Leita í fréttum mbl.is

6.september'11

Það styttist óðum í næstu rannsóknir Maístjörnu minnar en þær eru 6.september.  Hún er búin að vera alltílagi síðustu vikur, við vorum farin að fagna 5 krampalausum dögum þegar hún byrjaði að krampa og þá tvo daga í röð en ég held að það sé það mesta sem hefur liðið á milli hjá henni.  Jújú hún er ágætlega hress nema það er farið að bera dáltið á lömun hjá henni, hún notar lítið sem ekkert hægri hendina það er bara einsog hún viti ekki af henni.  Svo tók ég eftir því í vikunni að það er farið að bera á lömunareinkennum á hægri fætiFrown.  Hún var að reyna fara uppí koju hjá bróðir sínum og gat ekki farið upp með fætinu, ég vona  bara svo heitt og innilega að þetta er allt bólgunum að kenna en þegar maður sér þessi einkenni svona vel þá líður manni ekki vel í hjartanu skal ég segja ykkur.

Maístjarnan mín var einmitt að fara með bænirnar sínar í gærkveldi og endaði þær svona "kæri guð, viltu láta mig hætta krampa og líða vel í fætinum".  Þannig hún er greinilega meðvituð um fótinn og er alltaf ofsalega hrædd þegar kramparnir koma.  Þetta er erfiðast!!

Annars vorum við að koma úr Hetjulundi sem er hvíldarheimili krabbameinssjúkra barna og þar nutum þess að vera til, gera nánast ekkert nema fara í pottinn, leika okkur í tölvunni, prjóna og sauma(ég þar að segja), spila, borða og njóta þess bara að vera saman í rólegheitunum.  Hefði reyndar viljað hafa eiginmanninn í sumarfríi með okkur en í staðin höfðum við ömmu Oddný með okkur sem var alls ekki slæmt.Joyful  Þetta er einmitt ekta hvíldarstaður fyrir Maístjörnuna mína þar sem hún þolir ekki mikið áreiti, vill helst bara vera þarna sem ég skil mjög vel enda mjög afslappandi.

Núna VERÐ ég að finna eitthvað skemmtilegt að gera næstu vikurnar og hafa eitthvað til að hlakka til því annars mun kvíðahnúturinn stigmagnast og ég leggst bara niður í eitthvað þungt því kvíðinn minn er orðinn frekar mikill.  Annars er stefnan mín að taka upp skólabækurnar mínar upp aftur næsta haust og fara í eitthvað skemmtilegt fjarnámW00t.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hetjulundur er mikill fengur fyrir ykkur sem þurfið að vera á vaktinni með veik börn mánuðum eða árum saman.

Skil vel að Þuríði finnist áreyti erfitt, ef eitthvað er í kollinum þá kemur það svo fljótt fram á þann hátt. Sendi bænapoka til ykkar og segi að 6. sept. verði dagur sigra.

Og mín að skella sér í nám, ekki spyr ég að dugnaðinum í konunni

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.8.2011 kl. 16:13

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

PS er að flytja á Keilissvæðið í Keflavík á næstu dögum - kannski skólaganga hefjist bara á ný um áramótin - þá verð ég löggilt heldri frú

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.8.2011 kl. 16:15

3 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 3.8.2011 kl. 16:46

4 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 3.8.2011 kl. 20:23

5 Smámynd: Ragnheiður

Duglegastar og gott að Hetjulundur virkar svona fínt ..

Knús á línuna

Ragnheiður , 3.8.2011 kl. 21:06

6 identicon

Ég hugsa alltaf sterkt til ykkar, þó ég þekki ykkur ekkert nema í gegnum netið.  Af blogginu þínu má draga djúpan lærdóm.  Það er óendanlega sárt að horfa uppá börnin sín þjást og engin orð sem geta lýst þeim sársauka sem því fylgir.  Ég vona svo innilega að læknarnir geti hjálpað litlu hetjustelpunni ykkar.  Sem betur fer eigum við Íslendingar, góða fagaðila sérhæfða á þessu sviði. 

 Ég bið góðan Guð að lækna litlu hetjuna ykkar og styrkja ykkur fjölskylduna og vernda.

Emma Vilhjálmsdóttir (IP-tala skráð) 4.8.2011 kl. 02:44

7 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Ánægður með hvað þetta þrotlausa starf SKB er að skila sér í betra lífi fyrir litlu hetjurnar. Baráttukveðjur til ykkar beggja.

Róbert Þórhallsson, 4.8.2011 kl. 11:32

8 identicon

Trú, von og kærleikur

Báráttukveðjur til ykkar - Helga

Helga (IP-tala skráð) 4.8.2011 kl. 13:00

9 identicon

Elsku orkuboltinn Áslaug

Já, fara í fjarnám, finna uppá skemmtilegum hlutum til hausts að niðustöður liggja fyrir um þróun mála hjá yndislegu duglegu Þuríði.  Fara í ræktina til að halda orkunni og aðeins í línunar ;))  Það sem þú ert að afreka er ákveðið krftaverk, ég veit vel að það er ekkert annað í boði en að standa sig en samt..

Einhversstaðar er heilladís, ekki langt frá sem stingur í þig sprotanum góða og gefur þér orkuskammt, það bara hlýtur að vera. 

Sendi ykkur öllum aðdáun og RISA KNÚS.

frá Sólveigu

Sólveigu (IP-tala skráð) 4.8.2011 kl. 14:53

10 Smámynd: Adda Laufey

Adda Laufey , 4.8.2011 kl. 20:43

11 identicon

Risa knús til ykkar

Anna (IP-tala skráð) 4.8.2011 kl. 21:32

12 identicon

Kvitta fyrir komuna. Hugsa til ykkar eins og alltaf. Takk fyrir kveðjuna á blogginu mínu, þykir alltaf vænt um þín komment.

Gott að heyra að þið höfðuð það gott í Hetjulundi.

Knús !

Rakel Sara (IP-tala skráð) 5.8.2011 kl. 00:28

13 identicon

Stórt knús

kv Dagbjört

Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 5.8.2011 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband