Leita í fréttum mbl.is

Bissí kona

Hrikalega mikið að gera þessa dagana, það var mömmu dagur hjá Oddnýju minni í gær en ég var búin að lofa henni einum degi saman áður en skólinn byrjaði þannig við ákváðum að hafa hann í gær.  En stundum þarf hún svona stundir með mömmu sinni því það getur verið mjög erfitt fyrir hana að eiga veika systir og oft snúast dagarnir kringum hana Þuríði þá er nauðsynlegt fyrir hana að fá smá dekur.  Kúrðum frammeftir morgni í gær, kíktum í kringluna sem henni finnst doltið gaman.  Dótabúðin er mikið uppáhald en hún var að benda mér á allt dótið sem henni langaði í jólagjöf ehe og alltaf var það líka "og Þuríður mín verður líka að fá svona" hún gleymir henni aldrei.  Kíktum líka í uppáhaldsbúðina mína en henni finnst nefnilega doltið gaman að skoða pilsin og var að benda á öll pilsin og kjólana sem henni langar í.  Í lokin enduðum við á salatbarnum í Hagkaup þar fékk hún að velja sér pasta en ég er bara nýbyrjuð að geta borðað úr þessum bara, dóóhh!!  En í denn var ég nefnilega að sjá um þessa bari og bjó til allt sem var þarna (þar að segja í öllum Hagkaupsbúðunum)og fékk algjörlega uppí kok.  Annars er Oddný mín farin að heimta að fara með mér til London eheh við yrðum nú góðar í Next og Hamleys, víííí einhverntíman fer ég með henni þangað.

Oddný vaknaði annars í nótt með bullandi hita og er aftur heima í dag og að sjálfsögðu í dekri en ekki hvað nema hinn mömmulingurinn litli pungsi er líka heima.  Hann er nefnilega að fara í nefkirtlatöku á eftir og setja aftur rör í eyrað hans, aaarrghh!!  Það er ennþá svo mikið slím í eyranum hans og hann er farinn að heyra svo illa með því þannig læknirinn vildi prufa setja aftur rör í það og vonandi mun það virka í þetta sinn býst samt ekkert við því að hann fari að sofa á nóttinni.

Þuríður mín var frekar þreytt í morgun greyjið, fór samt á leikskólann.  Dottaði í bílnum á leiðinni en ég veit líka ef hún er ómögleg á leikskólanum hringja þær og þá verður hún líka sótt hið hraðasta.  Well ekki nema 10 km í leikskólann ehe, það er svona að búa í "sveit" þó það sé leikskóli hér á næsta horni en þá er ekki gott fyrir Þuríði mína að skipta um enda er hún á þeim besta eða réttara sagt þau.

Stelpurnar eru ennþá að meika það í sundi enda æfa einsog keppnismanneskju 3x í viku 45 mín í senn, þvílíkar hetjur.  Kútarnir farnir, þið ættuð að sjá Oddnýju oh mæ god!!  Hún er að verða betri sundkona en mamma sína well kanski svo erfitt en hún er nú bara 3 ára.  Ég má ekki lengur hjálpa henni í lauginni (en við förum alltaf með þeim ofan í) ef við eigum að styðja við brjóstkassan þá verður Oddnýju alveg snar og segist ekki þurfa neina hjálp sem er reyndar alveg rétt hjá henni enda alveg að verða synd konan.  Hrikalega klár að stinga sér og svo syndir hún hálfa laugina í kafi og gerir öll sundtök rétt, oh mæ god bara klárust.  Þuríður er líka mjög klár í sundinu en samt ekki alveg eins enda með smá lömun og getur ekki beitt líkamanum einsog Oddný en hún getur samt alveg verið án kúta og synt oggupons.  Hún er best í að kafa og skellir sér bara ofan í og syndir eftir hlutum sem eru á botni laugarinnar.  Þær eru flottastar!!

Þuríður er að byrja í sjúkraþjálfun á mánudaginn, loksins eftir þriggja mánaðarsumarfrí hjá þjálfaranum og bíður mjög spennt eftir að fá að sprikla aðeins.

Skólinn hjá minni er að byrja á föstudaginn og ég er mjöööööög spennt, þarf að mæta í skólann á föstudag og laugardag og þá missi ég af sundsýningunni hjá stelpunum sem mér finnst leiðinlegast. Hlakka til að byrja læra og meika það í skólanum, bara gaman!

Er líka á fullu að undirbúa ferðina mína með fólkinu úr styrktarfélaginu þetta er endalaust gaman og líka hvað Þuríði minni líður ágætlega þó það sé þreyta í minni en þá eru geislarnir bara að segja til sín.

Knús til ykkar allra og takk fyrir allar fallegu kveðjurnar frá ykkur þið vitið ekki hvað þær gera mikið fyrir okkur, margir halda að ég nenni ekki að lesa öll kommentið frá ykkur en það er nú bara vitleysa þau gera endalaust mikið fyrir okkur og ég les hvert og einasta og stundum nokkrum sinnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Áslaug,þú hlítur að hafa opin gluggan á nóttinni til að anda að þér OFURORKU ´(sveitalofti) þú ert bara súper stormsveipur í öllu,svo er bara muna elsku dúlla (hlusta á herðarnar og vöðvabólguna æææ)fara í NUDD,gangi þér vel í dag með allt eyrnastand og allt annað.Kv.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 10:16

2 Smámynd: Elsa Nielsen

VÓ - brjálað að gera á öllum vígstöðvum Áslaug mín ;) ...en það minnir mann bara á hve ríkur maður er þegar þetta snýst í kringum fjölskyldu og vini. Gangi þér geggjað vel í skólanum ... og vonandi verður í lagi með litla pungsa svo að þið fáið að sofa loksins ;)

KNÚÚÚS

Elsa Nielsen, 12.9.2007 kl. 10:57

3 identicon

Sæl Áslaug ofurkona

Mikið ertu dugleg og nýtir dagana vel. Já Oddný mín er hugulsöm gagnvart henni systir sinni og vill að Þuríður fái allt eins og hún. Hvað eruð þið að vesenast við að hjálpa sjálfbjarga sundkonu. Mikið skil ég hana vel, en ég skil ykkur auðvitað líka. Maður er bara svo stór á þessum aldri og vill ráða því sjálf hvort hjálp er þegin eða ekki.  Ég man óljóst eftir þessum tíma og var sko ekkert "smábarn", gat allt mögulegt ef ég fékk bara frið til þess. Svona er nú lífið. Miðið er gottað litli prinsinn er að losna við hálskirtlana sína, þeir eru greinilega að bögga hann töluvert. Einn af ömmustrákunum mínum fór í svona þegar hann var 2ja ára. Það var ekkert mál og hann gjörbreyttist til heilsunnar til hins betra.

Í skólanum, í skólanum, mín að byrja og hvar er Óskar með myndavélina, þú manst. Og svo væri ekki ónýtt að fá myndir að fararstjóranum í Londonferðinni að störfum. Það mætti halda að þú ættir tvíburasystir sem hleypur í skarðið þegar og ef þú verður þreytt. Blessunar og batakveðjur til Þuríðar og Guðsblessun á línuna. Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 12:31

4 identicon

Fegin að heyra að það sé verið að taka neftkirtlana úr prinsinum á heimilinu. Þeir voru teknir úr syni mínum og sett ný rör og það var allt annað :) ég er sannfærð um að hann fari að sofa á nóttunni núna :) gott að heyra hvað þeim systrum finnst gaman í sundinu :)

kveðja frá mömmu sem er ekki saman

Guðrún (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 13:59

5 identicon

Sæl og blessuð,

                          míkið er gaman að heyra hvað það gengur vel hjá þér og börnin þannig séð.Það verður bara æðislegt ef lítli strákurinn þinn lagast með hálskirtlatöku, litla engillinn, það er svo erfitt fyrir þessu englar þegar þau er með í eyrun ,aftur og aftur.Ég var með öll börnin mín í svona vésinn en þau lagaðist helling eftir að hafa farið í hálskirtlatöku.Það er fallegt gert af þér að fara út með hóp af folkið saman sem þarf svo sannarlega á smá pásu að halda og kærleik og umhyggja.Það er aldeilis flott hjá þér að þú ætlar að skella þér í skólan í þokkabót við allt hitt sem þú ert að takast á við ,þú ert alveg ofsalega dúgleg.Ég vona að Þúríður hefur það gott ásamt ykkur öll.Ég bið guð að gæta og styrkja ykkur og vernda líka,Hafið það sem allra best þú ert frábært .Kær kveðja Dee

dee (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 20:49

6 identicon

Sæl Áslaug.

Ég hef verið að fylgjast með skrifum þínum og kíkji ég nánast daglega hingað inn. Ég finn voðalega til með ykkur öllum að þurfa að ganga í gegnum þetta allt saman en þið eruð alveg rosalega heppin með það hvað þið eigið yndisleg börn ! :)

Ég heyrði eitt lag í dag og var mér alveg sérstaklega hugsað til Þuríðar ykkar.

Hér geturu heyrt lagið There's a hero með ungum strák (Billy Gilman)

http://youtube.com/watch?v=rYaEX2p7JNw

Þuríður er algjör hetja og yndisleg stelpa !

Kv. Alexandra

Alexandra (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 21:47

7 identicon

Langaði bara að senda knús á ykkur.  Gangi ykkur vel.

Steinunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 09:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband