Leita í fréttum mbl.is

Stóóórglæsilegar fréttir

Hæhó jíbbíjeij og jíbbíjeij það er föstudagurinn þrettándi sem er greinilega okkar happadagur hér eftir.  Ttralllalalalala!!

Fengum góðar fréttir í morgun og læknunum hefði fundist skrýtið ef þær hefðu ekki verið góðar þar sem Þuríður mín litla hetja er búin að vera svo hress en reyndar segir það ekki alltaf allt en það gerir það í þetta sinnGrin.  Æxlið hefur sem sagt minnka, ekki mikið en samt smávegis þeir sáu greinilegan mun sem er heimsins bestu fréttir.  Tralllalala!!  Eintóm hamingja á þessum bæ!!  Maður er samt með allan varan á því þetta getur verið tímabundin minnkun og svo farið aftur að stækka aftur enda er æxlið illkynja en einsog alltaf lifum við fyrir daginn í dag og erum ekkert að bíða eftir því að eitthvað breytist til hins verra að sjálfsögðu ekki.  Auðvidað er alltaf þessi hnútur í maga ef maður sér einhverjar breytingar á hetjunni en kraftaverk gerast og það skal gerast með hana Þuríði mína.  Ég veit að samanlagðar sálir geti einhverju breytt, takk fyrir það!!Sideways

Því henni líður svona einsog hún gerir í dag þá var ákveðið ef hún heldur svona áfram þá verða næstu myndatökur ekki fyrr en í ágúst og það hefur ekki liðið svona lengi á milli síðan ég veit ekki hvenær, ætli það hafi einhverntíman liðið svona langur tími á milli síðan hún veiktist held ekki?  Þetta er þvílíkur draumur í dós!!  Sjalllalalala ævintýri en gerast!!

Tilefni þennan frábæra dags ætli við fjölskyldan skellum okkur ekki bara á uppáhaldsstaðin okkar í kvöld sem er Ruby tuesday Tounge.  Kanski ég ætti bara líka að panta mér ferð til Koben í næstu viku á Sálina og Stuðmenn thíhí!!  Mikil pressa í gangi frá sumum gærum thíhí en ætli það nokkuð?

Best að halda áfram að fagna með litla krulluhaus og knúsa hann í botn, eigið góða helgi og ekki gleyma knúsunum og reynið nú að gera eitthvað skemtilegt.
Hasta la vista
Slauga í geggjuðu stuði


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábærar fréttir, til hamingju með þær!!! Vonandi er þetta bara byrjunin á enn meiri minnkun á æxlinu og enn frekari bata:)

Eyrún (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:26

2 identicon

Knús og kossar til ykkar

Johanna (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:29

3 identicon

ÆÐISLEGT :)   

Knús, Oddný  

oddný (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:30

4 identicon

Vá !! Frábært að heyra og skiljanlegur léttir hjá ykkur. Njótið kvöldsins saman sæta fjölskylda og bara drífa sig til Köben

Kv. M 

M (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:35

5 Smámynd: Elsa Nielsen

Glæsilegar fréttir :) Frábært meiriháttar æðislegt!! Þuríður Arna er sannkölluð hetja ;)

KNÚÚÚS

Elsa Nielsen, 13.4.2007 kl. 12:35

6 identicon

Guð hvað ég samgleðst ykkur, fæ tár í augun að lesa þetta. Ég er ykkur ókunnug en ég fylgist reglulega með ykkur og kveiki á kerti fyrir fallegu fjölskylduna ykkar. Gangi ykkur áfram svona vel í baráttunni.

Kveðja frá Eyjum

Ókunnug (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:38

7 identicon

FRÁBÆRAR FRÉTTIR

Brynja í vesturberginu (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:39

8 identicon

æðislegt.. knús og kossar

kraftaverkin gerast ég er sjálf búin að upplifa kraftaverk  kv Birna

Birna (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:40

9 identicon

Þetta er tær snilld,greinilegt að kraftaverk gerast ég samgleðst ykkur svo innilega og er alveg sammála ykkur með föstudaginn þrettánda  hann hefur aldrei gert annað en gott fyrir mig og mína og greinilega bænheyrt okkur einnig flott tala á flottum degi.

Njótið þess útí ystu .

Baráttukveðjur Guðrún Bergmann,Jói og dætur                                                                                   

Guðrún Bergmann Franz (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:43

10 identicon

Glæsilegar fréttir,njótið þess og skemmtilega helgi.Algjör hetja.Kveð með gleði í hjarta. 

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:56

11 identicon

Ó þetta eru bestu féttir í heiminum og sannar að föstudagurinn 13 er ekki svo slæmur dagur 

Hafið það sem allra best um helgina, kannski að við námum einni bíóferð núna um helgina. Verðum í bandi upp á það.

 Enn og aftur æðislegar fréttir

Knús til ykkar allra magga K

Magga K (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 13:00

12 identicon

frábærar kraftaverka fréttir, og svo til köben og öskra nóg, nú er allt uppávið ,njótið lífsins og verði ykkur að góðu í kvöld, þúsund kossar til Þuru ömmu, frá Hrönn, þið eruð öll svo frábær.

hrönn (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 13:11

13 identicon

Elsku, elsku fjölskyldan hennar Þuríðar litlu Örnu ég sit með gleðitár í augum yfir stórkostlegum fréttum til hamingju duglegu hetjur. Hafið það sem allra allra best hvar og hvenær sem er. Kveðja og hlýjir gleðistraumar að norðan

kona að norðan (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 13:11

14 identicon

Æðislegar fréttir :) Vonandi heldur þetta áfram á sömu braut :) Baráttukveðjur ...

Svala (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 13:18

15 identicon

Elskulega fjölskylda ég þekki ykkur ekki en fylgist vel með ykkur, yndislegar fréttir af litlu hetjunni ykkar, þið eruð frábær

Kveðja frá Vestmannaeyjum

Ása (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 13:19

16 identicon

Vá frábærar fréttir! Þuríður er alger hetja. Góða skemmtun á Ruby í kvöld.

Knús

Anna Lilja 

Anna Lilja (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 13:33

17 identicon

Þetta eru alveg frábærar fréttir og tilvalið að gera sé glaðan dag til að halda upp á þetta.   Já, föstudagurinn 13 verður ekki óhappadagur hjá ykkur hér eftir ;-)

Kv. Hrafnhildur Ýr

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 13:42

18 identicon

hm (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 13:50

19 identicon

Yndislegar fréttir! Þekki ykkur ekkert en hef fylgst með. Þú/þið hafið kennt mér að meta lífið og það að taka hlutina ekki sem sjálfsagða.  Guð gefi ykkur áfram þrek og þrótt í baráttunni. Þuríður er algjör hetja!

Sóley (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 13:52

20 Smámynd: Lady-Dee

En frábært að heyra:) Ég fæ bara gæsahúð og tár í augun:D

mússí múss og góða helgi

Döggin.. 

Lady-Dee, 13.4.2007 kl. 14:00

21 identicon

En æðislegar fréttir ég fæ alveg gæsahúð það var svo gaman að lesa þetta. Þuríður er sko engum lík alveg sannkölluð hetja.  Skemmtið ykkur vel á Ruby Tuesday í kvöld og eigið rosalega góða helgi.

 Bestu kveðjur til ykkar kæra fjölskylda,
Unnur Ylfa

Unnur Ylfa (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 14:14

22 identicon

 

Til lukku með þennan góða dag  frábærar féttir af hetjunni litlu.

Góða helgi, Anna Elín og Co.

Anna Elín (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 14:16

23 Smámynd: katrín atladóttir

þetta voru vægast sagt frábærar fréttir í lok ömurlegrar viku hjá mér:)

jibbí!!!! 

katrín atladóttir, 13.4.2007 kl. 14:29

24 identicon

Frábærar fréttir:) Ég fæ tár í augun::) Knús til ykkar. Kv Þórunn(ókunnug)

Þórunn (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 14:31

25 identicon

Frábærar fréttir!!! Sé að mér er engin skömm af að fá tár í augun. Ég er svo glöð fyrir ykkar hönd að orð fá því ekki lýst!

Knús, Súsanna

Súsanna (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 14:44

26 identicon

Til hamingju öll sömul - þetta eru ekki neitt smá góðar fréttir... til hamingju með þessar frábæru, frábæru fréttir :-)

Kv. Martha og co

Martha Jörundsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 15:05

27 identicon

Innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir kæra fjölskylda. Kraftaverkin gerast greinilega enn

Njótið ykkar í botn og eigið frábæra helgi...gerist varla betri

Kveðja
Sigga Lára (frænka Óskars)

Sigga Lára og fjölskylda (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 15:10

28 identicon

Ohh hvað ég samgleðst ykkur innilega. gæti ekki ímyndað mér betri fréttir í dag! Sit heima með gleiðtár í augunum og sælubros. Knús og kossar frá okkur í Kópavoginum

 Kveðja Unnur

Unnur B. Johnsen (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 15:13

29 identicon

Innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir hetjufjölskilda;) ég er alveg bláókunnug en hef fylgst mjög vel með ykkur hérna á síðunni. ÉGer að vinna á FSA á AKureyri og við allar á deildinni erum búnar að vera með krosslagða fingur síðustu daga.

Þetta er alveg frábært að heyra og njótiði þessa góðu frétta alveg í botn. kveðja frá okkur öllum hér og gangi ykkur rosalega vel í framhaldinu;)

.. (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 16:38

30 identicon

Frábærar fréttir samgleðst ykkur innilega vildi að ég ætti miða til Köben þá myndi ég gefa ykkur hann en því miður

Boston (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 17:18

31 identicon

Guð hvað þetta eru frábærar fréttir þið þekkið mig ekki en ég fer á hverjum degi inn á síðuna ykkar og er oft búin að kveikja á kerti fyrir dúlluna duglegu hana Þuríði Örnu.Innilega til hamingju með þennan góða dag.

'Okunnug frá Eyrarbakka (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 17:46

32 identicon

Gleðitár frá Esbjerg :)

marianna (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 18:38

33 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Innilega til hamingju!!! Dásamlegar fréttir.

Guðríður Haraldsdóttir, 13.4.2007 kl. 19:50

34 identicon

Til hamingju með þessar góðu fréttir og guð gefi ykkur bjarta framtíð,ég er svoð glöð fyrir ykkar hönd að ég verð að skrifa núna.      Ég hef ekki skrifað lengi en ég fylgist alltaf með ykkur og dáist alltaf jafn mikið af ykkur, þið eruð alveg stórkostlegar hetjur og eigið allt það besta skilið.Ég kveiki alltaf á kerti á síðunni fyrir Þuríði og einnig fyrir ykkur elskulega fjöldskylda mér þykir svo vænt um ykkur. Eigið þið góða daga kveðja Birgitta

Birgitta Guðnadóttir (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 22:56

35 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Hjartanlega til hamingju, ég sit hér með tár í augunum vegna góðru fréttana, ég er búin að biðja fyrir Þuríði og ykkur öllum, og ég veit að ég er ekki ein með það. Það er yndislegt að sjá að bænir okkar heyrast Njótið helgarinnar, og til hamingju með fréttirnar aftur

Bertha Sigmundsdóttir, 14.4.2007 kl. 02:54

36 identicon

Kæra Áslaug.

Óska ykkur innilega til hamingju með þetta. Þetta eru frábærar fréttir. Kraftaverkin gerast og nú verðum við bara að vona að þetta sé allt upp á við. Þvílíkar gleðifréttir. Þið eruð í huga mínum alla daga og ég hugsa hlýlega til ykkar. Þið eruð öll svo miklir dugnaðarforkar öll sömul. Mikið er ég glöð fyrir ykkar hönd til hamingju.

Bestu kveðjur frá Siggu Ásgeirsd.

Sigga Ásgeirsd. (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 07:24

37 identicon

Hjartanlega til hamingju og megið þið njóta lífsins í botn. Það ætla ég líka að gera og eins að halda áfram að biðja fyrir ykkur.

Ingunn (ókunnug)

Ingunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 11:52

38 identicon

æj ég get ekki lýst því hvað ég er glöð í hjartanu núna ég var alveg ,eð það á tilfinningunni að þetta myndi verða gleðidagur og það var rétt!;* elsku vinir hlakka til að sjá ykkur sem fyrst;D  þið erð best

Tinna Rut (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 19:51

39 Smámynd: Agný

Ég samgleðst ykkur öllum

Agný, 16.4.2007 kl. 20:16

40 Smámynd: Hjördís Erlingsdóttir

Kæra Áslaug og fjsk

Bænir og kveðjur frá okkur

Kveðja til Oddný"mömmu" frá Andreu

Hjördís 

Hjördís Erlingsdóttir, 17.4.2007 kl. 08:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband