Leita í fréttum mbl.is

Gleðilegt árið

Gleðilegt árið og ég óska þess að sjálfsögðu að árið 2010 verði eins gott hjá okkur og það sem er að líða en árin verða bara betri og betri hjá Þuríði minni.  Jólin eru búin að vera yndisleg, allir hressir og kátir sem sagt eintóm hamingja.  Erum búin að slappa endalaust af og líka gera alveg heilmargt en hérna eru nokkrar frá líðandi dögum:
PC245571 (Small)
Á aðfangadag förum við alltaf að leiðunum hjá langömmu "Jó", langafa Óskari (krakkana sko) og systir Óskars.  Þegar amma "Jó" kvaddi þennan heim þá held ég ekki að það hafi verið tilviljun að hún valdi þann dag sem hún kvaddi okkur en það var á þeim mínútum að við vorum að fara í loftið til Boston með Þuríði mína í stóru aðgerðina sína.  En sólarhring áður var hún búin að spurja okkur hvort hún mætti koma með okkur til Boston sem við að sjálfsögðu neituðum ekki og eftir það trúi ég því að hún hefur setið yfir Þuríði minni og hjálpað henni í gegnum þessar raunir sem hún hefur þurft að berjast í gegnum.  Já ég TRÚI þessu.

PC245600 (Small)
Við förum svo alltaf í möndlugrautinn í hádeginu uppá Skaga og í þetta sinn fékk Oddný Erla mín möndluna og var svona líka stollt.
PC245653 (Small)
Töffararnir mínir komnir í jólanærfötin sín, bara laaaaaaang flottastir.
PC295760 (Small)
Við erum búin að fara í smá sleðaferð og hérna er Þuríður Arna mín svona líka hamingjusama í einni bununni.  Ég var búin að gleyma hvað þetta er gaman enda fór ég nokkrar ferðir með krökkunum og ö-a í hverri ferð flaug ég af sleðanum.
PC245636 (Small)
Það er ekki búið að borða lítið af þessu yfir hátíðarnar, Hinrik mínum fannst ekki leiðinlegt að hafa náð í þetta enda mikill nammigrís.

Þuríður Arna mín bíður rosalega spennt eftir áramótunum en það er hennar uppáhalds dagur, hún elskar þessar sprengjur og helst að vera MJÖG MIKILL hávaði.  Kíktum á eina flugeldasýningu áðan og var ekki sátt þegar henni lauk.

Eigið gleðilegt ár.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

gleðilegt ár öll sömul, megi það vera gott og gæfuríkt í alla staði, allar góðar vættir vaki yfir ykkur, þið eru yndisleg og dugleg fjölskylda, áramótaknús.

Didda ókunnug (IP-tala skráð) 30.12.2009 kl. 11:42

2 Smámynd: Aprílrós

gleðilegt ár yndislega fjölskylda.

Aprílrós, 30.12.2009 kl. 19:59

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Falleg færsla að afloknum jólum. Falleg börn eins og vant er. Frábært að sjá Hinrik Örn STANDA við hlið bróður síns. Jólasveinninn okkar kom í gær, dóttursonur sem fæddist í Osló. Eigið frábær sprengiáramót og gleðilegt nýtt ár.  á línuna.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 30.12.2009 kl. 21:12

4 identicon

Gleðilegt ár fallega fjölskylda.  Ég hreinlega elska að lesa bloggin frá þér Áslaug.  Maður fyllist alltaf stolti yfir ykkur eftir hvern lesturinn.  Ég vona að Þuríður Arna (og að sjálfsögðu hin líka) skemmti sér konunglega í kvöld.  Og vonandi verður nýja árið ykkur jafn gott og það sem er að renna á enda.  Áramótakveðjur, Ásdís.

Ásdís (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband