling  Þetta er ekkert erfitt eftir allt saman, ég bara hélt eftir 11 ára bekk að ég gæti ekki neitt og hafði enga trú á sjálfri mér, ég meina að brjóta niður ellevu ára gamalt barn af kennara er hrikalegt og það ætti ekki að geta gerst.  Það eru ekki mörg ár síðan ég hafði trú á sjálfri mér og það eru veikindum Þuríðar minnar að þakka því verr og miður segi ég eiginlega.  Ég gæti alveg hugsað mér áframhaldandi nám, var búin að tjékka hvort ég kæmist í eitt ákveðið nám næsta haust og fékk mjög jákvætt útur því.Grin

Þuríður mín er ágætlega hress, fyrst að ég er að tala um hvað EF.  Þá hugsa ég stundum um það hvernig Þuríður mín væri EF hún hefði ekki veikst og væri ennþá heilbrigð því veikindin hennar hafa hægt alveg rosalega á þroska hennar og hún á ekki jafn auðvelt með að læra einsog jafn aldrar hennar en hún er samt ótrúlega klár.  Hún er alltaf að sýna meiri og meiri framfarir í þroska, farin að lesa miklu meir en við þorðum að vona, þær hjá styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra eru ofsalega stolltar af hennar framförum á "bara" tveim mánuðum.  En á meðan Þuríður mín er hamingjusöm þá er ég hamingjusöm.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

:-)

Ingibjörg (IP-tala skráð) 4.11.2009 kl. 16:40

2 identicon

Það er sorglegt að m.v. hversu mikil umræða er um einelti að þetta sé enn svona viðloðandi í öllum löndum heimsins.

Það eru ekki bara börn heldur einnig svo rosalega margir fullorðnir sem þurfa endalaust að vera að niðurlægja aðra með því að setja út á það sem þeir gera og gera lítið úr öðrum og skilja útundan.

Yfirleitt er þetta óöryggi og minnimáttarkennd en samt nær það alltaf að hafa svo ótrúlega mikil áhrif á þann sem lendir í því.

Það þarf að efla umræðuna enn frekar!

Anna / ókunnug (IP-tala skráð) 4.11.2009 kl. 17:51

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hvað ef. Þetta er spurning sem ekki er hægt að svara, hvort sem hún varðar eineldi eða annað. Að kennarar brjóti niður nemendur sína er óskaplega ljótt og á ekki að viðgangast. En það því miður enn við líði og verður áfram meðan til eru skólastjórnendur hafa ekki einurð til að taka á málum.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.11.2009 kl. 23:06

4 identicon

Sendi þér góða strauma og knús

Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 11:49

5 identicon

Það er nefnilega málið,  þetta litla EF er svo stórt en samt svo tilgangslaust. 

Við erum í góðum málum þegar við minkum og helst hættum að hugsa, ef ég hefði eða hefði ekki. Er alltaf að vanda mig.

Og eins og alltaf ert þú, af því þú ert svo klár búin að sjá að það er ekki til neins, og eins og þú segir sjálf,  EF þú hefðir ekki farið á Sálarballið væri  jafnvel enginn Skari og það væri það versta.

Sendi kærleikskveðjur í ykkar fallega hóp, frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 13:09

6 identicon

ég er ættleiddur og ´var sjálfur lagður einelti, en þetta er allt annað sko að eins og að vera ættleiddur þá spurja fólk mig hvernig er að vera ættleiddur? ég hvað ég að vita það ég er búinn að venjast að íslenska forledra sé bara eins og mína foreldrar, og með einelti ef ég á að geta svara þessu fyrir þeim þá hefði eg svara bara ef ég væri lagðu í einelti þá væri ég hvorgi hérna hjá ykkur að tala um þetta og ég væri allt anna staða en það sem ég er núna svo einfalt er

Páll thamrong Snorrason (IP-tala skráð) 6.11.2009 kl. 15:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband