Leita í fréttum mbl.is

Er að meikaða þessa dagana...

Þuríður Arna mín er algjör snillingur og er alveg að meikaða þessa dagana sérstaklega eftir að hún fékk gleraugun sín enda hálf blind án þeirra og stúlkan loksins farin að sjá heiminn einsog við flest sjáum hann. 

Við vorum t.d. staddar í búð um daginn þegar einhver flautar á mig og ég er svo hrikalega ómannglögg og sá ekkert í gegnum rúðuna þannig ég veifaði ekki svo ég sný mér að Þuríði "Þuríður mín sérð þú hver er að flauta á okkur?"  Þuríður:" uuuuuu já mamma ég er með gleraugun".  Fannst þetta frekar fyndið því stúlkan er að átta sig á því að hún sér loksins og fannst frekar hallærislegt að ég myndi spyrja hana að þessu.  Einsog áðan vorum við mæðgur að baða Hinrik og Þuríður var alveg æst í að taka bróðir sinn uppúr baði og þurka honum og ég var ekki alveg á því enda á hún frekar erfitt með að lyfta honum þá heyrist í minni "já enn mamma ég er með gleraugun".  Að sjálfsögðu gat ég þá ekki neitað henni því hún sá alveg bróðir sinn hehehTounge. Í dag er annars fyrsti dagur í jólafríi hjá Þuríði minni og hún kallar þessa dagana "mömmufrí" því þá fær hún smá dekur hjá mér og nýtur sín í botn að vera "ein" með mér og Hinrik.  Ekki amalaegt!

Við fórum á fimleikaæfingasýningu hjá Oddnýju minni í gær og ég myndi ljúga því ef ég væri ekki stolltust af stúlkunni, þvílíkir hæfileikar á ferð.Whistling  Hún er bara snillingur, fékk þetta líka staðfest í gær þegar þjálfarinn hennar kom til mín og hrósaði henni svona líka mikið enda upprennandi stjarna á ferðinni og hinir þjálfararnir "gapa" yfir henni.  Jiiiii hvað ég er montin.  Hérna eru tvær frá æfingunni í gær:
PC175327 (Small)

PC175312 (Small)
Núna ætlum við mæðgur að taka smá til hendinni á meðan drengurinn sefur.  Brjálað að gera þessa dagana einsog hjá flestum einsog t.d. skötuveisla í kvöld en þá ætla ég að taka með mér nesti, Skatan er ekki mitt uppáhald. 

Eigið góða helgi kæru lesendur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru fréttir frá ykkur eins og úr litlu ævintýralandi og svo gaman að því.

Aumingja Þuríður hefur séð svo illa að hún heldur að hún geti allt jafnvel þó það tengist ekki sjón, bara vegna gleraugnanna.  Endalaust gott.

Sendu ykkur kærleikskveðjur.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 18.12.2009 kl. 12:59

2 identicon

Vááá, rosalega flottar fimleikamyndirnar af litlu snúllunni ykkar.  Greinilega mikið efni, teygir vel úr ristum og með kroppinn vel spenntan.  Fimleikar eru sko besta íþrótt í heimi :O)  Er alveg viss um að pabbinn er sammála því.

Jane Petra (IP-tala skráð) 18.12.2009 kl. 13:47

3 Smámynd: Óskar Örn Guðbrandsson

Já Jane - þú mast kannski ekki hvað ég var gríðarlega sterkur á fimleikasvellinu

Óskar Örn Guðbrandsson, 18.12.2009 kl. 14:03

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þá er það upplýst að fimleikasnilldin hennar Oddnýjar er frá pabba hennar. Hún er greinilega mjög fær í þessu stelpan sem er frábært. Og Þuríður búin að fá marga nýja hæfileika með gleraugunum. Hún hefur verið mjög óörugg án þeirra, það er greinilegt. Sjáftraustið hefur hækkað og færin hennar aukist til muna. Góða helgi

Hólmfríður Bjarnadóttir, 19.12.2009 kl. 00:58

5 Smámynd: Aprílrós

Aprílrós, 19.12.2009 kl. 07:43

6 identicon

Ég sé bara á myndunum hversu efnileg hún er hún Oddný Erla. Sjálf var ég í fimleikum áður en ég tók badmintonspaðann í hönd :)

Unnur Ylfa (IP-tala skráð) 19.12.2009 kl. 16:23

7 Smámynd: Ragnheiður

Oddný flotta flotta

Þuríður er yndisleg, tengir allt gleraugunum sínum þessi elska

Kær jólakveðja Áslaug mín, Óskar og börn. Hjartans þakklæti fyrir einlæg og yndisleg skrif á árinu sem er að líða. Hér er notalegt að staldra við, hugsa hvíla og njóta

Ragnheiður , 19.12.2009 kl. 22:36

8 identicon

Yndislegt.   Jólakveðjur frá Þorgerði og Grétu í Lundi.

Þorgerður (IP-tala skráð) 20.12.2009 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband