Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2006

Farin út úr bænum

Jamm og já - við erum farin.  Tölvumst næst á mánudag.  Bæjó


Myndatökur

Núna er Þuríður mín í lungamyndatökum, þeir tjékka víst á öllu hjá henni.  Hitinn að hækka núna, ekki gott!! Veitiggi alveg hvað þeir vilja gera? Kom samt vel útur blóðprufunum sem er frekar gottHlæjandi eftir að koma útur einu æjhi ég kann ekkert að segja frá þessu öllu svo það er ekki eftir neinu að bíða en við skulum samt bíða aðeins.  Aaaaaaaaaaargghhh!!

Ohh mæ god ég er að vera svo mikið mega babe, ekki það að ég hafi ekki verið það fyrir eheh en bara meiri núna.  Sá nebbla að búðin mín er komin með útsölur og hvorki meira né minna en 40% afsláttur og að sjálfsögðu notfærði ég mér það.  Well reyndar var að fá þetta allt saman í afmælisgjöf Hlæjandi Var bara að velja mér og þá fékk ég líka meira fyrir peningin ekki það að ég eigi afmæli fyrr en eftir 12daga en ég er bara svo hræðileg til fara að það var ákveðið að gefa mér smá svona fyrirfram.  Ekki leiðinlegt!!  Fékk leddara frá systkinum mínum, ohh mæ ohh mæ!!  ...og svo fullt af fötum frá klikkuðum kellumGlottandi  Um að nýta útsölurnar en eftir að velja mér buxur líka því mínar allar eru allt orðnar pokabuxur ehe ekki leiðinlegt að eiga pokabuxur eða jú reyndar, dóóhh!!
Knús og kossar fyrir mig það er endalaust gaman að eiga ný föt það er líka meira en ár síðan ég fékk mér föt síðast fyrirutan einn og einn bol.  BARA GAMAN!!

Æjhi

Nei mín ekki alveg farin í helgarfrí, erum nebbla komin uppá spítala "aftur".  Þuríður mín Arna komin með bullandi hita í nótt þannig þá þarf að drífa stúlkuna uppá spítala, búið að taka blóðprufur þannig við erum að bíða eftir niðurstöðum. Ath hvort það þurfi nokkuð að leggja stúlkuna nokkuð inn í nokkra daga og gefa henni sýklalyf sem ég vona ekki, vona að þetta sé bara tilfallandi ekki með lyfjameðferðina að gera.  Lyfjameðferin byrjar ekkert sérlega vel ef þetta tengist henni og þá er ég farin að kvíða allsvakalega fyrir vetrinum eða næstu 55vikumFýldur. Bara krossa fingur!!

Um daginn þegar ég var á röltinu hérna um spítalan fattaði ég að ég þekkti meira en helmingin af starfsfólkinu, ég var í því að heilsa fólkinu hérna.  Þetta er einmitt staðurinn sem maður vill ekki þekkja starfsfólkið.  Ekki það að það sé eitthvað slæmt en bara ekki staðurinn svo sá ég líka í gær og síðustu skipti sem ég hef verið að koma hingað þá þekki ég meira en helming sjúklinga.  Hmmmm!!  Ekki heldur gott!!  Samt gott að geta tjattað við foreldrana hérna sem eru með börnin sín og eru kanski í sömu sporum og maður sjálfur get ekki neitað því, nebbla oft þegar fólk er að spurja mann hvernig allt gangi og þess háttar.  Þá fær maður oftast svörin "æjhi ég veit eiginlega ekki hvað ég get sagt" eða "ég veit eiginlega ekki hvernig þér líður og get ekki sett mig í spor þín" og ég vona svo heitt og innilega að margir þurfi ekki að upplifa það sem við erum að gera.  En þegar ég tjatta við fólk í sömu sporum það er svo allt öðruvísi og ótrúlega nice að tjatta við það.  "jájá Jóhanna ég fer að drífa mig á mömmukvöldin" Saklaus.

Well ætla halda áfram að bíða eftir niðurstöðum, er orðin heimsmeistari að bíða og vonandi koma góða niðurstöður og við komumst eitthvað í sveitina.

Farin í helgarfrí

Ég held barasta að ég sé komin í helgarfrí frá tölvunni minni, ég er gjörsamlega búin á því veit varla hvað ég heiti, bíddu hvað heiti ég aftur? mhohoho!!  Alltaf svo fyndin!!

Erum að fara í sveitina á morgun sem vera yndislegt og slappa svolítið af í sirka viku með komum í stórborgina á milli vegna lyfjagjafa hjá Þuríði minni og boði í tívolíið.  Reyndar verður Skari ekki allan tíman einsog ég hef sagt enda þar maðurinn að sinna sinni vinnu þá fáum við bara gamla settið á Dragó til að slást í för og Oddnýju og Evu.  Ekki leiðinlegt!!

Æjhi ég farin, heyrumst einhverntíman í næstu ef þið verðið heppin.  Veitiggi hvort þið verðið svo heppinÓákveðinn


?

Mér þætti rosalega vænt um það ef ég vissi hverjum ég ætti að bjóða í kaffi eheHlæjandi  Ekki það að ég ætli að halda eitthvað afmæliskaffi en væri samt gaman að vita hverjir þetta eru?

Spítalinn í dag

Þá erum við uppá spítala, Þuríður að byrja í nýju lyfjameðferðinni sinni.  Hún situr bara og horfir á Latabæ að sjálfsögðu, ótrúlega góð og yndisleg.  Linda uppáhalds frænka sat hjá henni hérna í tvo tíma en við fórum á smá fund á leikskólanum útaf Þuríði og svo fengum við okkur smá snarlHlæjandi.

Þessa dagana er ég svo reið, sár, leið, pirruð og svo glittir í smá gleði í hjartanum mínu.  Æjhi það eru allir svo góðir við okkur og reyna með bestu getu að láta okkur líða vel sem er ótrúlega fallega gert, allir tilbúnir að hjálpa okkur einsog þeir geta og alltaf tilbúnir þegar við köllum.  Endalaust fallegt!! 

Svo verður maður svo leið, pirruð, reið og sár yfir öllu sem er að bögga hana Þuríði mína því það er einsog engin viti neitt og standa bara á gati.  Ég meina hvernig getur maður liðið öðruvísi þegar eitthvað er að bögga barn manns og engin veit neitt.Öskrandi  

Það á víst að reyna minnka eitthvað flogalyfin hennar þótt þau séu alveg á góðu leveli en það gæti verið ástæðan fyrir því að hún sé svona syfjuð en það er nottla bara ágiskun svo það sakar víst ekki að prufa það fyrst en hvað ef það virkar ekki?  Hún byrjar væntanlega að krampa endalaust þegar lyfin hennar eru minnkuð og þá þarf bara að gefa henni lyf í æð og dópa hana meira upp.  Aaaaaaaaaaaaarghhh!!Gráta  Þetta er bara búið að vera endalaust jójó, erfiðast í heimi!!

Ætli ég reyni ekki að hætta pirra mig og reyni bara að hlakka til helgarinnar en við verðum með hvíldarbústaðinn hjá Styrktarfélaginu næstu vikuna.  Við fjölsk. verðum saman um helgina svo þurfum við að fara heim eldsnemma á mánudagsmorgni því, Skari í vinnuna, búið að bjóða langveikum börnum og fjölsk. þeirra í tívolíið á mánudagsmorgninum og svo á þriðjudeginum þarf Þuríður að fá lyfin sín þannig þá munum við börnin ásamt Oddnýju systir,Evu,  mömmu og pabba vera í bústaðnum fram á föstudag.Hlæjandi  Frekar spennt að fara útí sveit, anda að mér fersku lofti og hafa það gaman sérstaklega stelpunum.  Bara gaman!!

Best að fara horfa á Latabæ með Þuríði minni og leika við Theodór minnÓákveðinn

Ný könnun

Þar sem ég á afmæli eftir tvær vikur í dag kom ég með smá könnun tilefni þess.

Lítið ljóð

Þó þung séu oft sporin á lífsins leið,
og ljósið svo skelfing lítið.
Skaltu eiga þér von sem þinn vin í neyð,
það virkar, en virðist skrýtið.

Því vonin hún vinnur gegn myrkri og hvíða,
og veitir þér styrk sinn, í stormi og byl.
Sjá ljósið mun stækka, og þess skammt er að bíða,
að í sólskinið sjáir, ég veit það er til

Hvar er mamma?

Já ég bara spyr hvar er móðir mín núna?  Ef hún sæji tveggja metra háu hrúguna af hreinum fötum á borðstofuborðinu sem væri eftir að brjóta saman og ganga frá þá væri hún ekki lengi að taka sig til og ganga frá því.  Ég er búin að bíða eftir kellu í heimsókn í nokkra daga svo hún gæti gengið frá fyrir mig en neinei kellan mætir ekki á svæðið, hún nebbla þolir ekki ófrágengin þvott eheh og er ekki lengi að taka sig til þegar hún sér svoleiðis hjá dóttir sinniHlæjandi.  Neiðist ég sem sagt til þess að ganga frá þessu á eftir get ekki látið Oddnýju Hró sjá þetta en stúlkan ætlar að kíkja í heimsókn í dag.  Dóóhh!!

Stundum hugsa ég líka afhverju nýt ég ekki rétt minn og fæ mér einhverja kellu til að þrífa hjá mér?  Svo bara æjhi ég get ekki hugsað mér að hafa einhverja ókunnuga konu hérna á heimilinu að þrífa og ég með lappirnar uppí loft.  Hvað á ég þá að gera þegar stelpurnar mínar eru að leika sér og Theodór kanski sofandi?  Nú ég verð að hafa eitthvað fyrir stafni og það er að þrífa, það er samt ótrúlegt hvað það er afslappandi að þrífa.  Án gríns ég fer bara inní einhvern annan heim, hugsa um ekki neitt eða læt mér dreyma um eitthvað sem ég mun aldrei eignast eða fá.  Alltaf gott að eiga drauma, hugsa um hvað ég get gert fyrir stóra lottó-vinninginn minnÓákveðinn  Það er skemmtilegur draumur!!

Annars er Þuríður mín að byrja í nýju meðferðinni sinni á morgun, hún verður sem sagt lögð inn.  Ég veitiggi alveg hvernig það mun allt fara þar sem hann Theodór minn tók uppá því í gærkveldi að fá hita vonandi var það bara í gær, held allavega að hann sé að hressast.  Þannig þá munum við TI vera hjá henni Þuríði minni og svo mun Linda koma og leysa mig af, alltaf gott að eiga góða aðGlottandi.  Skari þarf nottla að sinna sinni vinnu en Oddný Erla fer til mömmu og Oddnýjar syst og fær að púkast þar með krökkunum sem henni finnst ekki leiðinlegt.  En þetta er allt óráðið ennþá, Þuríður mín fer allavega uppá spítala og byrjar í nýrri meðferð 55vikur, takk fyrir!!

Theodór minn að vakna eftir tveggja tíma blund, ekki getur hann sofið svona þegar móðir hans ætlar að kúra hjá honum neinei þá er það bara hálftíminn.  Grrrrr!!
Þanga til.....
Slauga

Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband