Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2013

Afmæliskort og fleira....

Þá er Blómarósin mín 9 ára búin að gera afmæliskort sem hún er að selja ef ykkur langar að kaupa - 10 stk í pakka ásamt umslögum á 1500kr.  Stúlkan er að safna sér fyrir utanyfir galla í fimleikana og fleira sem tengist þeim.  Ef þú hefur áhuga þá sendu endilega á mig póst á aslaug@vefeldhus.is
afmaeliskort_1206552.jpg











Þetta eru kortin í pakkanum.

Annars er ofsalega lítið að frétta af Maístjörnunni minni - jú hún er ennþá þreytt og leggur sig á daginn, fær krampana sína en er ofsalega fegin að vera komin í sumarfrí svo núna bíðum við bara eftir því að eiginmaðurinn fari í fæðingarorlof sem byrjar 1.júlí (í mánuð) og Blómarósin sem er alltaf á fimleikaæfingum þá getum við farið að gera "allt og ekkert".

Rannsóknir Maístjörnu minnar verða í ágúst en þá verður allt skoðað sambandi við flogalyfin og þess háttar - hvort það þurfi að gera breytingar þar sem það er frekar erfitt að halda krömpunum niðri.

Enda færsluna mína svo á einni mynd sem Blómarósin teiknaði í morgun - já ég veit ég get endalaust montað mig af því sem börnin mín gera og jú og svo einni mynd af Gull-drengnum (7 ára) sem var að keppa á Norðurálsmótinu um helgina og stóð sig hrikalega vel.
944437_10151533730294611_425918454_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


p6239420.jpg


Örlítið af Maístjörnu minni....

Maístjarnan mín er ofsalega þreytt þessar vikurnar - þarf orðið að leggja sig á daginn og er samt sofnuð snemma á kvöldin þannig ég get alveg viðurkennt það að ég hafi pínu áhyggjur af henni enda búin að panta tíma fyrir hana hjá doktor Ólafi, er ekki alveg vissum að ég vilji bíða með rannsóknir frammí ágúst ef hún heldur svona áfram.  

Ég vaknaði t.d. í morgun við geðveik öskur en þá var hún að fá stóran krampa (tvo í röð) og varð svona líka hrædd.  HELV.... krampar alltaf hreint - nýbúið að stækka lyfjaskammtinn hennar, frekar erfitt að halda þeim niðri.

Hún bíður annars spennt eftir því að komast í sumarfrí en það eru bara þrír dagar eftir af skólanum og mikið rosalega ætlum við að njóta þess í sumar.  Stefnan tekin á að fara í annað umhverfi og leyfa henni að slappa af sem mest (og hinum líka) - erum komin með bústað í viku en það elskar hún.

Hún mun skipta um skóla í haust og fara í Klettaskóla sem hún er ROSAlega spennt fyrir - held að það verði bara góðar breytingar fyrir hana.  Eignast vini og finna að hún er sterk í einhverju.

Örlítið "update" af minni flottu Maístjörnu sem er nánast alltaf hamingjusöm þrátt fyrir allt.


Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband